Fréttablaðið - 22.01.2013, Síða 34

Fréttablaðið - 22.01.2013, Síða 34
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 22TÍMAMÓT „Það er nú svo furðulegt að þrátt fyrir að hafa í tvígang upplifað eld- gos í Vestmannaeyjaklasanum þá finnst mér eyjarnar samt öruggasti staður í heimi,“ segir söngvarinn Bjartmar Guðlaugsson. Bjartmar fluttist til Vestmanna- eyja þegar hann var sjö ára gamall og bjó þar vel fram yfir tvítugsald- urinn. Hann var viðstaddur bæði Surtseyjargosið árið 1963 og gosið í Heimaey árið 1973, en á laugardag- inn eru liðin fjörutíu ár frá því að það síðara átti sér stað. „Ég man að ég var vakinn upp og mér sagt að það væri eldur úti í bæ. Ég var nú ekki alveg að átta mig á hvað það kæmi mér við þar sem ég var ekki í slökkviliðinu,“ rifjar Bjartmar upp og hlær. „Svo var mér sagt að þetta væru jarðeldar og þegar ég hljóp út var ég bara í um kílómetra fjarlægð frá sprungunni sem var því sem næst á túninu hjá Tobba í Kirkjubæ, þang- að sem ég hafði sótt mjólkina þegar ég var yngri. Þetta var allt svo ótrú- legt, eiginlega bara eins og draum- ur,“ heldur hann áfram. Þrátt fyrir að aldrei hafi verið gerð nein viðbragðsáætlun segist Bjart- mar ekki hafa verið í neinum vafa um hvað þyrfti að gera, frekar en aðrir Eyjamenn. Hann kom fjölskyld- unni sinni fyrir í bát og sigldi með hana yfir til Þorlákshafnar. „Surts- eyjargosið hafði auðvitað verið nett- ur undirbúningur og svo heppilega vildi til að það hafði verið snarvit- laust veður dagana á undan, svo allur floti var í landi,“ segir hann. „Það er ótrúlegt hvað allir voru sallaró- legir en engin hræðsla eða panikk var í mönnum. Þetta voru stærstu fólksflutningar Íslandssögunnar og þeir áttu sér stað í mestu rólegheit- um, engin öskur, læti eða neitt. Enda Eyjamenn ýmsu vanir,“ bætir hann við og hlær. Víða verður haldið upp á það á laugardaginn að fjörutíu ár eru liðin frá gosinu í Heimaey. Bjartmar ætlar ekki að láta sig vanta í gleðina og stígur á svið á Spot í Kópavogi með stórt rokkband og tekur mörg af sínum bestu lögum. Auk Bjart- mars koma fram á Spot Eyjabönd- in Logar, 7und, Obbossí og Blítt og létt sönghópurinn. „Eyjamenn, rétt eins og Danir, eru alltaf til í söng og skemmtanahald. Við ætlum að rokka að hætti Eyjamanna í Kópavoginum þar sem hægt verður að koma saman og knúsa gamla vini,“ segir Bjartmar og bíður greinilega spenntur eftir kvöldinu. tinnaros@frettabladid.is Mestu rólegheit í Eyjum þegar Helgafellið gaus Á laugardaginn eru fj örutíu ár frá eldgosinu í Heimaey. Söngvarinn Bjartmar Guðlaugsson var viðstaddur gosið og ætlar að halda upp á daginn með því að spila á Eyjahátíð á Spot. ÆTLAR AÐ ROKKA Á SPOT Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá því að gaus í Heimaey ætlar skemmtistaðurinn Spot að halda allsherjar Eyja- kvöld næstkomandi laugardag. Bjartmar verður meðal þeirra Eyjamanna sem þar stíga á svið og ætla að rokka að hætti Eyjamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ég hljóp út og var þá bara í um kílómeters fjar- lægð frá sprungunni. Þetta var allt svo ótrúlegt, eigin- lega bara eins og draumur. Bjartmar Guðlaugsson, söngvari og Eyjamaður RAGNHEIÐUR S. ÞORSTEINSDÓTTIR frá Tindum, sem lést 14. janúar sl. verður jarðsungin frá Skarðskirkju á Skarðsströnd laugardaginn 26. janúar kl. 14.00. Rúta fer frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10.00 um morguninn. Sætapantanir í síma 892-2795. Börn hinnar látnu og fjölskyldur. Fjölskylda GUÐRÚNAR G. JOHNSON þakkar auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts hennar. Öllum þeim sem önnuðust mömmu okkar, hjúkrunarfólki jafnt sem ættingjum, færum við einlægar þakkir. Hún þáði góða aðstoð og naut nærveru ykkar en gaf í staðinn kærleika og hlýju með sínu ljúfa viðmóti. Vinum hennar og samferðafólki þökkum við ævilanga tryggð, vináttu og fallegar minningar. Friðþjófur Ó. Johnson Sigurlaug Sigurðardóttir Gunnlaugur Ó. Johnson Hjördís Bjartmars Arnardóttir Ólafur Ó. Johnson Bjarndís Pálsdóttir Helga Guðrún Johnson Kristinn Gylfi Jónsson og barnabarnafjöldinn. INGIBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR frá Ökrum, Ánahlíð 16, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 23. janúar kl. 13.00. Gunnar Þór Ólafsson Dagný Þorsteinsdóttir Þórir Jökull Þorsteinsson Böðvar Bjarki Þorsteinsson Kolbeinn Þorsteinsson Guðný Ása Þorsteinsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HARALDSDÓTTIR Sóltúni 10, Reykjavík, lést á Landakotsspítala þann 20. janúar. Gunnlaugur Pálmi Steindórsson Steindór Gunnlaugsson Halldóra Lydía Þórðardóttir Haraldur Páll Gunnlaugsson Bolette Møller Christensen Bryndís Dögg Steindórsdóttir Haukur Eggertsson Gunnlaugur Egill Steindórsson Emilía Björk Hauksdóttir Elskulegur faðir okkar, BALDUR SVEINSSON húsasmiður frá Sveinsstöðum, lést 13. janúar á gjörgæsludeild Landspítalans. Útför verður frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 23. janúar kl 13.00. Fyrir hönd allra aðstandenda, Aðalbjörg og Þóra Björk Baldursdætur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN ÞÓRDÍS ÞÓRHALLSDÓTTIR Sólheimum 23, Reykjavík, áður húsfreyja á Melum í Hrútafirði, verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 24. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Elsa Jónasdóttir Gunnar Guðjónsson Ína Halldóra Jónasdóttir Eggert Sveinn Jónsson Þóra Jónasdóttir Birna Jónasdóttir Gunnar Friðgeir Vignisson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri sambýlismaður, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN GUÐJÓNSSON, flugstjóri, Lækjarhvammi 9, Hafnarfirði, varð bráðkvaddur miðvikudaginn 16. janúar sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ulla Magnússon Erla Ósk Guðjónsdóttir Sigurður Kristinsson Linda María Guðjónsdóttir Rósa Björk Guðjónsdóttir Trent Antony Adams Guðjón Ágúst Guðjónsson Alda Steinþórsdóttir Lilja Barbara Guðjónsdóttir og barnabörn. Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN GUNNARSSON nuddari, Byggðavegi 151, Akureyri, lést á Landspítalanum laugardaginn 19. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 25. janúar kl. 13.30. Sigríður Olgeirsdóttir Birna Kristbjörg Björnsdóttir Jóhann Þröstur Þórisson Ragna Árný Björnsdóttir Birgir Þór Ingólfsson Áshildur Eygló Björnsdóttir Ásþór Guðmundsson Björn Halldór Björnsson Aðalheiður S. Jóhannesdóttir Aðalheiður Hanna Björnsdóttir Hallur Kristmundsson Gestur Gunnar Björnsson Helga Guðrún Pálsdóttir Unnur Lovísa Steinþórsdóttir Gissur Árdal Hauksson Olgeir Steinþórsson Steinþór Andri Steinþórsson Emma Havin Sardarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar og stjúpfaðir, ÁSGRÍMUR HÖGNASON frá Syðrafjalli, Gyðufelli 16, Reykjavík, lést miðvikudaginn 9. janúar síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Svava Högnadóttir Ólöf Högnadóttir Bjarney Inga Bjarnadóttir Sigrún Margrét Sigurðardóttir Svanhvít Sigurðardóttir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.