Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 2. janúar 2013 | SKOÐUN | 15
„Þetta er ekkert nema ómerki-
leg trunta.“– Arnar Geir Kárason
Snemma dags þann 7. júní árið
2000 sat ég við morgunverðar-
borðið heima hjá mér með skæri á
lofti og beið þess að Morgunblað-
ið dytti inn um póstlúguna. Dag-
inn áður hafði ég hafið störf sem
blaðamaður á Morgunblaðinu.
Blaðamennsku hafði ég lengi séð
í hyllingum.
Ég sá sjálfa mig fyrir mér
hlaupa um bæinn á pinnahælum
með hárið blásið eins og Dolly
Parton í myndinni „Nine to five“
vopnuð skjalatösku í annarri
hendi og diktafóni í hinni sem ég
myndi nota til að fletta ofan af
spilltum pólitíkusum og siðblind-
um viðskiptajöfrum milli þess
sem mér yrði boðið í blautan löns
með ritstjóranum. Raunveruleik-
inn var hins vegar ekki lengi að
gera út af við slíka dagdrauma.
Lönsinn með ritstjóranum lét á
sér standa og fyrsta fréttin sem
ég fékk að skrifa fjallaði hvorki
um pólitík né spillingu heldur
endurnar á Tjörninni. Engu að
síður fylltist ég djúpu stolti er ég
klippti út fyrstu 215 orðin mín
sem birtust á prenti – fínpússuð
af yfirveguðum yfirmanni sem
sýndi rúmlega tvítugum reynslu-
lausum háskólastúdent sem vissi
ekki hvort öndin með græna
hausinn væri karlinn eða konan
aðdáunarverða þolinmæði.
„Þvílík hetja þessi vælandi kell-
ing.“– Bjarki Már Þórarins
Það er eitthvað hátíðlegt, ef ekki
heilagt, við blek og pappír. Allt
frá því að við Íslendingar nostr-
uðum við kálfskinnið í den höfum
við lagt metnað í að koma orðum
niður á blað. Við setjum okkur í
sparistellingarnar er við sitjum
andspænis pappírnum, veljum
orð af kostgæfni, rifjum upp staf-
setningarreglurnar um eitt n og
tvö og brjótumst úr hversdags-
legum viðjum þágufallsýkinnar.
Þegar kemur hins vegar að sam-
tímaskriffærunum lyklaborði og
tölvuskjá virðast allt önnur lög-
mál ríkja.
Síðastliðinn föstudag var fem-
ínistinn Hildur Lilliendahl Vig-
gósdóttir valin Hetja ársins 2012
af lesendum DV. Þessi krúttlega
viðurkenning tók ískyggilega
kúvendingu þegar hrottaleg-
um svívirðingum hóf að rigna í
hundraða tali yfir Hildi í athuga-
semdakerfi dv.is. Hún var meðal
annars kölluð trunta, femínista-
belja og kallakerling. Þessi orða-
spýja gerði auðvitað ekki annað
en að undirstrika enn frekar
þörfina á baráttu Hildar en hún
hefur unnið ötullega að því að
beina sjónum að þeirri kvenfyr-
irlitningu sem birtist gjarnan
í almennri orðræðu, sér í lagi á
internetinu.
„Frekar beygla ársins.“– Björg-
vin Sævar Ármannsson
Hefðu viðkomandi aðilar tekið
svo til orða hefði ummælum
þeirra verið ætlað að birtast á
prenti; ef líkur væru á að amma
þeirra læsi þau yfir morgun-
kaffinu á síðum Fréttablaðsins?
Ég leyfi mér að efast um það.
Enda virðast orðljótar tilvitnan-
irnar hér að ofan sem allar eru
fengnar úr athugasemdakerfi
dv.is og fjalla um Hildi Lillien-
dahl hreint súrrealískar þegar
þær eru komnar á fast form dag-
blaðapappírsins. Blint hatrið
og saurug ræpan eru trúðsleg,
virðast skopstæling á mannleg-
um samskiptum sem ætti betur
heima sem grín í Spaugstofunni
en umræða í athugasemdakerfi
þar sem ætlast er til að vitiborið
fólk ræði málefni líðandi stundar.
Nú munu vafalaust einhverjir
vilja túlka það sem svo að með
því að gagnrýna sóðapenna int-
ernetsins sé undirrituð að hvetja
til ritskoðunar. Því fer hins vegar
fjarri.
„Hún svaf örugglega hjá Reyni
Trausta, ritstjóra.“– Logi Már
Kvaran
Í síðustu viku birtust eftir mig
í Fréttablaðinu áramótahugleið-
ingar sem samkvæmt verklýs-
ingu áttu að fjalla um eitthvað
sem mér hafði þótt setja svip á
árið 2012. Viðfangsefnið sem ég
valdi var peningar og leitaðist ég
við að færa rök fyrir því að til-
hneiging hluta samfélagsins til að
glæpamanns-gera fólk sem stund-
aði atvinnustarfsemi, svo sem
Kára Stefánsson og Skúla Mogen-
sen, væri óréttmæt og gæti haft
slæm áhrif á hagsæld samfélags-
ins, þjóðarframleiðslu og atvinnu-
stig. Af viðbrögðunum varð strax
ljóst að hugleiðingarnar væru
umdeildar. Ég fagnaði því auð-
vitað því hressilegar rökræður
eru undirstaða lýðræðis og opins
samfélags. Þar sem ég sat við
tölvuskjáinn og beið spennt eftir
kröftugum mótrökum, hnyttnum
andmælum og ígrunduðum and-
svörum sem fengju mig jafnvel til
að endurhugsa afstöðu mína tóku
hins vegar að renna á mig tvær
grímur. Kommentin voru flest á
eina leið: rislitlar 2007 klisjur,
ófrægingar og villtar samsæris-
kenningar: „Það gárar víst líka á
grunna polla.“ – Kristinn Hrafns-
son. „… þarna er mikil þrá eftir
að 2007 eigi kombakk með sínu
gagnrýnisleysi.“ – Egill Helga-
son. „Enginn boðskapur í þessari
grein. Virðist kostuð af banka
eða bankamönnum frá því fyrir
hrun.“ – Þorfinnur Ómarsson.
Afsakið slettuna, en „komm
on“! Það hlýtur að vera hægt að
gera betur en þetta. Ég var að
verja peninga! Það ætti ekki að
vera svo erfitt að pota göt í grein
sem gengur út á að halda uppi
vörnum fyrir fjármuni fimm
árum eftir að fjárhagslegt hrun
varð á landinu. Það hefði mátt
slengja fram nokkrum dæmum
um ofgnótt góðærisáranna, grafa
upp eina af mörgum fréttum fjöl-
miðla um flottræfla, vitna í eitt-
hvað úr rannsóknarskýrslunni.
En það er ekki gert. Því rökræðu-
aðferð Íslands í dag gengur fyrst
og fremst út á að fara í manninn
en ekki málefnið.
„Þessi er svolitið klikkuð í skall-
anum.“– Stebbi Hansen
Hér er því ekki verið að hvetja til
ritskoðunar heldur þvert á móti
frekari rökræðna. Vitiborinna
skoðanaskipta. Sé fólk ósammála
lesendum DV um val á hetju árs-
ins má vel gagnrýna það.
Einhver kann að vera á móti
þeirri aðferðafræði sem Hildur
Lilliendahl hefur beitt í baráttu
sinni gegn kvenfyrirlitningu.
Annar kann að vera þeirrar skoð-
unar ekki sé lengur þörf á sér-
stakri jafnréttisbaráttu konum
til handa því hagur þeirra hefur
vissulega batnað til muna síð-
ustu áratugi. „Hildur Lilliendahl
er trunta“ er hins vegar ekki rök
með eða á móti nokkrum sköpuð-
um hlut.
Kvennaleikfimi
Mán., mið. og fös. kl. 16:30.
Verð 3x í viku kr. 14.900,-
Þri. og fim. kl. 10:00.
Verð 2x í viku kr. 12.900,-
Karlapúl
Mán., mið. og fös. kl. 12:00-12:45.
Verð kr. 14.900,-
Pilates
Þri. og fim. kl. 17:30 eða 18:30.
Verð, 8 vikur, kr. 21.900,-
Í form fyrir golfið
Þri. og fim. kl. 12:10-12:55.
Verð kr. 12.900,-
Morgunþrek
Fyrir lengra komna.
Mán., mið. og fös. kl. 7:45 eða 09:00.
Verð kr. 14.900,-
Zumba toning/fitness
Þri. og fim. kl. 16:30/17:30.
Verð kr. 12.900,-
Zumba Gold 60+
Fyrir 60 ára og eldri
sem hafa gaman af að dansa.
Þri. og fim. kl. 11:00.
Verð kr. 9.900,-
Leikfimi fyrir 60 ára og eldri
Mán, mið. og fös. kl. 11:00 eða 15:00.
Verð kr. 9.900,-
Skelltu þér í ræktina!
Ný námskeið hefjast 7. og 8. janúar. 4 vikur.
„Ég var búin að taka eftir
auglýsingum frá Heilsu-
borg í þó nokkurn tíma
og var búin að vera að
hugsa lengi um að fara
að gera eitthvað í mínum
málum. Ég er búin með
grunnnámskeið í Heilsu-
lausnum og er núna á framhaldsnám-
skeiðinu. Ég hef náð góðum árangri, náð
að losna við mörg kíló og er bara svo
miklu hressari og með miklu meiri orku.
Maður verður að vilja gera þetta fyrir sig
sjálfan. Þetta snýst ekki um það að megra
sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi
og koma sér í gott líkamlegt og andlegt
form.“
Helga Einarsdóttir
Ef amma væri að lesa
Síðastliðinn föstudag var femínistinn Hildur
Lilliendahl Viggósdóttir valin Hetja ársins 2012 af
lesendum DV. Þessi krúttlega viðurkenning tók ískyggilega
kúvendingu þegar hrottalegum svívirðingum hóf að rigna í
hundruða tali yfir Hildi í athugasemdakerfi dv.is.
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur