Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 36

Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 36
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 28 Kínverski slagsmálasnillingur- inn Jackie Chan hefur tekið að sér hlutverk í þriðju mynd Expend- ables-seríunnar en mikill spenn- ingur ríkir meðal hasarmynda- áhugafólks yfir því hvaða hetjum Sylvester Stallone stillir upp næst. Chan var að vísu beðinn um að vera í mynd númer tvö á sínum tíma, en varð að afþakka boðið vegna annarra verkefna. Nú mætir hann sprækur til leiks, og er þessi 58 ára gamli fjörkálfur sá fyrsti til að staðfesta þátttöku sína í þriðju myndinni. Nóg hefur hins vegar verið spáð og spekúlerað. Nöfn harðhausa hafa verið nefnd af framleið- endum, og dregin strax til baka. Aðdáendur skeggræða mögu- lega kandídata í skúmaskotum internetsins. „Hvað með Michael Dudikoff?“ spyr einn, á meðan annar stingur upp á Hulk Hogan og Mr. T. Enn sem komið er, getum við í raun ekki stólað á neinn nema aðaldriffjöður myndaflokksins, hinn eina og sanna Sylvester Stal- lone, og núna Jackie Chan, en að eigin sögn verður hlutverk hans veigamikið og þrælskemmtilegt. haukur@frettabladid.is Jackie tekur slaginn Sylvester Stallone og félagar undirbúa þriðju Expendables-myndina. Jackie Chan er til í tuskið og er hann fyrsti slagsmálahundurinn til að staðfesta þátttöku. TIL Í TUSKIÐ Mikil spenna ríkir yfir leikaravalinu í þriðju Expendables-myndinni en Jackie Chan hefur stðafest sína þátttöku. Wesley Snipes Það stóð til að fá hann í fyrstu myndina en svo lenti þetta vanmetna vöðvatröll í steininum fyrir skattsvik og þar dúsir hann enn. Afplánun hans lýkur næsta sumar og má því leiða að því líkur að Stallone nýti sér krafta þessa forna vinar síns. Hans helsti kostur er líklega sá að hann getur bæði leikið hetju og skúrk. Helstu hasarverk: Blade-serían, Demol- ition Man, Passenger 57 The Rock Þetta geðþekka búnt þótti á sínum tíma líklegt til að erfa hasarhásæti þeirra Stallones og Schwarzeneggers þegar þeir segðu nóg komið. En The Rock kom öllum á óvart og hefur leikið í myndum af öllum stærðum og gerðum. Hann er líka lúmskt fyndinn og væri skemmtileg viðbót við Expendables-gengið. Helstu hasarverk: The Mummy-serían, Fast Five Nicolas Cage Maðurinn sem fólk ýmist elskar eða hatar. Hann hefur verið í lágstemmdum verðlaunamyndum, vitgrönnum vöðvamyndum og öllu þar á milli. Framleiðendur Expendables-seríunnar létu hafa það eftir sér að Cage yrði í þriðju myndinni en Stallone hefur borið þær fregnir til baka. Hvað verður veit enginn, en það eitt er víst að Nicolas Cage myndi hífa upp hlutfall Óskarsverðlauna- leikara í seríunni, yrði hann með. Helstu hasarverk: Con Air, Face/Off, The Rock Gina Carano Þessi þrítuga snót er harðari en Expendables- labbakútarnir allir til samans. Hún er bæði ung og reynslulítil sem leikkona, en átti þrátt fyrir það óaðfinnanlega frammistöðu fyrr á árinu í hasarmyndinni Haywire, þar sem hún barði alla í stöppu. Hún á fullt erindi í hóp Stallones, og hefur meira að segja verið nefnd á nafn, en það er spurning hvort af því verði þar sem hún hefur nú þegar staðfest þátttöku í sambærilegri hasarhetjuveislu kvennamegin. Helstu hasarverk: Haywire Clint Eastwood Stallone hefur lýst yfir áhuga á að fá þennan langafa hasarmyndahetjunnar til liðs við sig í þriðju myndinni, en Eastwood lét hafa eftir sér í viðtali að hann væri ólíklegur til að þiggja slíkt boð. Hann grínaðist reyndar með að hann gæti frekar hugsað sér að leikstýra myndinni, en það má alveg eins vona að Stallone taki hann á orðinu. Helstu hasarverk: Dirty Harry-serían, Where Eagles Dare, Dollaramyndir Sergio Leone Vin Diesel Þótti efnileg hasarhetja um síðustu aldamót en einhvern veginn varð hann aldrei sú súper- stjarna sem ætlast var til af honum. Hann hefur þó haldið velli og gert til dæmis ágætis hluti í seríunni Fast and the Furious. Hefur ekki verið nefndur, en er samt mun ofar í goggunarröðinni en margir úr Expendables-myndunum tveimur. Sýndu biðlund Vin, Stallone hlýtur að hringja á endanum. Helstu hasarverk: Fast and the Furious-serían, Riddick-serían, xXx Steven Seagal Stallone hefur ítrekað reynt að fá hann í liðið, en Seagal segir þvert nei. Ástæðan er stirt sam- band milli Seagals og Avi Lerner, framleiðanda seríunnar, en þeim sinnaðist víst fyrir löngu. En Seagal veit líka að hann þarf að leggja glassúr- snúðana á hilluna, ætli hann sér að hafa roð við Expendables-búntunum, þannig að kannski er þetta allt saman bara fyrirsláttur. Helstu hasarverk: Under Siege-tvennan, Hard to Kill, Executive Decision Kurt Russell Flottur leikari sem svínvirkar í hasar. Honum var boðið að vera í fyrstu myndinni en hann afþakkaði. Sem er bölvuð sjálfselska í honum, því heimurinn þarf og vill meira af Kurt Russell. Helstu hasarverk: Escape From New York, The Thing, Breakdown Aðrir sem væru fullkomnir: Harrison Ford, Mel Gibson, Vinnie Jones, Linda Hamilton, Ray Liotta, Ice-T, Chow Yun Fat, Tom Berenger, Sigourney Weaver, Danny Trejo, Roddy Piper Þessir hafa einnig verið nefndir af framleiðendum, á internetinu, við vatnskælinn og í Nexus. OPIÐ VIRKA DAGA. 11–18 LAU. 11–16 SUN. 13–16 LAGER SALA! KLÁRUM VETRARVÖRURNAR FRÁBÆR VERÐ!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.