Fréttablaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 24
4 FRH. AF FORSÍÐU. Góða heilsu, góða líðan og dýrmætar samverustundir með fj ölskyldunni. Nánast allar máltíðir sem ég útbý eru í raun einfaldar og fl jótlegar. Ég er til að mynda ekki með mikið meðlæti, legg frekar áherslu á að vera með góðan grunnrétt og þá er reglan í rauninni less is more varðandi hráefni. Svo er um að gera að nýta afganga og hugmyndafl ugið og muna að hollast er að borða sig mettan, ekki sprengsaddan. Málið er bara að byrja og það er til að mynda fullt af einföldum, bragðgóðum og hollum uppskriftum í báðum bókunum mínum. Hvort heldur sem er Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? eða Eldað með Ebbu í Latabæ. Svo eru börn fl jót að aðlagast breyttum áherslum. Ég reyni að að útskýra af hverju ég vil að bensínið þeirra sé gott, af hverju ég er með þetta vesen! Það má vel gefa þeim mat sem þau vilja en gæta þess um leið að hafa þá hráefnið vandað, hreint og næringarríkt, brauð og pasta er ekki það sama og brauð og pasta. Eitt það mikilvægasta er að forðast unnu matvöruna, gefa þeim frekar máltíðir sem eru eldaðar frá grunni og úr heilnæmu hráefni. Byrja rólega, hafa skammtana litla og sýna þeim þolinmæði. Fyrr en varir kunna börnin að meta þau lífsgæði sem felst í því að vera með blóðsykurinn í góðu jafnvægi, án þess að vera að pæla í því sérstaklega. Hvað varðar boð og bönn þá fi nnst mér mikilvægast að útskýra og kenna hvers vegna eitthvað er sparimatur og annað dagsdaglegur matur. Þá eru allir saman í liði og stefna saman að markmiðinu; góð heilsa – góð líðan.“ Er það málið, að halda blóðsykrinum í jafnvægi? „Algjörlega. Gott jafnvægi á blóðsykrinum er ávísun á góða heilsu og góða líðan. Þess vegna legg ég alltaf áherslu að kenna fólki að nota/borða möndlur/ möndlumauk, chiafræ, tahini, kaldpressaðar olíur og hreint smjör og fl eira góðgæti sem inniheldur bæði góða fi tu og prótein sem temprar blóðsykurinn. Fyrir mína fj ölskyldu nota ég hreint smjör á brauðið, vel feitasta ostinn og stundum setjum við ólífuolíu og sjávarsalt. Það er bæði bragðgott og afskaplega vinsælt. En hvað er framundan? Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? er væntanleg á Bretlandsmarkað og svo í Ástralíu og mig langar til þess að geta fylgt þeirri bók eftir á alþjóðlegum vettvangi. Svo er verið að vinna fyrir mig app á ensku með mataruppskriftum. Foreldrar fi nna þar uppskriftir fyrir börn frá sex mánaða aldri og uppskriftir og rétti fyrir alla fj ölskylduna. Að auki er ný vefsíða á leiðinni og svo reyni ég að standa mig í stykkinu bæði á facebook og twitter. Í byrjun febrúar verð ég með tvö námskeið í Heilsuhúsinu: Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? og Er barnið mitt að verða of þungt? Þetta er í fyrsta sinn sem ég held námskeið fyrir foreldra sem hafa áhyggjur af þessu og ætla að gera mitt besta til að miðla og hjálpa. Það sem skiptir mig mestu er að sýna heilindi og vinna að mínum verkefnum af heiðarleika og ábyrgð, segir Ebba að lokum. gegn umgangspestum Notaðu Lúpínuseyðið þér til varnar í vetur www.lupinuseydi.is Fæst í heilsubúðum og völdum matvöruverslunum Eggjalaus súkkulaðikaka 150g kókospálmasykur 500 ml lífræn jógúrt eða grísk jógúrt (má líka nota kókosmjólk eða aðra jurtamjólk en bætið þá við 1 msk af sítrónusafa sem hjálpar við að láta kökuna hefast aðeins) 300g fínt spelt 60g hreint kakó 1 msk vínsteinslyftiduft 150g brætt smjör Hitið ofninn í 180 gráður. Hrærið saman sykur og jógúrti. Blandið afganginum af hráefnunum út í og smjörið síðast. Setjið í tvö 22-24cm kökuform og bakið í um 15-18 mínútur. Ef þið stingið prjón í kökuna og hann kemur hreinn upp úr er hún bökuð í gegn... en gætið þess að ofbaka ekki, miklu betra að hafa hana mjúka og safaríka. Dásamlegt súkkulaðikrem á einn botn 70g lífrænt hlynsíróp (Ahornsíróp) 70g mjög mjúkt smjör eða bráðið (má líka nota rjóma eða lífrænan jurtarjóma. Einnig er til lífrænt jurtasmjör fyrir þá sem ekki mega fá mjólkurvörur) 3-4 msk lífrænt kakó 1/2 tsk vanilluduft eða extract, má sleppa Hrært saman og smurt á kökuna er hún hefur kólnað. „Gott jafnvægi á blóðsykrinum er ávísun á góða heilsu og góða líðan“. EGGJALAUS SÚKKULAÐIKAKA ÚR ELDAÐ MEÐ EBBU Í LATABÆ (LÍKA FYRIR ÞÁ SEM ERU EKKI MEÐ OFNÆMI FYRIR EGGJUM!)

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.