Fréttablaðið - 08.01.2013, Síða 4
8. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
232,1742
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,14 129,76
207,41 208,41
168,31 169,25
22,561 22,693
23,008 23,144
19,744 19,860
1,4688 1,4774
197,14 198,32
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
07.01.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Kaffi á könnunni og næg bílastæði
b ó k a b ú ð
f o r l a g s i n s
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA
kl. 10–18
OG LAUGARDAGA
kl. 10–14
Fiskislóð 39
STJÓRNSÝSLA Kostnaður við fram-
kvæmdir í þjóðgarðinum á Þing-
völlum fór talsvert fram úr áætl-
un á nýliðnu ári, fyrst og fremst
vegna göngubrúar niður Kára-
staðastíg.
„Sprungan sem þar leyndist
og þurfti að brúa er mun stærri
en búist var við þegar upphafleg
áætlun um verkið var gerð. Þá
var burðarvirki brúarinnar ekki
fullhannað þegar framkvæmdir
hófust og reisa þurfti stoðveggi
við báða enda hennar. Vinna verk-
fræðistofunnar Eflu fór einnig
langt fram úr áætlun,“ segir í
fundargerð Þingvallanefndar sem
leita þurfti eftir 13 milljóna króna
aukafjárveitingu vegna umfram-
keyrslunnar. - gar
Þjóðgarður fram úr áætlun:
Aukamilljónir í
gljúpa sprungu
ALMANNAGJÁ Jarðfallið var dýrara en
talið var.
HAGTÖLUR Árið 2010 var heimsafli
89,5 milljónir tonna og dróst saman
um eina milljón tonna frá árinu
2009, samkvæmt tölum sem Hag-
stofa Íslands hefur eftir Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna (FAO).
„Kyrrahafið gaf mestan afla og
stærsta einstaka fisktegundin var
perúansjósa. Asía var sú heimsálfa
sem átti stærsta hlutann í heims-
aflanum, næst kom Ameríka og
svo Evrópa,“ segir á vef Hagstof-
unnar. Fram kemur að Kínverjar
hafi árið 2010 veitt allra þjóða mest
og að Norðmenn, sem voru í 10.
sæti heimslistans, hafi veitt mest
allra Evrópuþjóða.
„Íslendingar veiddu næstmest
allra Evrópuþjóða en voru í 19.
sæti heimslistans, sama sæti og í
fyrra.“ - óká
Veiddum næstmest í Evrópu:
Kínverjar mesta
fiskveiðiþjóðin
STJÓRNSÝSLA Fjármálaeftirlitið
hefur gert margvíslegar athuga-
semdir við starfsemi Stafa lífeyris-
sjóðs. Í gær voru birtar niðurstöður
athugunar á starfsháttum sjóðsins.
FME gerir meðal annars alvarleg-
ar athugasemdir við fjárfestingar og
flokkun Stafa á óskráðum verðbréf-
um. Þá lítur FME alvarlegum augum
að stjórnendum Stafa hafi ekki verið
kunnugt um stöðu hans í óskráðum
fjárfestingum.
Þar að auki bendir FME á að Staf-
ir hafi ekki gætt nægilega vel að
veðhlutföllum auk þess sem stofnun-
in gerir athugasemdir við einstakar
lánveitingar, flokkun verðbréfa og
sundurliðun fjárfestinga.
Athugun FME var gerð með vísan
til laga um skyldutryggingu lífeyr-
issjóða og laga um opinbert eftirlit
með fjármálastarfsemi.
Stafir sendu frá sér fréttatilkynn-
ingu í gær þegar niðurstöður FME
lágu fyrir. Þar kemur fram að Staf-
ir muni bregðast við athugasemdum
FME og að raunar hafi þegar verið
bætt úr ákveðnum vanköntum. - mþl
Margvíslegar athugasemdir gerðar við starfshætti Stafa:
FME snuprar Stafi lífeyrissjóð
HÖFÐATORG Fjármálaeftirlitið athug-
aði á síðasta ári starfshætti Stafa en
stofnunin hefur eftirlit með lífeyris-
sjóðum landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUFRÉTTIR
Óku dópaðir
Tveir ökumenn voru handteknir í
umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum
fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.
Báðir viðurkenndu mennirnir að hafa
verið undir áhrifum kannabisefna.
Annar þeirra var próflaus. Báðir voru
látnir lausir að afloknum sýna- og
skýrslutökum.
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
Hæg suðlæg eða breytileg átt.
SUÐLÆGAR ÁTTIR verða ríkjandi í vikunni. Fremur hæg suðvestanátt í dag og skúrir
en gengur í stífa suðaustan átt með rigningu sunnan og vestan til í nótt. Áfram fremur
milt, einkum syðra.
3°
7
m/s
4
8
m/s
4°
8
m/s
7°
9
m/s
Á morgun
10-18 m/s S- og V-til, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
4°
2°
5°
6°
2°
Alicante
Basel
Berlín
16°
5°
5°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
7°
8°
9°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
5°
5°
21°
London
Mallorca
New York
11°
18°
7°
Orlando
Ósló
París
27°
-1°
8°
San Francisco
Stokkhólmur
15°
1°
6°
3
m/s
7°
5
m/s
4°
7
m/s
3°
10
m/s
2°
5
m/s
3°
7
m/s
2°
6
m/s
6°
5°
6°
4°
3°
VIÐSKIPTI Óvissa um afdrif verð-
bréfakaupaáætlunar Seðlabanka
Bandaríkjanna og tölur sem sýna
að atvinnuleysi stendur í stað í
landinu eru taldar ástæður verð-
falls á olíu við opnun markaða í
gær.
Eftir miðjan dag rétti olíuverð-
ið svo úr kútnum og er enn talið
gæta áhrifa fregna frá því í síð-
ustu viku af hráolíubirgðasam-
drætti vestra. Við dagslok hafði
verð á hráolíutunnu hækkað um
10 sent, í 93,19 dollara. - óká
Markaðir í byrjun vikunnar:
Smá hækkun á
tunnuverði olíu
HEILBRIGÐISMÁL Snemmbær kyn-
þroski stúlkna tengist aukinni
áhættu á dauðsföllum af völdum
hjarta- og æðasjúkdóma síðar
á lífsleiðinni. Tengslin eru til
staðar óháð yfirþyngd og offitu
kvennanna á fullorðinsaldri.
Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn Cindy Mari Imai, doktors-
nema í matvæla- og næringar-
fræði við Háskóla Íslands (HÍ).
Niðurstöður rannsóknarinnar
ríma við aðrar erlendis frá, sem
hafa sýnt fram á tengsl snemm-
bærs kynþroska við áhættuþætti
hjarta- og æðasjúkdóma, svo sem
háþrýstings og offitu.
Alls létust 94 konur af þeim
rúmlega þúsund sem tóku þátt
af völdum sjúkdómanna frá upp-
hafi rannsóknarinnar til ársins
2009. Þar af létust 45 af völdum
kransæðasjúkdóma. Séu þær
tölur bornar saman við þær konur
sem ekki höfðu náð kynþroska
við tólf ára aldur kemur í ljós að
eftir því sem konurnar urðu fyrr
kynþroska þeim mun meiri líkur
voru á að þær létust úr hjarta-
eða æðasjúkdómum síðar á lífs-
leiðinni.
Áhættuhlutfall fyrir dauðsföll
af völdum sjúkdómanna var 1,9
fyrir þær konur sem náðu kyn-
þroska við 11 til 12 ára aldur og
2,1 fyrir þær sem urðu kynþroska
fyrir 11 ára aldur.
Sterkari tengsl fundust þegar
skoðuð voru áhættuhlutföll fyrir
dauðsföll af völdum kransæða-
sjúkdóma sérstaklega, þá var
áhættuhlutfall 3,2 fyrir kyn-
þroskaskeið fyrir 11 ára aldur.
Athygli vekur að tengslin voru
til staðar algjörlega óháð þyngd-
arstuðli þátttakenda við fullorð-
insaldur.
Cindy hefur kynnt niðurstöð-
ur rannsóknar sinnar á nokkrum
ráðstefnum undanfarið, meðal
annars á nýyfirstöðnu málþingi í
HÍ um rannsóknir í heilbrigðis-
og lífvísindum. sunna@frettabladid.is
Snemmbær kynþroski
eykur sjúkdómahættu
Eftir því sem stúlkur verða fyrr kynþroska eru meiri líkur á að þær látist af völd-
um hjarta- og æðasjúkdóma á fullorðinsaldri, samkvæmt nýrri rannsókn. Offita
og ofþyngd hafa ekki áhrif. Rannsóknin náði til yfir þúsund íslenskra kvenna.
AUKIN HÆTTA Því fyrr sem stúlkur verða kynþroska þeim mun meiri líkur eru á að
þær deyi úr hjarta- og æðasjúkdómum síðar á lífsleiðinni. Þyngd og offita hefur ekki
áhrif á tengslin.
Rannsókn Cindy náði til 1.035 kvenna sem fæddar voru á árunum 1921 til
1935 og innrituðust í Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar á árunum 1968
til 1991.
Mælingum skólaheilsugæslu á hæð og þyngd frá 8-13 ára aldurs
var safnað úr sjúkraskrám. Þá voru hæðarbreytingar á milli ára einnig
metnar og svokölluð hámarkshæðarbreyting notuð sem viðmið á þróun
og tímasetningu kynþroska. Snemmbær kynþroski stúlkna var svo borinn
saman við dauðsföll af völdum hjarta- og æðasjúkdóma.
Hæð og þyngd notaðar sem viðmið
JAFNRÉTTISMÁL Guðbjartur Hann-
esson velferðarráðherra hefur
skipað aðgerðahóp stjórnvalda og
samtaka aðila vinnumarkaðarins
til þess að vinna að launajafnrétti
kynjanna. Hópurinn er skipaður
til tveggja ára.
Verkefni aðgerðahópsins eru
meðal annarra að vinna að sam-
ræmingu rannsókna á kyn-
bundnum launamun, annast gerð
áætlunar um kynningu jafn-
launastaðals og sinna upplýsinga-
miðlun og ráðgjöf um launajafn-
rétti kynjanna til stofnana og
fyrirtækja.
Formaður hópsins er Birna
Hreiðarsdóttir lögfræðingur.
- shá
Starfar næstu tvö ár:
Aðgerðahópur
um launajafn-
rétti settur á fót