Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2013, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 02.01.2013, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 2. janúar 2013 | SKOÐUN | 15 „Þetta er ekkert nema ómerki- leg trunta.“– Arnar Geir Kárason Snemma dags þann 7. júní árið 2000 sat ég við morgunverðar- borðið heima hjá mér með skæri á lofti og beið þess að Morgunblað- ið dytti inn um póstlúguna. Dag- inn áður hafði ég hafið störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Blaðamennsku hafði ég lengi séð í hyllingum. Ég sá sjálfa mig fyrir mér hlaupa um bæinn á pinnahælum með hárið blásið eins og Dolly Parton í myndinni „Nine to five“ vopnuð skjalatösku í annarri hendi og diktafóni í hinni sem ég myndi nota til að fletta ofan af spilltum pólitíkusum og siðblind- um viðskiptajöfrum milli þess sem mér yrði boðið í blautan löns með ritstjóranum. Raunveruleik- inn var hins vegar ekki lengi að gera út af við slíka dagdrauma. Lönsinn með ritstjóranum lét á sér standa og fyrsta fréttin sem ég fékk að skrifa fjallaði hvorki um pólitík né spillingu heldur endurnar á Tjörninni. Engu að síður fylltist ég djúpu stolti er ég klippti út fyrstu 215 orðin mín sem birtust á prenti – fínpússuð af yfirveguðum yfirmanni sem sýndi rúmlega tvítugum reynslu- lausum háskólastúdent sem vissi ekki hvort öndin með græna hausinn væri karlinn eða konan aðdáunarverða þolinmæði. „Þvílík hetja þessi vælandi kell- ing.“– Bjarki Már Þórarins Það er eitthvað hátíðlegt, ef ekki heilagt, við blek og pappír. Allt frá því að við Íslendingar nostr- uðum við kálfskinnið í den höfum við lagt metnað í að koma orðum niður á blað. Við setjum okkur í sparistellingarnar er við sitjum andspænis pappírnum, veljum orð af kostgæfni, rifjum upp staf- setningarreglurnar um eitt n og tvö og brjótumst úr hversdags- legum viðjum þágufallsýkinnar. Þegar kemur hins vegar að sam- tímaskriffærunum lyklaborði og tölvuskjá virðast allt önnur lög- mál ríkja. Síðastliðinn föstudag var fem- ínistinn Hildur Lilliendahl Vig- gósdóttir valin Hetja ársins 2012 af lesendum DV. Þessi krúttlega viðurkenning tók ískyggilega kúvendingu þegar hrottaleg- um svívirðingum hóf að rigna í hundraða tali yfir Hildi í athuga- semdakerfi dv.is. Hún var meðal annars kölluð trunta, femínista- belja og kallakerling. Þessi orða- spýja gerði auðvitað ekki annað en að undirstrika enn frekar þörfina á baráttu Hildar en hún hefur unnið ötullega að því að beina sjónum að þeirri kvenfyr- irlitningu sem birtist gjarnan í almennri orðræðu, sér í lagi á internetinu. „Frekar beygla ársins.“– Björg- vin Sævar Ármannsson Hefðu viðkomandi aðilar tekið svo til orða hefði ummælum þeirra verið ætlað að birtast á prenti; ef líkur væru á að amma þeirra læsi þau yfir morgun- kaffinu á síðum Fréttablaðsins? Ég leyfi mér að efast um það. Enda virðast orðljótar tilvitnan- irnar hér að ofan sem allar eru fengnar úr athugasemdakerfi dv.is og fjalla um Hildi Lillien- dahl hreint súrrealískar þegar þær eru komnar á fast form dag- blaðapappírsins. Blint hatrið og saurug ræpan eru trúðsleg, virðast skopstæling á mannleg- um samskiptum sem ætti betur heima sem grín í Spaugstofunni en umræða í athugasemdakerfi þar sem ætlast er til að vitiborið fólk ræði málefni líðandi stundar. Nú munu vafalaust einhverjir vilja túlka það sem svo að með því að gagnrýna sóðapenna int- ernetsins sé undirrituð að hvetja til ritskoðunar. Því fer hins vegar fjarri. „Hún svaf örugglega hjá Reyni Trausta, ritstjóra.“– Logi Már Kvaran Í síðustu viku birtust eftir mig í Fréttablaðinu áramótahugleið- ingar sem samkvæmt verklýs- ingu áttu að fjalla um eitthvað sem mér hafði þótt setja svip á árið 2012. Viðfangsefnið sem ég valdi var peningar og leitaðist ég við að færa rök fyrir því að til- hneiging hluta samfélagsins til að glæpamanns-gera fólk sem stund- aði atvinnustarfsemi, svo sem Kára Stefánsson og Skúla Mogen- sen, væri óréttmæt og gæti haft slæm áhrif á hagsæld samfélags- ins, þjóðarframleiðslu og atvinnu- stig. Af viðbrögðunum varð strax ljóst að hugleiðingarnar væru umdeildar. Ég fagnaði því auð- vitað því hressilegar rökræður eru undirstaða lýðræðis og opins samfélags. Þar sem ég sat við tölvuskjáinn og beið spennt eftir kröftugum mótrökum, hnyttnum andmælum og ígrunduðum and- svörum sem fengju mig jafnvel til að endurhugsa afstöðu mína tóku hins vegar að renna á mig tvær grímur. Kommentin voru flest á eina leið: rislitlar 2007 klisjur, ófrægingar og villtar samsæris- kenningar: „Það gárar víst líka á grunna polla.“ – Kristinn Hrafns- son. „… þarna er mikil þrá eftir að 2007 eigi kombakk með sínu gagnrýnisleysi.“ – Egill Helga- son. „Enginn boðskapur í þessari grein. Virðist kostuð af banka eða bankamönnum frá því fyrir hrun.“ – Þorfinnur Ómarsson. Afsakið slettuna, en „komm on“! Það hlýtur að vera hægt að gera betur en þetta. Ég var að verja peninga! Það ætti ekki að vera svo erfitt að pota göt í grein sem gengur út á að halda uppi vörnum fyrir fjármuni fimm árum eftir að fjárhagslegt hrun varð á landinu. Það hefði mátt slengja fram nokkrum dæmum um ofgnótt góðærisáranna, grafa upp eina af mörgum fréttum fjöl- miðla um flottræfla, vitna í eitt- hvað úr rannsóknarskýrslunni. En það er ekki gert. Því rökræðu- aðferð Íslands í dag gengur fyrst og fremst út á að fara í manninn en ekki málefnið. „Þessi er svolitið klikkuð í skall- anum.“– Stebbi Hansen Hér er því ekki verið að hvetja til ritskoðunar heldur þvert á móti frekari rökræðna. Vitiborinna skoðanaskipta. Sé fólk ósammála lesendum DV um val á hetju árs- ins má vel gagnrýna það. Einhver kann að vera á móti þeirri aðferðafræði sem Hildur Lilliendahl hefur beitt í baráttu sinni gegn kvenfyrirlitningu. Annar kann að vera þeirrar skoð- unar ekki sé lengur þörf á sér- stakri jafnréttisbaráttu konum til handa því hagur þeirra hefur vissulega batnað til muna síð- ustu áratugi. „Hildur Lilliendahl er trunta“ er hins vegar ekki rök með eða á móti nokkrum sköpuð- um hlut. Kvennaleikfimi Mán., mið. og fös. kl. 16:30. Verð 3x í viku kr. 14.900,- Þri. og fim. kl. 10:00. Verð 2x í viku kr. 12.900,- Karlapúl Mán., mið. og fös. kl. 12:00-12:45. Verð kr. 14.900,- Pilates Þri. og fim. kl. 17:30 eða 18:30. Verð, 8 vikur, kr. 21.900,- Í form fyrir golfið Þri. og fim. kl. 12:10-12:55. Verð kr. 12.900,- Morgunþrek Fyrir lengra komna. Mán., mið. og fös. kl. 7:45 eða 09:00. Verð kr. 14.900,- Zumba toning/fitness Þri. og fim. kl. 16:30/17:30. Verð kr. 12.900,- Zumba Gold 60+ Fyrir 60 ára og eldri sem hafa gaman af að dansa. Þri. og fim. kl. 11:00. Verð kr. 9.900,- Leikfimi fyrir 60 ára og eldri Mán, mið. og fös. kl. 11:00 eða 15:00. Verð kr. 9.900,- Skelltu þér í ræktina! Ný námskeið hefjast 7. og 8. janúar. 4 vikur. „Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsu- borg í þó nokkurn tíma og var búin að vera að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég er búin með grunnnámskeið í Heilsu- lausnum og er núna á framhaldsnám- skeiðinu. Ég hef náð góðum árangri, náð að losna við mörg kíló og er bara svo miklu hressari og með miklu meiri orku. Maður verður að vilja gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það að megra sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma sér í gott líkamlegt og andlegt form.“ Helga Einarsdóttir Ef amma væri að lesa Síðastliðinn föstudag var femínistinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir valin Hetja ársins 2012 af lesendum DV. Þessi krúttlega viðurkenning tók ískyggilega kúvendingu þegar hrottalegum svívirðingum hóf að rigna í hundruða tali yfir Hildi í athugasemdakerfi dv.is. Í DAG Sif Sigmarsdóttir rithöfundur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.