Fréttablaðið - 08.01.2013, Side 36
8. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGURMENNING
TÓNLEIKAR ★★★ ★★
Verk eftir yngstu tónskáldin
íslensku
Caput hópurinn
KALDALÓNI HÖRPU,
5. JANÚAR
Kafli 26 var yfirskrift tónleika
Caput hópsins á laugardaginn,
enda nú hafið 26. starfsárið. Mér
sýndist líka mörg tónskáldanna
sem áttu verk á tónleikunum vera
á svipuðum aldri. Áherslan var
öll á yngri kynslóðina.
Fyrsta tónsmíðin var Qui toll-
is eftir Árna Frey Gunnarsson.
Hún var fyrir tvo píanóleikara
og tvo slagverksleikara. Byrjun-
in var undurveik, eins og fjarlæg-
ar kirkjuklukkur. En framvind-
an var snörp, klukknahljómarnir
mögnuðust upp í kraftmikinn
hápunkt sem var afar áhrifamik-
ill. Þetta var glæsileg tónlist.
Portraits and Interludes eftir
Finn Karlsson, fyrir fiðlu, píanó
og selló, var líka skemmtilegt.
Tónlistin var fjölþætt og marg-
breytileg, ýmist innhverf og
dreymandi eða hröð og frískleg.
Hún hefði þó komið mun betur út
ef hún hefði verið almennilega
flutt. Fiðluleikari hópsins var í
áberandi slæmu formi. Leikurinn
var ómarkviss og hjáróma. Selló-
leikurinn var ekki heldur neitt til
að hrópa húrra fyrir.
Svipaða sögu er að segja um
flutninginn á annars ágætri tón-
smíð eftir Halldór Smárason sem
bar heitið Grunnavík. Hún var
fyrir óbó og strengjatríó. Þetta
var mögnuð tónlist. En flutn-
ingurinn var svo kauðslegur og
ómarkviss að það fór um mann á
tímabili.
Síðasta verk fyrir hlé var
Flightened eftir Þórunni Grétu
Sigurðardóttur. Flightened er
blanda af orðunum flight og
frightened. Flughræðsla var
greinilega miðpunkturinn. Með
verkinu var sýnt myndband af
flugtaki. Steinunn Soffía Skjens-
tad söng hin hefðbundnu orð flug-
freyju þegar hún fer yfir öryggis-
atriðin í upphaf ferðar. Tónmálið
var ógnandi og hugmyndin var í
það heila skemmtileg. Því miður
var jafnvægi ólíkra radda ekki
alveg eins og best verður á kosið.
Pákudrunurnar voru t.d. heldur
yfirgnæfandi og áttu það til að
drekkja tilfinningaþrungnum
söngnum.
Eftir hlé var komið að The End
– Old Tape eftir Hauk Þór Harð-
arson. Verkið var flutt af heilli
kammersveit og var býsna íburð-
armikið. Það var á margan hátt
glæsilegt að gerð, viðburðaríkt
og spennuþrungið. Hins vegar
var tónlistin stundum dálítið yfir-
þyrmandi, jafnvel langdregin.
Það hefði mátt skera hana aðeins
niður. Sumt var óþarflega endur-
tekningasamt.
Röda Rummet, fjögur ljóð úr
skáldsögu Strindbergs, voru aftur
á móti áhrifamikil. Tónlistin var
eftir Petter Ekman og Elísabet
Einarsdóttir söng afar fallega.
Einnig hér var þó jafnvægið á
milli hljómsveitar og söngkonu
ekki alveg rétt. Gátu hljóðfæra-
leikararnir ekki spilað aðeins
veikar?
Að lokum var flutt verk sem
bar heitið Krónan og var eftir
Hafdísi Bjarnadóttur. Tónmál-
ið var reiknað út frá mismun-
andi gengisvísitölum, sem var þó
engan veginn augljóst! Í rauninni
gat tónlistin verið um hvað sem
var. Það skipti heldur ekki máli.
Aðalatriðið var að hún var frá-
bærlega samansett. Hún var stíl-
hrein og kraftmikil, með dáleið-
andi niðurlagi sem var sérlega
fallega útfært af hljóðfæraleik-
urunum.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Líflegir tónleikar með
efnilegum tónskáldum. Flutningurinn
var þó ekki alltaf sem bestur.
Flott tónlist, misjafn flutningur
Einar Kárason, rithöfundur og
sagnamaður, stígur á stokk í Sögu-
lofti Landnámssetursins í Borgar-
nesi á laugardag og segir þar sög-
una af Sturlu Þórðarsyni, einu af
höfuðskáldum miðalda í Norður-
álfu. Sturla var einmitt í forgrunni
í nýjustu skáldsögu Einars, Skáld,
sem kom út fyrir jól og var smiðs-
höggið á þríleik sem sækir efnivið
í Sturlungu. En hverju mega áhorf-
endur eiga von á, einfaldri endur-
sögn á bókinni?
„Að kjarna er þetta sama
sagan,“ segir Einar, „en með þeim
mun sem er á rituðum texta og töl-
uðum; þetta er munnleg frásagnar-
list. Ég segi söguna í fyrstu pers-
ónu, bregð mér í hlutverk Sturlu
en þannig getur maður líka viðr-
að hvað hann er að hugsa og hvað
leitar á hann.“
Einar hefur áður haldið sagna-
kvöld í Landnámssetrinu auk þess
að kenna munnlega frásagnar-
list. Spurður hvað þetta form hafi
umfram hið ritaða mál nefnir hann
persónulega nánd.
„Það myndast persónulegur
„kontakt“ við áhorfendur. Ég hef
mjög gaman af því að standa og
segja frá þegar maður fær við-
brögð frá fólk. Ég hef líka feikn-
arlega gaman af því að sitja
og hlusta á góða menn segja
sögur, ekkert er jafn konunglega
skemmtilegt.“
Einar segir sagnamennskuna
vísast hafa verið það sem leiddi
hann upphaflega inn í bókmenntir.
„Ég vildi segja sögur eins og ég
heyrði fólk í kringum mig segja
þær; leigubílstjórar sem unnu
með pabba og voru sumir miklir
listamenn og konurnar sem komu
í saumaklúbb til mömmu og upp-
tendruðu stofuna með sögum
sínum. Ég vildi ekki síður verða
eins og þetta fólk en Halldór Lax-
ness og svoleiðis karlar.“
Frásagnarstílinn telur hann
vera sinn eigin. „En auðvitað mót-
aður af öllum þeim sem maður
hefur heyrt segja sögur í gegnum
tíðina og hrifist af. Að segja sögu
er auðvitað meira en að segja það.
Það má vera að sumum sé þetta
einfaldlega meðfætt en ég held
að það sé ekki reyndin með mig.
Ég var að vísu bullandi frá unga
aldri og vildi láta taka eftir mér
en ég held að það hafi verið mjög
ómarkviss frásagnarlist. En svo
tók maður þetta föstum tökum og
þetta hefur ekki lánast verr en svo
að fólk hefur sótt þessi sagnakvöld
og vill heyra.“
bergsteinn@frettabladid.is
Meira en að segja það
Sturla Þórðarson lifnar við í munnlegri frásögn Einars Kárasonar í nýrri sýningu
sem frumsýnd verður í Landnámssetrinu í Borgarnesi á laugardag.
EINAR KÁRASON Segir hina munnlegu sagnalist hafa leitt sig upphaflega í bókmenntir og minnist leigubílstjóra sem unnu með
föður hans og kvenna í saumaklúbb móður hans sem voru miklir listamenn á sviði sagnamennsku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell Tropical Fruit lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en
lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að
reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Þeir sem
reykja ekki eiga ekki að nota lyfjatyggigúmmíið. Skammta skal ákvarða út frá því hversu háður nikótíni
einstaklingurinn er. Mælt er með 4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir einstaklinga með mikla nikótínþörf og fyrir þá sem
ekki hefur tekist að hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Tyggja skal eitt stk við reykingaþörf þar til finnst
sterkt bragð. Þá skal láta það hvíla milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal tyggja aftur.
Þetta skal endurtaka í 30 mín. Venjuleg notkun er 8-12 stk, þó ekki fleiri en 15 stk af 4 mg og 25 stk af 2 mg
lyfjatyggigúmmíi á sólarhring. Meðferðarlengd er einstaklingsbundin en skal í flestum tilfellum standa í a.m.k.
3 mánuði, skal þá draga smám saman úr notkun lyfjatyggigúmmísins. Meðferð skal hætt þegar neyslan er
komin niður í 1-2 lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Venjulega er ekki mælt með notkun lyfsins lengur en í eitt ár.
Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Geyma
skal afgangs lyfjatyggigúmmí þar sem reykingaþörf getur skyndilega komið upp aftur. Nota má lyfið til að lengja
reyklaus tímabil og draga þannig úr reykingum. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur
skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin til þess, þó ekki
síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9
mánaða meðferð. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota lyfið ef þú: hefur
nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjartasjúkdóma, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan
skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi. Einstaklingum með
gervitennur og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform
nikótínlyfja. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfið. Athuga ber að lyfið inniheldur natríum
og bútýlhýdroxýtólúen (E321 Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá
notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn af nikótíni er
hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer
Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Ég segi söguna í
fyrstu persónu, bregð mér
í hlutverk Sturlu en þannig
getur maður líka viðrað
hvað hann er að hugsa og
hvað leitar á hann.