Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 20
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
HELGA HÁKONARDÓTTIR
Hólsvegi 17,
sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 20.
desember, verður jarðsungin 4. janúar
klukkan 11.00 frá Fossvogskirkju.
Bergþór Magnússon
Magnús Eðvarð Guðleifsson Guðbjörg Guðmundsdóttir
Bergþór Helgi Bergþórsson Gyða Sigurbjörg Steinarsdóttir
Bergsteinn Bergþórsson
Vilborg Helga Bergþórsdóttir
Katrín Ósk Magnúsdóttir
Brynjar Þór Magnússon
Elísabet Jenný Bergþórsdóttir
Kristófer Þorri Magnússon
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
ÞÓRUNNAR ÖLDU BJÖRNSDÓTTUR
frá Kirkjulandi, Vestmannaeyjum,
síðar Meistaravöllum 9, Reykjavík.
Lára Halla Jóhannesdóttir Páll Sigurðarson
Birna Valgerður Jóhannesdóttir Jóhann Ingi Einarsson
Guðbjörg Ásta Jóhannesdóttir Adolf Bjarnason
Ágústa Ágústsdóttir
Brynjólfur Jóhannesson María B. Filippusdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN GUNNAR JÓNSSON
Vík í Mýrdal,
lést á dvalarheimilinu Hjallatúni föstudaginn
21. desember. Útför hans fer fram frá
Víkurkirkju laugardaginn 5. janúar kl. 14.00.
Ívar Jónsson Björk Ben Ölversdóttir
Kristrún Harpa Kjartansdóttir Ingvar Pétursson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
HANNES KRISTMUNDSSON
Borgarheiði 13h, Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði
25. desember. Hann verður jarðsunginn frá
Hveragerðiskirkju laugardaginn 5. janúar
kl. 14.00.
Sigurbjörg Gísladóttir
Kristmundur Stefán Hannesson
Sigurður Elí Hannesson Helena Sif Ericson
og barnabörn.
„Þetta er tilraunaverkefni til tveggja
ára,“ segir Guðmunda Steingríms-
dóttir sjúkraliði um Alzheimerkaffi
sem hún, ásamt Kolbrúnu Sigurpáls-
dóttur sjúkraliða og Pálínu Hrönn
Skjaldardóttur hjúkrunarfræðingi,
er að setja á laggirnar í þessum mán-
uði. Það verður opið tvisvar í mánuði,
tvo tíma í senn í Félagsmiðstöðinni í
Hæðargarði í Reykjavík.
„Alzheimerkaffi er nýjung hér á
landi í þjónustu við fólk með heila-
bilun. Þar verður fræðsla um hvern-
ig hægt er að gera lífið bærilegra,
kaffi með meðlæti og tækifæri til að
spjalla, bæði við fagfólk á staðnum og
við fólk sem er í sömu stöðu. Svo verð-
ur alltaf endað á söng með undirleik.
„Við verðum með söngbækur en oft er
ótrúlegt hvað fólk man texta og lög,
þó það hafi gleymt ýmsu öðru. Því er
mikill styrkur í söngnum,“ segir Guð-
munda sem reiknar með að aðstand-
endur komi með sínum sjúklingum.
„Ætlunin er að fólk eigi þarna gleði-
stundir saman.“
Guðmunda segir fólk með minnis-
sjúkdóma oft vera einangrað og þurfa
á upplyftingu að halda. Það hafi líka
þörf fyrir að tjá sig um sína líðan því
viss tilhneiging sé til að þagga þennan
sjúkdóm niður og tala ekki um hann
eins og eðlilegan hlut. „Það eru allir
velkomnir en við horfum sérstaklega
til þeirra sem eru að greinast um og
eftir miðjan aldur og hafa fá eða engin
úrræði. Það eru til dæmis yfir hundr-
að manns á biðlista eftir dagþjónustu
hér í borginni,“ lýsir hún.
Hugmyndina að Alzheimerkaffi-
húsinu segir Guðmunda komna frá
Hollandi. Að hennar sögn eru fimm-
tán ár síðan slíkt hús var opnað þar
og nú eru rekin um 200 Alzheimer-
kaffihús þar í landi. „Hollendingar
eru frumkvöðlar í þessari starfsemi
sem hefur breiðst út um Evrópu en
ekki náð hingað til lands fyrr,“ segir
Guðmunda. Hún fór sjálf til Hollands
í sumar með starfsfélögum á vegum
Félags áhugafólks og aðstandenda
um Alzheimer og skylda sjúkdóma,
(skammstafað FAAS). Hún heimsótti
þá svona kaffihús og segir stemn-
inguna þar hafa verið notalega. „Þetta
er búið að vera áhugamál mitt lengi,“
segir Guðmunda sem er með fram-
haldsnám í öldrunarhjúkrun og starf-
ar í Maríuhúsi, dagþjálfun fyrir fólk
með minnissjúkdóma.
Kolbrún og Pálína Hrönn vinna
báðar í Sóltúni og hafa líka mikla
reynslu af fólki með heilabilun í gegn-
um sitt starf.
Alzheimerkaffi verður opnað 17.
janúar í Félagsmiðstöðinni í Hæðar-
garði eins og fyrr segir. Aðgangseyrir
er 500 krónur og innifalið er dagskrá
og veitingar. gun@frettabladid.is
Ætlunin er að fólk eigi
gleðistundir saman
Kaffi hús ætlað fólki með minnissjúkdóma verður opnað á næstunni í Félagsmiðstöðinni í
Hæðargarði. Þar er stefnt að gæðastundum með fræðslu, veitingum og söng. Guðmunda
Steingrímsdóttir er ein af þremur forsprökkum.
FRUMKVÖÐLAR Pálína, Guðmunda og Kolbrún opna brátt kaffihúsið í samvinnu við Félagsmiðstöðina Hæðargarði og FAAS,- Félag áhugafólks
og aðstandenda Alzheimerssjúklinga. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Verðlaun úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright eru veitt
íslenskum vísindamanni sem náð hefur framúrskarandi
árangri á sérsviði sínu í vísindum eða fræðum og miðlað
þekkingu sinni til framfara í íslensku þjóðfélagi. Gylfa Zoëga
prófessor voru veitt þessi verðlaun fyrir 2012 á einum af síð-
ustu dögum þess árs. Í rökstuðningi kemur fram að hann eigi
að baki glæstan feril sem vísindamaður á sviði hagfræði og
hafi jafnframt sýnt frábæran dugnað í að koma niðurstöðum
rannsókna sinna á framfæri til almennings.
Þetta var í fertugasta og fjórða sinn sem úthlutað var úr
Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright. Meðal þeirra
sem hafa fengið þau eru Sigurður Nordal, Sigurður Þórarins-
son, Margrét Guðnadóttir og Sigurbjörn Einarsson biskup.
Þeir sem hljóta verðlaunin fá nafnbótina æsir og ásynjur.
Sjóðinn stofnaði Ása til minningar um eiginmann sinn,
ættingja og aðra venslamenn. Hún var fædd á Íslandi árið
1892 en giftist enska lögmanninum dr. Henry Newcomb
Wright. Þau settust að á Trinidad í Vestur-Indíum í lok síð-
ari heimsstyrjaldarinnar og ráku þar plantekru sem síðar
var friðlýst vegna stórbrotinnar náttúru og sérstæðs fugla-
lífs. Þar heitir nú Asa Wright Nature Centre.
Þegar Ása seldi búgarðinn sá hún um að andvirði eignar-
innar yrði meðal annars varið til stofnunar þessa verðlauna-
sjóðs í tengslum við Vísindafélag Íslendinga. - gun
Hlaut verðlaun fyrir vísindi
Gylfi Zoëga, hagfræðingur við Háskóla Íslands, hlaut nýlega Ásuverðlaun Vísindafélags
Íslendinga fyrir árið 2012.
VERÐLAUNAVEITING Gylfi Zoëga hefur hlotið nafnbótina ás með
því að fá heiðursverðlaun úr Ásusjóði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MERKISATBURÐIR
653 Mikið tjón verður á Eyrarbakka og víðar í sjávarflóði, sem
nefnt hefur verið Háeyrarflóðið.
1871 Stöðulögin eru sett sem kveða á um að Ísland sé óaðskilj-
anlegur hluti hins danska ríkis, en þó með sérstök landsréttindi.
1871 Íslensk króna verður til með sérstakri lagasetningu.
1884 Andrea Guðmundsdóttir, saumakona á Ísafirði, kýs til
bæjarstjórnar og er fyrsta konan sem það gerir eftir að konur fá
kosningarétt til sveitarstjórna.
1887 Prentarafélagið, fyrsta verkalýðsfélagið á Íslandi, er stofn-
að.
1899 KFUM er stofnað á Íslandi af séra Friðriki Friðrikssyni.
1932 Mötuneyti safnaðanna í Reykjavík tekur til starfa í Franska
spítalanum.
1959 Sovétríkin skjóta á loft fyrsta geimfarinu, Luna 1.
1986 Kveikt eru ljós á sex öndvegissúlum við borgarmörk
Reykjavíkur til marks um upphaf afmælisárs borgarinnar.
1994 Flestir sjómenn á Íslandi fara í verkfall.