Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 42
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 34
Í beinni í kvöld
Kl. 19.45
Liverpool - Sunderland Sport 2 & HD
Chelsea - QPR Sport 3
Kl. 20.00
Newcastle - Everton Sport 4
Sunnudagsmessan hefst strax að leik loknum á
Sport 2
Við t
rúUm
á Si
gur
HM í
han
dbol
ta
Í LEI
FTRA
NDI H
ÁSKE
RPU
Hefs
t 11.
janú
ar
Þorsteinn J. og gestir
Þorsteinn J. sér um upphitun
fyrir leiki og stýrir ítarlegri
umfjöllun eftir leiki ásamt
handbolta sérfræðingum
og góðum gestum.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS | VERSLANIR VODAFONE | VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
ÚRSLIT Í ENSKA BOLTANUM
WEST BROM 1
FULHAM 2
0-1 Dimitar Berbatov (39.), 1-1 Romelu Lukaku
(49.), 1-2 Alexander Kacaniklic
MANCHESTER CITY 3
STOKE CITY 0
1-0 Pablo Zabaleta (43.), 2-0 Edin Dzeko (56.),
3-0 Sergio Agüero (74.)
SWANSEA 2
ASTON VILLA 2
1-0 Wayne Rouledge (9.), 1-1 Andreas Weimann
(44.), 1-2 Christian Benteke (84.), 2-2 Danny
Graham (95.)
TOTTENHAM 3
READING 1
0-1 Pavel Pogrebnyak (4.), 1-1 Michael Dawson
(51.), 2-1 Emmanuel Adebayor (51.), 3-1 Clint
Dempsey (79.)
WEST HAM 2
NORWICH 1
1-0 Mark Noble, víti (3.), 2-0 Joey O‘Brien (26.),
2-1 Russel Martin (90.)
WIGAN 0
MANCHESTER UNITED 4
0-1 Javier Hernandez (36.), 0-2 Robin van Persie
(43.), 0-3 Javier Hernandez (64.), 0-4 Robin van
Persie (88.)
SOUTHAMPTON 1
ARSENAL 1
1-0 Gaston Ramirez (35.), 1-1 Sjálfsmark (41.)
STAÐAN
Man.Utd. 21 17 1 3 54:28 52
Man.City 21 13 6 2 41:19 45
Tottenham 21 12 3 6 39:27 39
Chelsea 19 11 5 3 39:18 38
Arsenal 20 9 7 4 40:22 34
Everton 20 8 9 3 33:25 33
W.B.A. 21 10 3 8 29:27 33
Swansea 21 7 8 6 31:26 29
Stoke 21 6 11 4 21:20 29
Liverpool 20 7 7 6 31:26 28
West Ham 20 7 5 8 24:24 26
Norwich 21 6 7 8 24:34 25
Fulham 21 6 6 9 32:37 24
Sunderland 20 5 7 8 21:26 22
Newcastle 20 5 5 10 26:37 20
Aston Villa 21 4 7 10 17:41 19
Southampton 20 4 6 10 27:38 18
Wigan 21 5 3 13 22:39 18
Reading 21 2 7 12 23:40 13
Q.P.R. 20 1 7 12 16:36 10
FÓTBOLTI Gestunum frá Man-
chester var greinilega enn í fersku
minni heimsókn liðsins til Wigan
á síðustu leiktíð. United tapaði þá
sinni fyrstu viðureign í sextán
leikjum gegn Wigan og í kjölfarið
má segja að titillinn hafi byrjað að
renna úr greipum United.
Roberto Mancini, stjóri Man-
chester City, lét hafa eftir sér í við-
tali á dögunum að Robin van Persie
væri helsta ástæða þess að sjö stig-
um munar á grannliðunum á toppi
deildarinnar. Van Persie skoraði
tvívegis líkt og Javier Hernandez,
sem einnig lagði eitt upp, í 4-0 stór-
sigri United.
Sir Alex Ferguson fór fögrum
orðum um framherja sína tvo að
leik loknum.
„Javier Hernandez er marka-
skorari og
refur í teignum. Hæfileikar van
Persie eru einstakir og fyrra mark-
ið hans stórkostlegt. Við bjuggumst
við því að hann yrði lykilleikmað-
ur sem myndi bæta einhverju auka-
lega við okkar leik og það hefur
hann svo sannarlega gert,“ sagði
Ferguson.
Þetta er annar leikurinn í röð þar
sem United hélt hreinu og sýndu
liðsmenn United á tíðum meistara-
takta.
Lærisveinar Mancini hjá City
unnu skylduverk þegar Stoke mætti
í heimsókn. Þótt liðsmenn Tony
Pulis geri stórliðunum oftar en
ekki skráveifu á heimavelli sínum
er liðið einatt sem lamb í höndum
stórliðanna á útivelli. Sú var raun-
in í Manchester þar sem Englands-
meistararnir unnu 3-1 sigur.
Roberto Mancini hefur lagt
áherslu á það í viðtölum undan-
farnar vikur að framherjar liðs-
ins nýti færin betur og minnti á
það í viðtali eftir leik.
„Við munum vel að við unnum
deildina á markatölu í fyrra.
Það þarf að skora úr tækifærun-
um sem bjóðast,“ sagði Manc-
ini ósáttur við færanýtinguna
í fyrri hálfleiknum. Gylfi Þór
Sigurðsson lagði upp jöfn-
unarmark Tottenham í 3-1
heimasigri á Reading. Horn-
spyrna Gylfa hafnaði á koll-
inum á Michael Dawson sem
skoraði.
„Það var frábært að vera
í byrjunarliðinu, ég er full-
ur sjálfstrausts og hlakka til
þess sem fram undan er,“
sagði Gylfi að leik loknum. Totten-
ham skaust í þriðja sætið en Chel-
sea mætir QPR í kvöld.
Arsenal missteig sig í heim-
sókn sinni til Southampton. Spila-
mennska Arsenal olli vonbrigð-
um líkt og úrslitin. Stigið kom
Southampton upp úr fallsæti þar
sem liðið hefur betri markatölu en
Wigan. kolbeinntumi@365.is
Meistarataktar hjá United
Ekkert lát er á stigasöfnun Manchester United sem tók Wigan í kennslustund í gær. Robin van Persie heldur
áfram að raða inn mörkunum í rauða búningnum og er markahæstur í deildinni með sextán mörk.
Á FLUGI Javier Hernandez fór á kostum gegn Wigan í gær og var að öðrum ólöst-
uðum maður leiksins. NORDICPHOTOS/GETTY
VEL FAGNAÐ Gylfi Þór (til
hægri) fagnar marki Michaels
Dawson sem Hafnfirðingurinn
lagði upp. NORDICPHOTOS/GETTY