Fréttablaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 24
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjaráðgjöf MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512- 5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
„Nýlega komum við að tveimur
mjög svo árangursríkum skrán-
ingum félaga, þ.e. Vodafone og
Eimskip en í báðum tilvikum
framkvæmdum við áreiðanleika-
kannanir á félögunum í tengslum
við skráningu þeirra. Framkvæmd
á reiða n lei k a k a n na na hef u r
undan farin ár verið stór hluti af
þeirri þjónustu sem við veitum
viðskiptavinum okkar.
Undanfarið höfum við unnið
að málum sem tengjast orku-
málum og þá ekki síst olíu og
áformum Íslendinga um olíuleit
á Drekasvæðinu,“ segir Halldór
Þorkels son, sviðsstjóri fyrirtækja-
ráðgjafar PwC, um það helsta sem
á döfinni er hjá sviðinu.
„Þetta eru flóknar og umfangs-
miklar framkvæmdir sem kalla á
mikinn undirbúning. Við höfum
haft aðkomu að afmörkuðum
þáttum er tengjast leyfisútboð-
um fyrir opinbera aðila auk þess
að koma að ýmiss konar málum
fyrir ólíka aðila sem munu jafn-
vel koma sér fyrir á Íslandi, ýmist
vegna þjónustu eða þátttöku í
olíu leit og olíu vinnslu. Því til við-
bótar er fyrirsjáanlegur þjónustu-
þáttur við önnur svæði í nálægð
við okkur, til að mynda Græn-
land og Færeyjar. Við erum þeirr-
ar trúar að það verði mikið um að
vera á þessu sviði næstu árin. Í
því sambandi höfum við verið að
byggja upp tengslanet meðal sam-
starfsfélaga okkar í Noregi, Skot-
landi og í Bandaríkjunum – allt til
þess að geta veitt þeim sem koma
að málum bestu mögulegu þjón-
ustu. Annað spennandi verkefni,
sem við erum afar stolt af er fram-
kvæmd á svokallaðri CEO survey
sem framkvæmd er um allan
heim, með þátttöku stjórnenda
félaga úr ólíkum starfsgreinum.
Niðurstöðurnar verða kynntar um
næstu mánaðarmót en íslenskir
stjórnendur er nú í fyrsta skipti að
taka þátt í þessari árlegu könnun
PwC. Nú getum við borið saman
framtíðarsýn íslenskra stjórn-
enda við það sem kollegar þeirra
sjá fyrir sér um allan heim í sam-
bærilegum stöðum.“
Spennandi verkefni
Halldór Þorkelsson, sviðsstjóri fyrirtækjaráðgjafar, PwC segir frá því helsta
sem er á döfinni er hjá sviðinu.
Halldór Þorkelsson sviðsstjóri fyrirtækjaráðgjafar PwC.
Verkefni í tengslum við fyrirtækjaráðgjöf eru mjög fjölbreytt og af
ýmsum stærðargráðum. Meðal þeirra helstu eru eftirfarandi:
Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja
Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja hefur verið mikilvægt
verkefni undanfarin ár enda hefur staða margra íslenskra fyrir-
tækja versnað í kjölfar banka-
hrunsins. Í verkefninu felst
meðal annars þjónusta við
alla hagsmunaaðila sem
koma að rekstri fyrirtækis-
ins, ráðgjöf vegna greiðslu-
erfiðleika, mat á rekstrar-
áætlunum og fjárfestingar-
þörf og endurfjármögnun.
Samningar við lánastofnanir falla líka undir svið fyrirtækja-
ráðgjafar og næmnigreiningar.
Kaup og sala fyrirtækja auk samruna fyrirtækja
Víðtæk þjónusta er veitt vegna kaupa og sölu á fyrirtækjum. Góðir
fjárfestingakostir eru valdir og ráðgjöf er veitt vegna yfirtöku og
fjármögnun kaupa. Verðmat er framkvæmt á fyrirtækjum, rekstri
og eignum og fyrirtækjaráðgjafar hafa gjarnan umsjón með til-
boðs- og samningagerð. Veitt er ráðgjöf varðandi söluferlið sjálft
og samskipti við fjárfesta. Milliganga um samningaviðræður auk
umsjónar með áreiðanleikakönnun eiga líka við hér.
Fjármögnunarráðgjöf
Miklu máli skiptir í rekstri fyrirtækja að það sér rétt fjármagnað
hverju sinni með réttum lánastrúktúr. Fyrirtækjaráðgjöf felur
einnig í sér greiningu á ýmsum fjármögnunarkostum fyrir fyrir-
tæki. Fyrirtækjaráðgjafar leita gjarnan bestu lánskjara hverju
sinni hjá lánastofnunum auk þess að vera í aðstöðu til að tengja
saman fyrirtæki og fjárfesta. Oft hafa þeir aðgang að fjárfestum úr
viðkomandi atvinnugrein sem sjá tækifæri í að fjárfesta í viðkom-
andi fyrirtæki.
Ólík verkefni
fyrirtækjaráðgjafar
Farsæl fjárhagsleg og rekstrarleg endur-skipulagning hagkvæmra fyrirtækja er grundvallarforsenda þess að auka megi
fjárfestingu í hagkerfinu. Aukin fjárfesting
er um leið drifkraftur hagvaxtar og einka-
neyslu og því afar mikilvæg fyrir lífskjör á
Íslandi til framtíðar, að sögn Ágústs Heimis
Ólafssonar, framkvæmdastjóra fjármála-
ráðgjafar Deloitte sem um árabil hefur verið
leiðandi fyrirtæki á sviði fyrirtækjaráðgjaf-
ar hérlendis. „Fjármálaráðgjöf Deloitte veit-
ir fjölbreytta þjónustu til stórra sem smárra
fyrirtækja. Hún snýr meðal annars að fjár-
hagslegri og rekstrarlegri endurskipulagn-
ingu, samrunum og kaupum á fyrirtækjum,
áreiðanleikakönnunum, virðismati, þjónustu
við fjármálamarkaði og fasteignaráðgjöf.“
Endurskipulagning fyrirtækja
Ágúst segir mörg fyrirtæki hafa komið of
skuldsett úr fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu fjármálastofnana og því er þörfin fyrir
hagræðingu mikil, sérstaklega hjá minni og
meðalstórum fyrirtækjum. „Þjónusta okkar
felst meðal annars í að meta stöðu viðkom-
andi félaga út frá sjónarmiðum allra hags-
munaaðila, s.s. hluthafa, lánardrottna, við-
skiptavina, starfsmanna og eftirlitsaðila
á markaði.“ Hann segir niðurstöðu stöðu-
matsins notaða til að draga fram skynsam-
legustu valkosti sem eru í boði til að tryggja
hag þeirra aðila sem eiga hagsmuni sína að
einhverju marki undir arðsömum og fjár-
hagslega sterkum rekstri. „Síðan vinnum
við oft með hagsmunaaðilum að markvissri
innleiðingu og eftirfylgni þeirra lausna sem
valdar eru til að tryggja sem besta niður-
stöðu.“
Samrunar, kaup- og söluaðstoð
Deloitte býður viðskiptavinum alhliða
lausnir og aðstoð við samruna, kaup og
sölu fyrirtækja og rekstrareininga. „Þegar
fyrirtæki vaxa með samruna við önnur
félög þarf að fylgja slíkum viðskiptum eftir
með öflugri breytingastjórnun og stefnu-
mótun þannig að tryggt sé að stjórnendur
hafi skýra og sameiginlega sýn á það hvern-
ig hið sameinaða félag getur náð hámarks-
árangri.“
Áreiðanleikakannanir
„Mikil eftirspurn er eftir óháðum rekstrar-
úttektum á starfsemi og „Red flag“ skoð-
unum. Á þessu ári munum við einnig bjóða
félögum upp á sérstaka „heilsufarsúttekt“
óháð því að um eigendaskipti sé að ræða.
Það er mjög verðmætt fyrir félög að fá slíka
úttekt, m.a. vegna endurfjármögnunar lána
á hagstæðari kjörum.“
Auk ofangreindra þjónustuþátta nefn-
ir Ágúst virðisþjónustu Deloitte þar sem
virði rekstrar eða rekstrareininga er metið.
„Hvers konar virðismat þar sem beitt er
mismunandi aðferðum til að áreiðanleiki
niðurstaðna verði sem mestur er mjög stór
þáttur í okkar þjónustu og verður áfram.“
Fjármálaráðgjöf Deloitte hefur auk þess
undanfarin ár einbeitt sér að sérhæfðri
fasteignaráðgjöf og ráðgjöf til fjármála-
fyrirtækja en Ágúst segir mikinn vöxt vera í
þessum þjónustuþáttum.
„Viðskiptaumhverfið er síbreytilegt og
mikil vægt að bregðast fljótt við og laga þjón-
ustu okkar að óskum viðskiptavina á hverj-
um tíma. Þannig eru þjónustulínur okkar
stöðugt þróaðar til að mæta ýtrustu þörf-
um viðskiptalífsins fyrir hágæða þjónustu.
Lykil atriði allrar okkar ráðgjafar er að veita
viðskipta vinum okkar ávallt betri lausnir og
bjóða ráðgjöf sem kostar aðeins brot af því
virði sem hún skilar viðskiptavinum okkur.“
Virðisaukandi ráðgjöf
Hjá fjármálaráðgjöf Deloitte starfa sextán sérfræðingar sem allir hafa mikla reynslu af ráðgjafastörfum innanlands og erlendis
ásamt því að flestir eru með mastersgráðu á sviði fjármála.
„Fjármálaráðagjöf Deloitte veitir fjölbreytta þjónustu til stórra sem smárra fyrirtækja,“ segir Ágúst Heimir
Ólason, framkvæmdastjóri fjármálaráðgjafar Deloitte. MYND/VALLI