Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.01.2013, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 22.01.2013, Qupperneq 46
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 34 „Ég gerði aðallega grín að sjálfri mér, en svo tók ég kreppuna á Íslandi líka fyrir og skaut á Ice- save. Bretarnir tóku því alls ekki illa og hlógu að bröndurunum um að við hefðum stolið peningunum þeirra,“ segir Snjólaug Lúðvíks- dóttir uppistandari. Snjólaug tók á dögunum þátt í uppistandskeppninni Laughing Horse í London þar sem leitað er að besta nýliða ársins. Hún sigraði í sínum riðli í undankeppninni og er því komin áfram í aðra umferð ásamt rúmlega 350 öðrum, en um 1.500 manns skráðu sig til leiks í upphafi. Snjólaug hefur aldrei áður tekið þátt í uppistandskeppni og reyndar hafði hún aldrei verið með uppistand áður en hún tók þátt í keppninni. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á uppistandi og horfi mikið á það, en hef aldrei þorað að prófa sjálf. Svo sá ég þessa keppni auglýsta og ákvað að slá til. Mér fannst svo táknrænt að byrja nýja árið á því að hlaupa svona út úr þægindahringnum,“ segir hún og hlær. „Þetta gekk í það minnsta vel í fyrstu tilraun, en maður veit ekki hvað gerist hér eftir. Mér fannst þetta rosalega skemmti- legt og gæti alveg hugsað mér að leggja þetta fyrir mig í meiri mæli í framtíðinni,“ bætir hún við. Þegar Snjólaug skráði sig til keppni var hún ekki með neitt efni tilbúið til að nota í uppistandið, svo hún þurfti að setjast niður og byrja að skrifa. „Ég fékk fjórar mínútur á sviðinu en þegar ég byrjaði að skrifa komst ég á algjört flug og endaði með efni fyrir þrjátíu mín- útna uppistand, svo ég þurfti að velja úr,“ segir hún. Þær eru fáar íslensku konurnar sem hafa lagt fyrir sig uppistand og raunar eru töluvert fleiri karl- menn í bransanum á heimsvísu. Aðspurð segist Snjólaug hafa lesið að karlmenn væru almennt viljugri til að gera sig að fífli en konur. „Við stelpurnar getum samt verið algjör fífl líka, það er alveg á tæru.“ Snjólaug flutti til London fyrir þremur árum til að leggja stund á nám í skapandi skrifum. Síðan hún Heillaði Breta með íslensku uppistandi Snjólaug sigraði í undankeppni einnar stærstu uppistandskeppni Bretlands. FYNDIN STELPA Snjólaug hefur alltaf haft gaman af uppistandi. Keppnin sem Snjólaug tók þátt í er hluti af Laughing Horse-batteríinu sem var fyrst stofnað árið 1998 og er risastórt í grínheiminum í Bret- landi. Þetta er hálfgert grínfélag sem heldur uppistandskvöld á klúbbum um alla London, í Brighton og víðar á Bretlandseyjum. Félagið býður einnig upp á námskeið í uppistandi og hefur uppistandara á sínum snærum sem hægt er að bóka í alls kyns viðburði og veislur. Keppnin sem Snjólaug er þátttakandi í, Laughing Horse New Act of the Year Competition, hefur verið haldin árlega frá árinu 2001 og er mjög virt í heimi uppistand- ara. Mörg þekkt nöfn hafa stigið sín fyrstu skref í keppninni og má þar meðal annars nefna uppistandarana Greg Davies og Russell Kane sem eru báðir vel þekktir innan bransans. Til mikils er að vinna. Auk þess sem sigur í keppninni leiðir af sér mikla eftirspurn og launaða vinnu þá hlýtur sigurvegarinn verðlaun að verðmæti hátt í eina milljón króna. Þar á meðal er ávísun upp á 2.000 pund, sem samsvarar rúmum 400.000 íslenskra króna. Virt keppni og til mikils að vinna „Við höfum fengið fjölda áskor- ana frá íbúum á þessu svæði um að opna Saffran og stækka þannig þjónustusvæði Saffran-veitinga- staðanna,“ segir Jóhann Þórarins- son hjá FoodCo. Nýr Saffran-veitingastaður verður opnaður í Bæjarhrauni í Hafnarfirði í mars eða apríl þar sem Landsbankinn var áður til húsa. Einnig er fyrirhugað að opna síðar um vorið annan stað á Bílds- höfða í Reykjavík, rétt fyrir neðan Húsgagnahöllina, þar sem Stilling var áður til húsa. FoodCo keypti rekstur Saffran- staðanna á Íslandi fyrir um ári. Þrír staðir eru starfræktir á höfuð- borgarsvæðinu: Einn í Glæsibæ, annar á Dalvegi í Kópavogi og sá þriðji á N1 á Ártúnshöfða. Saffran hefur getið sér gott orð fyrir heilsusamlega rétti úr íslensku hráefni, með austurlensku ívafi. Jóhann segir bjarta tíma fram undan hjá fyrirtækinu. „Við höfum fundið fyrir miklum meðbyr á þeim Saffran-stöðum sem við erum með í rekstri í dag. Gengið á síðasta ári var gríðarlega gott og það eru mjög spennandi tímar fram undan og mikið af tækifær- um.“ - fb Saff ran opnar í Hafnarfi rðinum Tveir nýir Saff ran-veitingastaðir opna í Bæjarhrauni og á Bíldshöfða á næstunni. SAFFRAN Veitingastaðurinn Saffran verður opnaður í Hafnarfirði og á Bílds- höfða á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN kláraði námið hefur hún verið að vinna þar ytra og er nú að undir- búa tökur á stuttmynd sem hún skrifaði og hlaut styrk fyrir frá Evrópusambandinu. Á meðan kvikmyndagerðin er í undirbún- ingi vinnur hún svo fyrir sér sem þýðandi. „Svona til að eiga fyrir leigunni,“ segir hún hlæjandi. tinnaros@frettabladid.is Kvikmyndin Prince Avalanche, sem er endurgerð myndarinnar Á annan veg, fékk mjög góðar við- tökur þegar hún var frumsýnd á Sundance-hátíðinni í Utah á sunnu- daginn. Mikill áhugi er meðal dreifing- araðila á að sýna myndina víða um heim og uppselt er á allar sýningar hennar á Sundance. Viðstaddir frumsýninguna voru Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri Á annan veg, og fjórir íslenskir framleiðendur mynd- arinnar. Einnig voru þar staddir David Gordon Green, leikstjóri endurgerðarinnar, og Hollywood- stjörnurnar Paul Rudd og Emile Hirsch sem leika aðalhlutverkin. Framleiðendur Prince Avalanche voru einnig viðstaddir sýninguna, þar á meðal Danny McBride, aðal- leikari sjónvarpsþáttanna vinsælu Eastbound And Down. Prince Avalanche hefur fengið góða dóma í hinum virtu kvik- myndatímaritum Variety og Holly- wood Reporter. Í dómi Variety segir að hin yndislega lágstemmda Á annan veg hafi verið víkkuð út og sé jafnvel enn skemmtilegri í þessari endurgerð. Samleikur Rudd og Hirsch sé góður og mynd- in sé ánægjuleg karakterstúdía. Blandan af gríni og alvöru ætti að tryggja myndinni góða dóma og þá aðsókn sem hún á skilið. Í Hollywood Reporter segir að leikstjórinn David Gordon Green hafi tekið sér hlé frá stærri verk- efnum og snúið aftur í ræturnar með þessari afar vel gerðu mynd um skrítið tvíeyki sem veltir fyrir sér ýmsum tilvistarlegum spurn- ingum. - fb Mjög góðar viðtökur á Sundance Endurgerð Á annan veg fær góða dóma í Variety og Hollywood Reporter. Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Hafsteinn Gunnar Sigurðsson ásamt Paul Rudd (annar frá vinstri), leikstjóranum David Gordon Green (lengst til hægri) og eins af aðstandendum myndarinnar. „Girls. Því það er þáttur sem fjallar um alvöru stelpur.“ Björg Magnúsdóttir, dagskrárstjóri Stúdenta- kjallarans. SJÓNVARPSÞÁTTURINN 21.-27. janúar Verðdæmi: Laxaflök marineraður með Lemmon/Butter . . . 1.390 Laxaflök, fersk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 Skötuselur roðl/beinlaus . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 Þorskhnakkar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 Ýsuflök roðlaus/beinlaus . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 Löngusteikur marineraðar Indversku karrí . . 1.390 Löngusteikur marineraðar á Gríska vísu . . . . 1.390 Rauðsprettuflök glæný . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 Allir fiskréttir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 1.390 ALLUR FISKUR Í FISKBORÐI kr .k g . Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Opi ð k l. 7 -18 .15 Lau gar d. 1 0-1 5 Ef þú sækir! Þú velur Thin & crispy eða Deep pan 998 kr. Opið frá 11 - 20 alla daga Engihjalla og Granda

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.