Fréttablaðið - 24.01.2013, Side 18
24. janúar 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og
í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Aðilar vinnumarkaðar hafa að undanförnu
rætt vinnulag við kjarasamningagerð.
Samanburður við nágrannalönd bendir til
að ferli við gerð kjarasamninga hérlendis
sé tímafrekt og að skilvirkni mætti bæta til
muna.
Fulltrúar BHM hafa bent á mikilvægi
þess að undirbúningur í aðdraganda kjara-
samninga sé góður og að haldgóðar upplýs-
ingar liggi þar til grundvallar. Sameiginleg
rýni og mat á hagstærðum er til þess fallin
að auka traust milli aðila og skapa sátt um
grundvöll og umgjörð samninga.
Nú hafa Alþýðusambandið og Samtök
atvinnulífsins lýst yfir, við endurskoðun
kjarasamninga þeirra á milli nú í janúar,
vilja til að efla og bæta vinnubrögð við
samningagerð. BHM fagnar því.
Nú er gildistími samninga mislangur og
oftar en ekki sammælast aðilar samhliða
undirritun þeirra um ýmis verkefni sem
vinna þarf að á samningstímabilinu. Til að
undirbúningur nýrra samninga geti verið
skilvirkur þarf vinna við bókanir og sam-
komulag sem fylgir gildandi samningum
að ganga eftir. Það sem af er yfirstandandi
samningstímabili hefur þessi hluti samn-
inga alls ekki gengið nógu vel, tímamörk
ekki staðist og sum verkefni ekki komist á
dagskrá.
Kjarasamningar aðildarfélaga BHM við
ríkið eru í raun gerðir í tveimur áföngum,
þegar undirritun miðlægs samnings er í
höfn tekur við gerð stofnanasamninga á
vinnustöðum félagsmanna. Talsvert hefur
skort á skilvirkni við þennan hluta kjara-
samninga undanfarin ár. Stofnanir eru
vitanlega margar og ólíkar, sums staðar eru
þessi mál í góðum farvegi en annars staðar
ríkir pattstaða. Landspítali er eflaust sú
stofnun þar sem misbrestur á gerð stofn-
anasamninga er hvað best þekktur, en stað-
an þar er þó ekki einsdæmi. Slíkt þrátefli er
síst til þess fallið að liðka fyrir gerð næstu
samninga.
BHM er umhugað um að ferli við kjara-
samningagerð sé sem skilvirkast. Ljóst er
að þar þurfa allir aðilar að leggja sitt af
mörkum. Æskilegt er að farið verði að for-
dæmi nágrannalandanna við undirbúning
samninga, og að allir aðilar vinnumarkaðar
sameinist við mat á umgjörð samninga og
gerð launastefnu. Síðast en ekki síst er skil-
virk eftirfylgni gildandi kjarasamninga og
trúverðug vinna við að það sem undirritað
var nái fram að ganga forsenda fyrir trausti
milli aðila í næstu samningum.
Skilvirkir samningar
ATVINNUMÁL
Guðlaug
Kristjánsdóttir
Formaður BHM
➜ Æskilegt er að farið verði að
fordæmi nágrannalandanna við
undirbúning samninga …
Engin þörf
Formannskandídatarnir í Samfylking-
unni tókust á í Kastljósi á mánu-
dag. Athygli vakti að Guðbjartur
Hannesson var mjög afdráttarlaus í
umræðunni um Evrópusambandið
og sagði berum orðum að hann
mundi ekki sem formaður taka þátt
í stjórnarsamstarfi ef það kostaði að
víkja frá þegar ákveðnum aðildar-
viðræðum við Evrópusambandið.
Árni Páll Árnason margítrekaði
mikilvægi þess að viðræðurnar
yrðu kláraðar, en gekk þó aldrei
svo langt að segja að hugsanleg
stjórnarmynstur héngju
beinlínis á því. Þegar talið
barst að því hvort til
greina kæmi að þjóðin
greiddi atkvæði um
framhald viðræðnanna sagði Árni
Páll að engin þörf væri á því eins og
sakir stæðu.
Kom til greina
Þetta er kannski ekki mikill áherslu-
munur. En það eru hins vegar ekki
nema átta mánuðir síðan Árni Páll
gaf hugmyndum um slíka þjóðarat-
kvæðagreiðslu rækilega undir fótinn
á fundi Samtaka atvinnulífsins, þar
sem rætt var um afnám gjald-
eyrishafta. Hann taldi aðildarvið-
ræðurnar vefjast fyrir afnáminu
og taldi koma til greina að leyfa
þjóðinni að ákveða um fram-
haldið. Hefur eitt-
hvað breyst?
Og hvað?
Jón Bjarnason er genginn úr þing-
flokki Vinstri grænna. Skyndilega
vantar ríkisstjórnina tvo þingmenn
til að vera með meirihluta á Alþingi.
Menn geta samt spurt sig hvort
þessi úrsögn hans breyti nokkrum
sköpuðum hlut. Jón hefur hvort
eð er greitt atkvæði gegn stórum
málum stjórnarinnar– meira að segja
fjárlögum– og jafnvel þótt vantrausts-
tillaga yrði samþykkt á
næstu dögum mundi það
bara flýta kosningum um
örfáar vikur. Ekki nema
stjórnarandstaðan nýti sér
úrræðið til að koma í veg
fyrir að stjórnarskrármálið
nái fram að ganga.
stigur@frettabladid.is
Ó
lafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er alltaf með
þema í gangi. Á fölsku velmegunarárunum var það
þjóðrembingslegt liðsinni við útrás sjálftitlaðra við-
skiptajöfra. Í kjölfar hrunsins var það andstaða við
Icesave. Frá því í forsetakosningunum síðasta sumar
hefur þemað að mestu verið Evrópusambandið.
Forsetinn var fenginn til að vera viðstaddur hefðarmanna-
samkunduna sem nú stendur yfir í Davos í Sviss. Þar veitti hann
Bloom berg viðtal og hélt nýjasta þema sínu á lofti. Þar sagði Ólaf-
ur Ragnar að það væru „fá lönd í heiminum sem hafa náð viðlíka
velgengni og Sviss. Síðan má horfa til Noregs og míns heimalands,
Íslands, sem hefur náð sér betur á strik eftir fjármálakrísuna en
Evrópa. Þannig að það er erfitt að halda því fram að maður þurfi
að vera í ESB til að njóta velgengni“.
Í Sviss búa um átta milljónir
manna. Landið er, vegna banka-
leyndar, eins konar risastór
peningaskápur fyrir ríkasta
fólk í heimi. Í Sviss eru líka afar
lágir skattar. Þess vegna flutti
til dæmis Actavis höfuðstöðvar
sínar þangað. Fjölmargar, mis-
geðugar, alþjóðlegar risa-fyrir-
tækjasamsteypur hafa fengið sömu hugmynd á síðustu áratugum.
Á meðal þeirra eru Glencore (stærsti hrávörumiðlari í heimi),
Nestlé (eitt stærsta matvælafyrirtæki í heimi) og Hoffmann-La
Roche (einn stærsti lyfjaframleiðandi í heimi).
Í Sviss er líka mikil iðnaðarframleiðsla. Meira en sjötíu prósent
af útflutningi landsins eru efnavörur, vél- og/eða rafvörur og úr,
klukkur eða tengdar afurðir. Þessar vörur eru að langmestu leyti
framleiddar í stórum verksmiðjum. Allt ofangreint gerir það að
verkum að efnahagur Sviss er mjög sterkur og landið getur því
haldið úti sterkum eigin gjaldmiðli.
Í Noregi búa rúmlega fimm milljónir manna. Í Noregi er nýrík
olíuþjóð með vestræna lifnaðarhætti, og sem slík algjörlega ein-
stakt frávik. Norðmenn hafa líka farið ótrúlega skynsamlega með
olíuauð sinn í gegnum hinn svokallaða olíusjóð, sem er reyndar
orðinn of stór og farinn að ofhita hagkerfi landsins.
Því er spáð að stærð sjóðsins verði 717 milljarðar dala í lok árs
2014. Það eru um 92.500 milljarðar íslenskra króna. Þar að auki
á norska ríkið meiri fjármunaeignir en það skuldar, sem þýðir í
raun að það skuldar minna en ekkert. Ísland er hvorki Sviss né
Noregur. Hér búa 320 þúsund manns. Íslendingar beittu, fyrstir
þjóða í mannkynssögunni, neyðarrétti til að koma í veg fyrir alls-
herjargjaldþrot eftir hrun bankanna haustið 2008.
Síðan þá hefur skuldastaða þjóðarinnar verið, vægast sagt,
erfið, gjaldmiðillinn fallið um tæp 50 prósent og gjaldeyrishöft
verið við lýði til að hindra að um þúsund milljarðar króna yfir-
gefi hagkerfið. Fjárfesting er í lágmarki, atvinnuleysi að nokkru
leyti falið með sérstökum átaksverkefnum, verðbólga viðvarandi
og það eru ágætis líkur á pólitískri kreppu að loknum alþingis-
kosningum. Hér hefur margt gott verið gert til að halda landinu
á floti, og við eigum fína möguleika á því að sigrast á erfiðleikum
okkar, en það er fjarstæðukennt að halda því fram að Ísland hafi
notið einhverrar sérstakrar velgengni.
Ólafur Ragnar er klókur maður. Hann fær iðulega það sem
hann vill og hefur með ótrúlegri kænsku náð að endurvinna
sjálfan sig þegar hann er kominn í þrot með fyrri þemu. En oft
eru orð hans innihaldslaust og illa rökstutt bull. Viðtal hans við
Bloomberg var slíkt.
Forseti Íslands fór mikinn í Davos:
Þema: Bull
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is