Fréttablaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 6
9. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | Þótt kynferðisbrot gegn börnum séu fyrnd að lögum er unnt að dæma sakborning til greiðslu miskabóta til fórnar lamba, liggi sekt fyrir. Til eru dæmi þess hjá Hæstarétti. Sakborningur er þá sýknaður af refsikröfu en er dæmdur til greiðslu miska- bóta. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við laga- deild Háskól- ans í Reykja- vík, skrifaði ýtarlega grein- argerð árið 2007 um breytingar á fyrningartíma hegningarlaga er varða kynferðis brot gegn börnum. Hún segir lagabreyt- ingarnar hafa verið um margt athyglisverðar. „Frá upphafi hegningarlaga hefur það tíðkast að öll brot fyrnast nema þau brot sem geta varðað ævilöngu fangelsi. Engin kynferðisbrot gegn börnum geta haft í för með sér svo þunga refsingu. Svo hefur það verið okkar refsipólitíska stefna að fækka ófyrnanlegum brotum,“ segir hún. „Þess vegna fór þessi ákvörðun þvert á þessa stefnu og vakti mikla athygli.“ Svala bendir þó á að fyrning kynferðisbrots leiði einungis til þess að ríkið geti ekki höfðað mál á hendur gerandanum til að fá hann dæmdan í refsingu. „Það þýðir ekki að viðkom- andi sé saklaus. Það þýðir ein- göngu að ekki er lengur heimilt að refsa honum,“ segir hún. „Ef mál er höfðað fyrir kynferðis- brot sem er fyrnt og hægt er að sanna að viðkomandi hafi framið það, er hann sekur um verknaðinn en sýknaður af refsi- kröfunni.“ ASKÝRING | 6 KARL VIGNIR ÞORSTEINSSON AFHJÚPAÐUR BARNANÍÐINGUR Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Dreglar og mottur á frábæru verði! Margar stærðir og gerðir Breidd: 1 metri Verð pr. lengdarmeter Ódýrar mottur 40x60 cm frá kr. PVC mottur 50x80 cm1.490 Breidd: 66 cm erVerð pr. lengdarmet 66x120 cm kr 2.790 100x150 cm kr 4.990 Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Vestmannaeyjum NÁMSKEIÐ Á VORÖNN 2013 Sjálfsheilun í gegnum orkustöðvarnar 21. jan - 6. apr Heilunarnámskeið grunnnámskeið 22. jan - 9. apr Sjálfsheilun í gegnum nýju orkustöðvarnar 23. jan - 20. apr Atlanis 17. jan - 27. jan www.nyjaljos.is nyjaljos@nyjaljos.is s: 699 7099 og 615 5710 Nýja Ljós einnig á facebook „Við fórum með stráknum upp til karlsins og földum okkur þegar hann opnaði hurðina. Þá stóð hann nakinn með handklæði utan um sig. Þeir fara að tala saman og þá stökkvum við vinur minn á hann, handklæðið dettur af honum og við setjum hann á stól og bindum hann. Hann verður ógeðslega hrædd- ur, strákurinn brjálaðist og sagði honum að staðfesta það sem karl- inn hefði gert honum. Hann viður- kenndi allt. Þá verðum við alveg brjáluð og byrjum að lemja hann og rústuðum öllu í íbúðinni hans. Við börðum hann samt ekki illa, það sást ekkert á honum.“ Svo lýsir Hrönn Sveins dóttir kvikmyndagerðarkona reynslu sinni á nýársnótt árið 1994. Hún og vinur hennar, þá sautján ára ung- lingar, hittu ungan mann í miðborg Reykjavíkur sem sagði þeim frá ofbeldi sem hann hafði orðið fyrir af hálfu Karls Vignis Þorsteins- sonar í fjölda ára. Hún greindi frá atvikinu á Facebook eftir umfjöll- un Kastljóss á mánudagskvöld, þar sem Karl játaði að hafa níðst kyn- ferðislega á allt að fimmtíu börnum undan farin fjörutíu til fimmtíu ár. Ekki beinlínis löglegt Hrönn og vinur hennar fóru með drengnum heim til Karls bundu hann við stól og létu hann játa skrif- lega að hafa misnotað drenginn og fjölda annarra barna og unglinga. Þau ræddu aldrei við lögreglu. „Við sögðumst ætla að fara með þetta allt til löggunnar, hann færi í fangelsi og við myndum aldrei sjá hann aftur. En eftir á að hyggja urðum við hrædd við það sem við gerðum, því það var nú ekki bein- línis löglegt,“ segir hún. „Þetta var svo skrýtið allt saman. Maður hugs- aði með sér að svona maður, sem hafði viðurkennt allt, að það væri örugglega búið að taka hann fyrir löngu,“ segir Hrönn. „En þegar ég sá Kastljósið leið mér hræðilega að hafa ekki gert eitthvað annað og meira en að pína hann og skemma íbúðina hans. Við hefðum auðvitað átt að fara til lögreglunnar.“ Krakkarnir yfirgáfu íbúð Karls Vignis á nýársmorgun og skildu hann eftir í stólnum, bundinn og nakinn. Hann lagði aldrei fram kæru vegna næturinnar, sem Hrönn lýsir sem afar undarlegri. „Við skildum hann eftir svona í íbúðinni, allt í rúst. Fórum með játninguna en gerðum aldrei neitt við hana. Við þorðum ekki að fara með hana til löggunnar því við höfð- um auðvitað hegðað okkur eins og bjánar. En við héldum að við hefðum hrætt úr honum líftóruna.“ Átti miklar sakir við hann Drengurinn sagði Karl hafa boðið sér húsnæði og peninga eftir að hafa lent á götunni mörgum árum áður. Hann hefði misnotað drenginn öll þau ár sem hann dvaldi hjá Karli. „Strákurinn átti svo miklar sakir við hann og fer að rifja upp allt sem hann hafði gert honum – byrjar að tala um aðra krakka líka – og karl- inn viðurkennir allt. Eins og sást í Kastljósinu er hann ekkert ófús að viðurkenna þessa hluti og verður voða aumur,“ segir hún. „Við verð- um rosalega reið, erum auðvitað bara 17 ára unglingar, og ég fer inn í íbúðina og sný öllu við í stofunni. Ég eyðilagði ekkert en sneri öllum myndum við, öllum blómapottum og húsgögnum. Ég heyri bara í þeim og labba um til að sjá hvað ég get gert meira. Svo fór ég reglulega inn í borðstofu og öskraði meira á hann.“ Þvinguðu fram játningu Hún segir Karl Vigni hafa verið afar óttasleginn. „Hann var bara bundinn við stól og var að drep- ast úr hræðslu. En við bara nutum þess. Strákurinn las líka yfir honum hvað hann væri mikið ógeð og rétt- ast væri að drepa hann. Hann viður- kenndi að hafa misnotað fullt af öðrum krökkum,“ segir hún. „Við fundum einhverjar möppur inni í skáp hjá honum með fullt af nöfnum með einhverjum krökkum. Við þvinguðum hann til að skrifa undir játningu og skrifa niður fullt af nöfnum á börnum sem hann hafði misnotað, og hann gerði það. En hann var náttúrulega drullu- hræddur, allsber í stól.“ Hún segir það hafa komið sér á óvart að Karl Vignir hefði haldið áfram að misnota börn. „Hálfur bærinn vissi af þessu, þar á meðal ég, en samt gerðist ekk- ert. En á þessum árum hefði lögg- an sennilega bara kært okkur. Við vorum bara krakkabjálfar og þetta voru orð gegn orði og játning sem var þvinguð fram. En ég sá aldrei eftir þessu. Mér leið aldrei illa yfir því að hafa gert þetta. Það eina erfiða var að hafa hitt svona ógeðs- legan mann. Þetta skrímsli sem hann sagðist sjálfur vera.“ Þrjú ungmenni beittu Karl Vigni líkamlegu og andlegu ofbeldi heila nótt: Bundu Karl Vigni við stól og píndu Þegar Fréttablaðið náði tali af Karli Vigni um miðjan dag í gær var hann enn ekki búinn í skýrslutöku hjá lögreglu. Hann vildi slíta samtalinu sam- stundis en sagðist þó ekki vera þannig maður sem skellti á fólk. Hvernig líður þér eftir umfjöllun Kastljóss? „Mér líður hryllilega. Og ég skil ekki að það skuli vera hægt að fara inn á heimili fólks með falda myndavél. Er ekki ólöglegt að gera það? En ég ætla ekki að gera neitt í málinu.“ Ertu kvíðinn fyrir skýrslutökunni hjá lögreglu? „Nei, ég er ekki kvíðinn. Ég ætla að koma fram og þar afgreiði ég mín mál.“ Ætlarðu að játa fyrir lögreglu þau brot sem þú hefur framið? „Hvað heldur þú að ég geri? Ég hef þetta ekki lengra. Vertu sæl.“ Lögreglan sótti Karl Vigni klukkan rúmlega þrjú í gærdag til að færa hann til yfirheyrslu. Kveið ekki skýrslutökunni Blindrafélagið ætlar að kanna nánar meðal foreldra og barna innan félags- ins sem kynnu að hafa orðið á vegi Karls Vignis Þorsteinssonar á vettvangi félagsins hvort hann hafi brotið gegn einhverjum börnum á þeim tíma. Komi í ljós ábendingar um að svo hafi verið mun lögreglu gert viðvart. Stjórn Blindrafélagsins ákvað þetta á fundi sínum í gær eftir umfjöllun Kastljóss um brot Karls Vignis, en hann starfaði sem sjálfboðaliði innan félagsins í fjölda ára og sat í nokkrum nefndum innan þess. Í tilkynningu frá félaginu segir að hann hafi þó verið látinn hætta störf- um árið 2006 eftir að Ragnar Bjarnason tónlistarmaður greindi félaginu frá ásökunum og alvarlegum misgjörðum sem tengdust Karli. Sérstaklega var hugað að foreldrum blindra og sjónskertra barna, en ekkert kom fram sem vakti grunsemdir um að Karl hefði brotið gegn börnum á vettvangi félagsins. ➜ Blindrafélagið hefur skoðun eftir Kastljósið Breytingarnar sem Alþingi samþykkti árið 2007: 1. Alvarlegustu kynferðisbrotin gegn börnum fyrnast aldrei, en áður var fyrn- ingarfrestur ýmist tíu eða fimmtán ár. Lögum samkvæmt eru alvar legustu brotin nauðgun á barni og kynferðismök við blóðskylt barn eða barn í nánum tengslum við geranda. Svo dæmi sé tekið fyrnist kynferðisleg áreitni sem faðir sýnir dóttur en ekki ef faðirinn hefur haft kynferðismök við dóttur sína. 2. Upphaf fyrningarfrests allra annarra kynferðisbrota gegn börnum er miðað við 18 ára afmælisdag barnsins en miðaðist áður við 14 ára afmæli. 3. Refsingar fyrir tiltekin kynferðisbrot gegn börnum voru þyngdar til að lengja fyrningarfrest þeirra. Nauðgun á barni fyrnist aldrei Fyrnd mál hafa skapað bótaskyldu Hæstiréttur hefur dæmt miskabætur vegna kynferðisbrota gegn börnum þó að málin séu fyrnd, að sögn dósents í lögum. Lagaákvæðum um fyrningu breytt árið 2007. SVALA ÍSFELD ÓLAFSDÓTTIR Við hefðum auðvitað átt að fara til lög- reglunnar. Hrönn Sveinsdóttir kvikmyndagerðarkona Karli Vigni Þorsteinssyni var veitt viðurkenning fyrir störf sín fyrir Áskirkju árið 2011 þótt hann hafi verið leystur frá störfum árið 2007 í kjölfar umfjöllunar um níðingsverk hans. Í yfirlýsingu sem sóknarprestur, sóknarnefnd og starfsfólk Áskirkju sendi frá sér í gær segir að hann hafi aldrei komið að starfi með börnum og unglingum í Áskirkju. „Þátttaka hans í starfi sem sjálf- boðaliði við Opið hús aldraðra hófst í kringum árið 2003 með aðstoð í eldhúsi. Hann varð síðar hluti af hópi sjálfboðaliða í heimsókna- þjónustu í söfnuðinum. Í kjölfar umfjöllunar í fjöl- miðlum árið 2007 um Karl Vigni var hann leystur frá störfum sem sjálfboðaliði og hefur síðan ekki gegnt neinum trúnaðarstörfum fyrir kirkjuna. Á Evrópuári sjálf- boðastarfs í kirkjunni 2011 var þjóðkirkjusöfnuðum boðið að veita sjálfboðaliðum viðurkenningu fyrir störf sín. Í Áskirkju voru 30 ein- staklingum veittar slíkar viðurkenn- ingar, og var Karl Vignir í þeim hópi. Í ljósi þess sem fram hefur komið í umfjöllun Kastljóss nú, og Karl Vignir játaði þar á sig, er augljóst að sú ákvörðun var röng,“ segir í yfir- lýsingu frá Áskirkju. „Hugur okkar er hjá þeim sem Karl Vignir hefur beitt ofbeldi.“ Mistök að heiðra Karl Vigni fyrir störf við Áskirkju KARL VIGNIR ÞORSTEINSSON Hann starfaði meðal annars á Hótel Sögu þar sem nokkur brota hann áttu sér stað. Sunna Valgerðardóttir sunna@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.