Fréttablaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 25
KYNNING − AUGLÝSING Fyrirtækjaráðgjöf9. JANÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR 3 Kontakt er elsta og stærsta sjálfstæða fyrirtækja ráðgjöf landsins á sínu sviði og hefur veitt ráðgjöf við kaup, sölu eða sameiningu mjög margra fyrir tækja. Hjá Kontakt, sem stofn- að var í núverandi mynd árið 2004, starfa þrír viðskipta- eða rekstrar- hagfræðingar og þrír lögfræðing- ar með mikla þekkingu á atvinnu- lífinu og rekstri fyrirtækja. Gunnar Svavarsson hefur starf- að hjá Kontakt frá því í ársbyrjun 2008 en hann hefur langa reynslu úr at vinnulíf inu sem fram- kvæmdastjóri eða forstjóri þekktra fyrirtækja, svo sem Hampiðjunn- ar, Icelandic Group og Icebank. Blaðið leit við í upphafi nýs árs. Nú hefur Kontakt verið áberandi í fyrirtækjaráðgjöf, bæði í uppsveifl- unni og eftir hrunið. Hvaða áhrif hefur niðursveifla undanfarinna ára haft á starfsemi Kontakt? Kontakt hefur alltaf lagt áherslu á meðalstór fyrirtæki og verið leið- andi á þeim markaði. Þetta hefur komið sér vel eftir hrunið því þessi fyrirtæki hafa f lest staðið ágæt- lega. Það hefur vissulega verið samdráttur í veltu hjá fjölda fyrir- tækja, en það hefur leitt til þess að eigendur hafa séð tækifæri í kaup- um á eða sameiningu við önnur fyrirtæki til að auka arðsemina. Ég þekkti ágætlega til Kontakt áður en ég hóf störf þar og hafði gott álit á fyrirtækinu, en það hefur samt komið mér skemmtilega á óvart hve tryggir viðskiptavinirnir eru, og þeir sem einu sinni hafa haft reynslu af Kontakt virðast helst ekki leita annað. Staðreyndin er sú að undanfarin ár hafa verið býsna lífleg og síðasta ár með betri árum Kontakt. Sú staðreynd að umsvif ykkar á síðasta ári voru þetta mikil þýðir væntanlega að einhverjir hafa getu til að kaupa fyrirtæki! Við höfum aldrei haft eins marga kaupendur og eftir hrun og eru það jafnt fjársterkir ein- staklingar á ferð og fyrirtæki sem vilja bæta við sig. Ástandinu núna má lýsa á þann hátt að eftir- spurnin eftir góðum fyrirtækj- um er snöggtum meiri en fram- boðið, og með það í huga vildum við gjarnan sjá enn meira úrval góðra fyrirtækja inni á borði hjá okkur. Fjármagnseigendur vita að það eru fáir möguleikar í stöð- unni til ávöxtunar og fjárfesting í arðbærum rekstri er að okkar mati mest spennandi kosturinn í þeim efnum. Eru bankarnir að selja skuldsett fyrirtæki sem þeir hafa tekið yfir? Nei, í raun er það ekki, allavega verðum við lítið vör við það. Kontakt sá um sölu á einu fyrirtæki fyrir Arion banka á síðasta ári, en annars eru það eigendur og áhuga- samir kaupendur sem leita beint til okkar. Fyrirtækin sem leita til okkar með sölu eru alls ekki skuld- ug upp fyrir haus, heldur yfirleitt góð fyrirtæki sem eigendur eru til- búnir að selja. Fyrir því geta verið margar ástæður, svo sem aldur eiganda eða löngun að breyta til, og þá gerist það líka oft að menn vilja styrkja og efla rekstur inn með viðbótarhlutafé eða sameiningu við annað fyrirtæki. Hver er sérstaða Kontakt á markaðnum? Þegar Kontakt hóf starfsemi sína má segja að það hafi verið eina fyrirtækjaráðgjöfin sem sér- hæfði sig í meðalstórum fyrir- tækjum og staðreyndin er sú að Kontakt er langumsvifamest á sínu sviði og hefur því eðlilega bæði flesta kaupendur og seljend- ur. Þá tel ég einnig að hjá starfs- mönnum Kontakt sé að finna mestu reynsluna af viðskiptum með meðalstór fyrirtæki. Við þekkjum markaðinn vel og vitum gjarnan um þá sem eru í söluhugleiðingum, eða eigum í öllu falli auðvelt með að þreifa á eigendum þeirra fyrirtækja sem kaupendur hafa áhuga á. Við að- stoðum kaupendur og seljendur að ná saman og ganga í gegnum það flókna ferli sem fylgir eigenda- skiptum svo báðir séu sáttir við sinn hlut. Sérfræðingar í fyrirtækjaviðskiptum Sérsvið KONTAKT er kaup, sala og sameining meðalstórra fyrirtækja. Guðni Halldórsson og Gunnar Svavarsson fara yfir málin. MYND/VILHELM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.