Fréttablaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 46
9. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30
„Það eru þættirnir Body of Proof
sem voru að klárast á Rúv. Ég hef
rosalega gaman af honum, sér-
staklega því aðalpersónan Megan
Hunt er svo ofboðslega kaldhæðin
og ótrúlega fyndin.“
Kristín Linda Kristinsdóttir, formaður list-
hlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur.
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
„Auðvitað hafði gagnrýnin í fyrra
með þessa ákvörðun að gera því
við viljum alltaf gera betur. Þessi
aðferð er notuð víða, í mismunandi
útfærslum, svo það verður gaman
að sjá hvernig þetta kemur út hér,“
segir Hera Ólafsdóttir hjá Rúv.
Tólf lög berjast um sigur í
Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár
en hún er undankeppni Euro vision.
Þau skiptast niður á tvær forkeppn-
ir og komast sex lög áfram í úrslit-
in, mögulega sjö ef mjótt verður á
munum. Í úrslita keppninni gilda
atkvæði þjóðarinnar til helmings
við atkvæði sérstakar dómnefndar,
sem endranær. Sú breyting verður
þó á í ár að þau tvö efstu heyja ein-
vígi sín á milli og verða flutt aftur
þegar úrslitin liggja fyrir. Áhorf-
endur fá þá tækifæri til að kjósa
á milli þeirra tveggja og það sem
sigrar þá kosningu sigrar keppn-
ina. Valið um sigurlagið liggur því
að lokum hjá þjóðinni en á síðasta
ári sköpuðust umræður um vægi
dómnefndar.
Undankeppnirnar fara fram 25.
og 26. janúar í Hörpu og úrslitin
þann 2. febrúar. Það kemur í hlut
Þórhalls Gunnarssonar og
Guðrúnar Dísar Emils dóttur
að kynna keppnina í ár en
bæði stíga þau sín fyrstu
skref í Söngvakeppninni.
Þeim til halds og trausts
verða svo ýmsir gestir sem
kemur í ljós á næstu dögum
hverjir verða. „Það verður
tuttugu mínútna upphitun fyrir
allar keppnirnar þrjár og þar
fara þessir gestir í forsvari,“
segir Hera. Frumflutningur
á lögunum tólf hefst á Rás 2
á mánudaginn. - trs
Þjóðin fær aukið vald í Söngvakeppninni í ár
Þórhallur Gunnarsson og Gunna Dís verða kynnar en bæði eru þau að stíga sín fyrstu skref í keppninni.
KYNNA SÖNGVAKEPPNINA Fjöl-
miðlafólkið Þórhallur og Gunna Dís kynna
Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár en þetta er
frumraun beggja á sviði keppninnar.
Popparinn Davíð Berndsen er flutt-
ur til Íslands eftir að hafa búið í
Porto, næststærstu borg Portú-
gals, í tæpt ár. „Það er gott að vera
kominn heim,“ segir hann. „Ég
vann mikið í íslenskum verkefnum
úti, aðallega að klára plötuna með
Þórunni [Antoníu].“ Þar á hann við
Star-Crossed sem kom út í fyrra.
Hann sér ekki eftir tímanum í
Portúgal. „Það var frábært að vera
þarna. Ég setti mér eitt takmark.
Það var að spila í Casa da Música
og ég náði því. Þetta er ótrúlega
„speisuð“ höll. Það er eins og sci-fi
geimskip hafi lent í borginni.“
Davíð ákvað að flytja heim því
nóg er að gera í tónlistinni, auk þess
sem á hann von á barni 1. maí með
kærustu sinni Guðrúnu Harðar-
dóttur, systurdóttur Bryndísar
Schram. Guðrún aðstoðaði einmitt
við gerð nýs myndbands við lag
kærastans, Game of Change, sem
stílisti og búningahönnuður og við
förðun.
Davíð segir það einnig skipta
máli að Hermigervill, eða Svein-
björn Thorarensen, er fluttur heim
til Íslands eftir dvöl í Hollandi.
Hann segir þá félaga nánast óað-
skiljanlega í tónlistinni og einnig
telja margir að þeir séu bræður,
enda svipaðir í útliti. Þeir eru ein-
mitt með hljóðversaðstöðu hlið við
hlið í Reykjavík og geta því borið
saman bækur sínar með lítilli fyrir-
höfn.
Önnur sólóplata Berndsen, Planet
Earth, er væntanleg í sumar. Þar
kafar hann, ásamt Hermigervli,
enn lengra ofan í „eitís“-tónlistina
en hann gerði á sinni fyrstu plötu,
Lover in the Dark, frá 2009. „Hún
hljómaði eins og hún væri frá ´85
til ´86 en núna erum við að reyna
að láta plötuna hljóma eins og hún
sé frá ´81. Við erum að fara lengra
aftur í tímann,“ segir hann og hlær.
Til þess beita þeir ýmsum meðölum
og nota m.a. gömul kassettutæki og
hljóðgervla við upptökurnar.
freyr@frettabladid.is
Berndsen eignast
barn og býr til plötu
Davíð Berndsen er fl uttur heim eft ir dvöl í Portúgal. Barn og plata eru á leiðinni.
SAMSTARFSMENN Leikstjóri nýja myndbandsins, Þórhallur Gísli Samúelsson,
Hermi gervill og Davíð Berndsen. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Myndbandinu við
lagið Game of
Change var leikstýrt
af Þórhalli Gísla
Samúelssyni og það
var einmitt hann
sem samdi lagið. Til
að ná andrúmslofti
níunda áratugarins
fullkomlega gróf
Þórhallur upp gamla
VHS-vél sem pabbi
hans keypti árið 1983.
Vélin kostaði á sínum
tíma um hálfa milljón
og þótti þá afar
glæsileg.
Tökurnar stóðu
yfir í aðeins sex
klukkustundir en
Davíð Berndsen var
heillengi að klippa
myndbandið, í um
þrjá mánuði, því
hann þurfti eldgamlar
græjur til að geta
klárað eftirvinnsluna.
Tekið upp á gamla VHS-tökuvél
Kvikmyndatökumaðurinn
Christoph „Cico“ Nicoalisen, sem
tók upp Óskarsverðlaunastuttmynd-
ina Toyland, hafði gaman af vinnu
sinni við Falskan fugl sem hófst síð-
asta vor. Myndin verður frumsýnd
25. janúar.
„Það var mjög áhugavert því
aðstæðurnar voru þannig að við
höfðum úr nánast engu fjármagni
að moða. En ég var mjög ánægð-
ur með andann á vinnustaðnum og
hjá öllum þeim sem komu nálægt
þessu verkefni,“ segir Nicolaisen,
sem er staddur hér á landi í nokkra
daga. „Mér finnst svona verkefni að
sumu leyti skemmtilegri en dýrari
myndir. Allir lögðu hjarta sitt og sál
í verkefnið og þess vegna var þetta
mjög gaman.“
Hann kynntist leikstjóranum
Þór Ómari Jónssyni í Suður-Afríku
þegar þeir störfuðu saman við
gerð þýskrar lottóauglýsingar. „Við
urðum vinir og héldum sambandi.
Hann hefur gaukað að mér hug-
myndum og loksins gekk samstarfið
upp með Falskan fugl. Hann er líka
með þá hugmynd í kollinum að taka
upp Beðið eftir Godot en það yrði að
sumri til þegar hægt yrði að mynda
allan sólahringinn.“
Nicolaisen, sem er frá Þýskalandi
en á hálfdanskan föður, hefur mikla
trú á Fölskum fugli. „Mér finnst
handritið frábært. Það er grimmd
í því en við gátum ekki sýnt hana
almennilega án þess að vera með
mikinn pening. Við ákváðum í stað-
inn að skilja eitthvað eftir fyrir
ímyndunarafl áhorfenda og það var
mjög góð aðferð,“ segir hann.
- fb
Mjög góður andi á Íslandi
Óskarstökumaðurinn Christoph Nicolaisen tók upp myndina Falskan fugl.
TÓK UPP FALSKAN FUGL Christoph
Nicolaisen hafði gaman af starfi sínu
við Falskan fugl. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
• K. Stanislavski og M. Chekhov tækni
• Senuvinna og textagreining
• Hugleiðsla og slökun
• og margt fleira...
Leiktækniskólinn er á Facebook, þar má nálgast frekari upplýsingar.
Skráning og fyrirspurnir á leiktaekniskolinn@gmail.com. Aldurtakmark 18 ára.
"Frábært námskeið, ég lærði helling"
- Steindi jr.
Nýtt námskeið frá 21. jan. - 25. feb. 2013.
Kennsla fer fram á mánudögum frá kl. 19.30 - 23.00
Magnús og Þorsteinn eru meðal reyndustu leikara
sinnar kynslóðar með áratuga reynslu af vinnu við
leikhús, kvikmyndir og sjónvarp.
Námskeið í hagnýtri og skapandi leiklist
MÍMIR
símenntun
VOR
ÖN
N 2
013
FUL
LT A
F
SKE
MM
TIL
EGU
M
NÁ
MS
KEI
ÐUM
NÁ
MS
KEI
Ð
FYR
IR
ÞIG
!
Fle
ttu
í g
egn
um
bæ
klin
gin
n
á h
eim
así
ðu
M
ími
s-s
íme
nnt
una
r
w
ww
.mi
mir
.is
Dan
ska
14
TUN
GUM
ÁL:
Fra
nsk
a
Jap
ans
ka
No
rsk
a P
óls
ka
Spæ
nsk
a
Þýs
ka
og
mö
rg
flei
ri t
ung
um
ál
SKE
MM
TIL
EG
FRÍ
STU
ND
AN
ÁM
SKE
IÐ:
Sni
ðte
ikn
ing
og
fat
asa
um
ur
• P
rjó
nan
ám
ske
ið o
g þ
æfi
ng
Skr
aut
ritu
n •
Mi
ðau
stu
rlö
nd
• Ö
rne
fni
á Ís
lan
di
Eur
ovi
sio
n-n
ám
ske
ið •
Ve
rtu
þin
n e
igin
stí
list
i
My
nda
alb
úm
ið í
töl
vun
ni •
Fa
ceb
ook
fyr
ir e
ldr
i bo
rga
ra
Læ
rðu
á G
PS
tæk
ið þ
itt
• T
rjá
- o
g r
unn
akl
ipp
ing
ar
Olíu
má
lun
• V
atn
slit
am
álu
n •
Sk
opm
ynd
ate
ikn
ing
Ná
nar
i up
plý
sin
gar
og
skr
áni
ng
í sí
ma
58
0 1
800