Fréttablaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 22
FÓLK|FERÐIR
Sendum frítt úr vefverslun
www.lindesign.is
Allt að 60% afsláttur
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 26. október 11. janúar
Ferðafélag Íslands
Leyndarmál jökla og fegurð
landslags á myndakvöldi FÍ
EITT FJALL Á MÁNUÐI MEÐ FÍ
Kynningarfundur 10. janúar kl. 20 í sal FÍ Mörkinni 6
– allir velkomnir
Umsjónarmenn verkefnis eru hinir einstöku fjallabræður
Örvar og Ævar Aðalsteinssynir. • Sjá nánar á www.fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
Save the Children á Íslandi
Margrét segir það hafa verið skemmtilega upplifun að vera fjarri íslenskum jólum en
óneitan lega svolítið skrítið. „Guðjón
þurfti að fara til Höfðaborgar vegna
vinnu sinnar og mér fannst ómögulegt
að hafa hann einan þar um hátíðirnar,“
segir Margrét kímin og bætir við að
Marel sé með eitt stærsta verkefni sem
fyrirtækið hefur tekið að sér í Höfðaborg
um þessar mundir. „Það er verið að
endurnýja græjur í fiskvinnslustöð en
verkefnið hófst 2. janúar og tíu til fjórtán
Íslendingar eru við störf.“
ENGAR SKREYTINGAR
Margrét segir að ekki hafi farið mikið
fyrir jólunum í Höfðaborg en þó var
allt lokað á jóladag. „Við komum til
borgarinnar á Þorláksmessu eftir ellefu
tíma flug frá Lundúnum. Ég sá lítið af
skreytingum. Þarna búa mörg þjóðerni,
mismunandi trúarhópar og ættbálkar,“
segir Margrét en þau áttu pantað borð á
veitingahúsi klukkan sex á aðfangadag.
„Við vorum ein á staðnum með fjórtán
manna starfsliði þar sem heimamenn
komu mun seinna í matinn. Við fengum
súpu, dádýr (antilópu) og afar ljúffenga
súkkulaðiköku. Það má geta þess að
veitingahúsin sem við prófuðum voru
fyrsta flokks og matur á góðu verði.“
Þegar Margrét er spurð hvað hafi kom-
ið henni mest á óvart, svarar hún: „Hvað
borgin er nútímaleg og falleg. Við vorum
á helsta ferðamannatíma þar sem nú er
hásumar og ég varð mikið vör við Banda-
ríkjamenn, Breta, Japani og Ástrala. Ég
fór til dæmis í gönguferð með leiðsögu-
manni um borgina ásamt læknishjónum
frá Angóla sem voru í sumarfríi.“
MIKIL SAGA
Margrét segist hafa orðið hugfangin
af borginni. „Þarna var svo margt að
sjá og skoða. Sagan er merkileg, sér-
staklega varðandi aðskilnaðarstefnuna.
Fangelsið þar sem Mandela dvaldi er á
lítilli eyju en maður þarf að kaupa miða
þangað með góðum fyrirvara, þar sem
vinsælt er að fara þangað. Ég get mælt
með Suður-Afríku fyrir fólk sem vill fara í
ógleymanlegt sumarfrí.“
Hún sagðist aldrei hafa orðið hrædd,
enda borgin örugg svo framarlega sem
fólk sé ekki að flagga verðmætum.
ÓVENJULEG ÁRAMÓT
Margrét og Guðjón áttu 36 ára brúð-
kaupsafmæli á gamlársdag og umboðs-
maður Marels í borginni skipulagði
fyrir þau óvissuferð. „Við fengum bíl-
stjóra sem ók okkur út í sveit þar sem
eru falleg vínræktarhéruð. Á leiðinni
stoppuðum við og tíndum afar ljúffeng
jarðarber. Leiðin lá í veitingahús með
stórum upplýstum garði. Borðið okkar
var inni í tjaldi en við fengum dýrindis
afrískt hlaðborð sem svignaði undan
kræsingum, kjöt, fiskur og alls kyns
grænmeti og ferskmeti. Þarna var talið
niður til áramótanna og stemningin var
ógleymanleg.“ ■ elin@365.is
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
ÖÐRUVÍSI Fyrir utan
veitingastaðinn á
gamlárs dag.
UPPI Á FJALLI Margrét
á Signal-hæð inni í borg-
inni. Þaðan er fallegt
að horfa yfir borgina,
sérstaklega höfnina.
Íslendingar vinna um
þessar mundir við að
setja upp tæki frá Marel
í fiskvinnsluhúsi þar.
UM JÓL OG ÁRAMÓT
Í HÖFÐABORG
ÆVINTÝRI Hjónin Margrét Helgadóttir tannlæknir og Guðjón Halldórsson,
verkefnastjóri hjá Marel, eyddu jólum og áramótum í Höfðaborg í S-Afríku og
héldu upp á brúðkaupsafmæli.
Í TJALDI Guðjón og Margrét
snæddu af afrísku hlaðborði
úti í sveit í S-Afríku á meðan
síðustu mínútur ársins 2012
voru taldar niður.
MYNDIR/EINKASAFN
■ FALLEGT
Höfðaborg heitir Cape Town á
ensku. Í henni býr um ein millj-
ón manna af mörgum þjóðar-
brotum. Það tekur um ellefu
klukkustundir að fljúga þangað
frá Lundúnum. British Air ways
flýgur beint og sömuleiðis
African Airlines auk annarra
flugfélaga. Dýrast er að ferðast
um þessar mundir, þar sem
háannatími er í ferðaþjónustu.
Best er að skipuleggja ferðina
með góðum fyrirvara. Margrét
var með ferðabókina Lonely
Planet og kynnti sér staðhætti.
HÖFÐABORG