Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.01.2013, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 22.01.2013, Qupperneq 16
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Fyrir helgina vöktu ummæli Kristínar Völundardóttur, forstjóra Útlendinga- stofnunar (ÚTL), talsverða athygli. Hún talaði í þætti á RÚV og sagði að fólk sem væri að leita hælis á Íslandi væri ekki hælisleitendur í raun og ætlaði sér að vinna ólöglega eða hefði í huga annan til- gang en hælisleit. Hún hélt áfram: „Þetta getur verið fýsilegur kostur, að fá frítt fæði og hús- næði þegar málsmeðferðin er svona hrikalega löng.“ Hún benti einnig á grun- semdir um að þeir væru að njóta „asylum shopping“ hérlendis. Mér skilst að eftirlit með dvöl útlend- inga í landinu sé hlutverk ÚTL. Því finnst mér það óhjákvæmilegt að ÚTL skoði mál um hælisleitendur út frá fag- mannlegu sjónarmiði. Ráðuneytið hlýtur að skoða mál með tilliti til pólitískra hagsmuna og frjáls félagasamtök eða aðilar munu horfa á mál með hliðsjón af mannúðarsjónarmiðum og á það t.d. við um mig. Ef slíkur gagnkvæmur skiln- ingur er fyrir hendi getum við borið virð- ingu fyrir öðrum sem hafa aðra skoðun en við sjálf. ÚTL gæti séð eitthvað sem við sjáum ekki og öfugt. Ég þekki nokkra hælisleitendur og hef hlustað á þá. Og ég tel að þeir séu ekki að njóta „asylum shopping“ á Íslandi. Ég trúi sögu þeirra þegar þeir tala um ofsóknir sem þeir hafa mætt eða um eigin fjölskyldu eða börn sem eru aðskil- in í heimalandinu. Já, einmitt. Ég hef ekki sannanir en að safna sönnunargögn- um er ekki mitt hlutverk. Og því reyni ég – rétt eins og aðrir aðilar með mannúðar- sjónarmið – að vera með hælisleitendum á biðtíma með því að stappa í þá stálinu þangað til ÚTL rannsakar áreiðanleika sagnanna. Mér sýnist ummæli forstjórans komin langt út fyrir ramma hlutverks stofn- unarinnar þó að ég taki tillit til þeirrar ábyrgðar sem hún ber í vandasamri stöðu. Ef ÚTL hefur svona neikvæða ímynd fyrirfram af sínum eigin skjól- stæðingum eyðileggur það forsendur samfélagsins er varða málefni hælis- leitenda. Þá langar mig að spyrja hvort ummæli forstjóra ÚTL í útvarpsþættin- um séu í sátt við opinbera ábyrgð henn- ar? Er þetta í lagi? Opinber ummæli og ábyrgð FLÓTTAMENN Toshiki Toma prestur innfl ytjenda ➜ Ráðuneytið hlýtur að skoða mál með tilliti til pólitískra hagsmuna og frjáls félagasamtök eða aðilar munu horfa á mál með hliðsjón af mannúðarsjónarmiðum og á það t.d. við um mig. K laufaleg ummæli Kristínar Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar, um svokallaða hælisferða- mennsku (e. asylum tourism) hafa skiljanlega vakið hörð viðbrögð. Af þeim mátti skilja að það ætti við um verulegan hóp hælisleitenda að hann væri fólk sem stundaði að „fara til útlanda og kynnast landi og þjóð og nýti sér þá þjónustu sem hælisleitendum stendur til boða“. Í ljósi þess að flestir hælisleitendur eru bágstatt fólk, sem flýr stríðsátök eða ofsóknir í heimalandi sínu, þóttu mörgum þetta engan veginn viðeigandi ummæli. Forstjórinn skýrði hins vegar mál sitt í yfirlýsingu, sem hún sendi frá sér eftir að allt var farið í háaloft yfir ummælum hennar í fréttum Ríkisútvarps- ins. Þar segist hún hafa ætlað að koma því á framfæri að hælisleitendum hafi fjölgað gríðarlega á Íslandi síðustu ár og afleiðing þess væri meðal annars að málsmeðferðartími hjá Útlendingastofnun væri orð- inn of langur. Það hefði ýmsar óæskilegar afleiðingar í för með sér, fyrst og fremst fyrir þá sem sæktu um hæli og þyrftu að bíða lengi í óvissu. „Langur málsmeðferðartími getur því miður einnig haft það í för með sér að einhverjir einstaklingar reyni að misnota þá aðstoð sem stendur hælisleitendum til boða og eru stofnuninni vel kunnar slíkar aðstæður sem skapast hafa hjá nágrannaríkj- um okkar,“ segir Kristín. „Af reynslu nágrannaríkjanna hefur það sýnt sig að besta leiðin til að koma í veg fyrir misnotkun á kerfinu er að málsmeðferð sé skjótvirk og sanngjörn.“ Hún bætir því við að á síðustu vikum hafi „nokkur hópur einstaklinga“ sótt um hæli, sem gæti fallið í hóp svokallaðra hælisferðamanna. Algengt sé að þetta fólk beri ekki fyrir sig ofsóknir sem ástæðu flótta, heldur efnahagslegar ástæður. Það falli því ekki undir flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, en eigi engu að síður rétt á vandaðri málsmeðferð. Það er ekki óeðlilegt að hælisleitendum fjölgi á Íslandi, því að í samanburði við flest nágrannalönd hafa þeir verið fáir hér. Ísland hefur sömuleiðis staðið sig verr en flest Evrópulönd í móttöku flóttamanna. Fjölgun hælisleitenda hefur ekki fylgt nauðsynleg efling Útlendingastofnunar. Í nóvember síðast- liðnum var lögfræðingum, sem fara með mál hælisleitenda, fjölgað úr tveimur í fjóra sem að mati Kristínar dugir ekki til að vinna á málahalanum sem þegar er orðinn til. Á milli áranna 2011 og 2012 fjölgaði hælisleitendum um 50% og kostnaður skattgreiðenda af uppihaldi þeirra hækkaði úr 108 milljónum í 220. Þetta eru raunveruleg úrlausnarefni. Fólk sem sækir um hæli á Íslandi á rétt á skjótri og vandaðri málsmeðferð. Efling Útlendingastofnunar til að halda í við fjölgun hælisleitenda myndi spara útgjöld annars staðar í ríkiskerfinu. Og ef slíkar úrbætur draga úr líkum á að lítill hópur misnoti kerfi sem búið var til í þeim tilgangi að hjálpa bágstöddu fólki eru þær líka eðlilegar og sjálfsagðar. Um þetta má tala og leita að lausnum. Klaufaskapur forstjór- ans í fjölmiðlum á ekki að yfirskyggja það viðfangsefni. Klaufaleg ummæli um hælisleitendur ættu ekki að yfirskyggja raunveruleg úrlausnarefni: Mál sem má ræða Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is ORKA SEM ENDIST Weetabix er frábær leið til að byrja daginn. Veldu næringar- ríkan morgunverð sem heldur þér gangandi fram að hádegi. Próteinríkt 11,5 g prótein í 100 g Prótein byggja m.a. upp og endurnýja vöðvavefinn, styrkja ónæmiskerfi líkamans og flytja næringarefni inn og út úr frumum. Páli misbýður mannfyrirlitning Páll Magnússon útvarpsstjóri ræðir, í helgarviðtali við DV, ásakanir á hendur starfsmönnum fréttastofu Ríkisútvarpsins. Hann kallar það mannfyrirlitningu að saka frétta- mennina um að þjóna einhverjum stjórnmálaflokki. Í því felist ásökun um það að þeir séu annað hvort „ófaglegir hagsmunapotarar eða liðleskjur sem hlýða fyrirmæl- um þeirra sem eru samsekir um samsæri með stjórn- málaflokki“. Í ljósi þessara orða Páls, sem eru mjög réttmæt, er ekki úr vegi að rifja upp orð sem Páll hefur sjálfur látið falla um aðra fréttamenn; nefnilega á 365, sem meðal annars gefur út Fréttablaðið. Páll telur að eignarhald á stærsta fjöl- miðlafyrirtæki landsins geti verið góð leið til að öðlast tök á „ístöðu- litlum stjórnmálaflokkum og stjórn- málamönnum“. Sama mannfyrirlitningin Hvað felst í þessum orðum útvarps- stjóra? Jú, nákvæmlega sama ásök- unin og hann sjálfur kallar mann- fyrirlitningu. Trauðla er hægt að öðlast tök á stjórnmálaflokkum í gegnum fjölmiðla nema beita starfsmönnum fjölmiðlanna, eða hvað? Páli finnst því í lagi að saka starfsmenn annarra fjölmiðla en þess sem hann stýrir um að vera liðleskjur eða að hlýða fyrirmælum sem faglega mis- bjóða þeim. Kýrskýrt Birna Lárusdóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar, spurði Ögmund Jónasson innanríkisráðherra út í innanlandsflug. Einn liður spurn- ingarinnar sneri að því hver væri stefna ríkisins varðandi gjaldtöku í innanlandsflugi. Svarið er kýrskýrt: Stefna ríkisins um gjaldtöku í innanlandsflugi er að hafa gjöldin hófleg. Þá liggur það fyrir. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.