Fréttablaðið - 09.01.2013, Page 25
KYNNING − AUGLÝSING Fyrirtækjaráðgjöf9. JANÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR 3
Kontakt er elsta og stærsta sjálfstæða fyrirtækja ráðgjöf landsins á sínu sviði og
hefur veitt ráðgjöf við kaup, sölu
eða sameiningu mjög margra
fyrir tækja. Hjá Kontakt, sem stofn-
að var í núverandi mynd árið 2004,
starfa þrír viðskipta- eða rekstrar-
hagfræðingar og þrír lögfræðing-
ar með mikla þekkingu á atvinnu-
lífinu og rekstri fyrirtækja.
Gunnar Svavarsson hefur starf-
að hjá Kontakt frá því í ársbyrjun
2008 en hann hefur langa reynslu
úr at vinnulíf inu sem fram-
kvæmdastjóri eða forstjóri þekktra
fyrirtækja, svo sem Hampiðjunn-
ar, Icelandic Group og Icebank.
Blaðið leit við í upphafi nýs árs.
Nú hefur Kontakt verið áberandi í
fyrirtækjaráðgjöf, bæði í uppsveifl-
unni og eftir hrunið. Hvaða áhrif
hefur niðursveifla undanfarinna
ára haft á starfsemi Kontakt?
Kontakt hefur alltaf lagt áherslu
á meðalstór fyrirtæki og verið leið-
andi á þeim markaði. Þetta hefur
komið sér vel eftir hrunið því þessi
fyrirtæki hafa f lest staðið ágæt-
lega. Það hefur vissulega verið
samdráttur í veltu hjá fjölda fyrir-
tækja, en það hefur leitt til þess að
eigendur hafa séð tækifæri í kaup-
um á eða sameiningu við önnur
fyrirtæki til að auka arðsemina. Ég
þekkti ágætlega til Kontakt áður
en ég hóf störf þar og hafði gott álit
á fyrirtækinu, en það hefur samt
komið mér skemmtilega á óvart
hve tryggir viðskiptavinirnir eru,
og þeir sem einu sinni hafa haft
reynslu af Kontakt virðast helst
ekki leita annað. Staðreyndin er sú
að undanfarin ár hafa verið býsna
lífleg og síðasta ár með betri árum
Kontakt.
Sú staðreynd að umsvif ykkar á
síðasta ári voru þetta mikil þýðir
væntanlega að einhverjir hafa getu
til að kaupa fyrirtæki!
Við höfum aldrei haft eins
marga kaupendur og eftir hrun
og eru það jafnt fjársterkir ein-
staklingar á ferð og fyrirtæki
sem vilja bæta við sig. Ástandinu
núna má lýsa á þann hátt að eftir-
spurnin eftir góðum fyrirtækj-
um er snöggtum meiri en fram-
boðið, og með það í huga vildum
við gjarnan sjá enn meira úrval
góðra fyrirtækja inni á borði hjá
okkur. Fjármagnseigendur vita
að það eru fáir möguleikar í stöð-
unni til ávöxtunar og fjárfesting í
arðbærum rekstri er að okkar mati
mest spennandi kosturinn í þeim
efnum.
Eru bankarnir að selja skuldsett
fyrirtæki sem þeir hafa tekið yfir?
Nei, í raun er það ekki, allavega
verðum við lítið vör við það.
Kontakt sá um sölu á einu fyrirtæki
fyrir Arion banka á síðasta ári, en
annars eru það eigendur og áhuga-
samir kaupendur sem leita beint
til okkar. Fyrirtækin sem leita til
okkar með sölu eru alls ekki skuld-
ug upp fyrir haus, heldur yfirleitt
góð fyrirtæki sem eigendur eru til-
búnir að selja. Fyrir því geta verið
margar ástæður, svo sem aldur
eiganda eða löngun að breyta til,
og þá gerist það líka oft að menn
vilja styrkja og efla rekstur inn með
viðbótarhlutafé eða sameiningu
við annað fyrirtæki.
Hver er sérstaða Kontakt á
markaðnum?
Þegar Kontakt hóf starfsemi
sína má segja að það hafi verið
eina fyrirtækjaráðgjöfin sem sér-
hæfði sig í meðalstórum fyrir-
tækjum og staðreyndin er sú að
Kontakt er langumsvifamest á
sínu sviði og hefur því eðlilega
bæði flesta kaupendur og seljend-
ur. Þá tel ég einnig að hjá starfs-
mönnum Kontakt sé að finna
mestu reynsluna af viðskiptum
með meðalstór fyrirtæki.
Við þekkjum markaðinn vel
og vitum gjarnan um þá sem eru
í söluhugleiðingum, eða eigum í
öllu falli auðvelt með að þreifa á
eigendum þeirra fyrirtækja sem
kaupendur hafa áhuga á. Við að-
stoðum kaupendur og seljendur
að ná saman og ganga í gegnum
það flókna ferli sem fylgir eigenda-
skiptum svo báðir séu sáttir við
sinn hlut.
Sérfræðingar í fyrirtækjaviðskiptum
Sérsvið KONTAKT er kaup, sala og sameining meðalstórra fyrirtækja.
Guðni Halldórsson og Gunnar Svavarsson fara yfir málin. MYND/VILHELM