Fréttablaðið - 24.01.2013, Qupperneq 22
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 22
AF NETINU
Meðsekir stjórnarliðar
Örlög stjórnarskrárinnar réðust,
þegar stjórnarliðið ákvað að
leyfa Alþingi að vera í fríi allan
fyrri hluta janúar. Ákvörðunin
var tekin, því að ekki var áhugi á
að keyra málið áfram. Stjórnar-
liðið varð stjórnarandstöðunni
samsek um að lýsa frati á
þjóðaratkvæðið. Andstaðan ber
þyngri ábyrgð, því að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur markvisst verið
þversum gegn stjórnarskrá í
heil fjögur ár. En stjórnarliðið
er meðsekt. Eins og gerðist í
þjóðareign auðlinda hafsins.
Tveir sjávarútvegsráðherrar
klúðruðu því máli með ýmsum
hliðarsporum, sem stefndu mál-
inu í tímahrak. Fjórflokkurinn
stinkar allur.
http://www.jonas.is
Jónas Kristjánsson
Meiri fátækt á Íslandi
en í Skandinavíu?
Ég hef hins vegar sagt og skrifað
að skoða þurfi fátækt með
margvíslegum mælingum til að
fá heildstæða mynd. Almennt
myndi ég ekki gera mjög mikið
úr því að fátæktarvandamál
séu meiri á Íslandi en á hinum
Norðurlöndunum. Við erum
ekki mjög langt frá þeim og
fátækt Skandínava er ein
sú alminnsta sem þekkist í
heiminum, þegar allt er skoðað.
Fátækir í hinum hagsælu
Bandaríkjum Norður Ameríku
eru t.d. með talsvert minni
kaupmátt ráðstöfunartekna en
norrænu þjóðirnar.
http://blog.pressan.is/stefano
Stefán Ólafsson
Þegar koma á höggi á
andstæðing er gjarnan
sagt að viðkomandi sé
umdeildur. Vinir mínir
á Fréttablaðinu segja að
William Tiller, prófessor
við Standfordháskóla, sé
hvorki meira né minna en
„stórkostlega umdeildur“.
Tiller er prófessor emir-
itus í orkusálfræði. Hann
hefur sagt að læknis-
fræði framtíðar verði
reist á orkuflæði líkam-
ans. „Future medicine will be
based on controlling energy in
the body.“ Tiller hefur skrifað
um 250 fræðigreinar og nokkr-
ar bækur. Við hann er kennd
stofnun sem rannsakar sam-
hengi orku og efnis. Þeir fara í
manninn fremur en boltann til
þess eins að koma höggi á mig.
Fréttablaðið fer sumsé til rjúpu
með fallbyssu, en það er önnur
saga.
Orka er undirstaða lífsins
Ýmsir heimsfrægir vísindamenn
hafa talað í svipuðum dúr og Til-
ler. Albert Szent-Gyorgyi Nób-
elshafi 1937, Murray Gell-Mann
Nóbelshafi 1969, Harold Burr,
prófessor við Yale, sovéski vís-
indamaðurinn Semyon Kirlian,
læknirinn Ben Johnson, líffræð-
ingurinn Bruce Lipton, fleiri og
fleiri.
Með E=mc² sagði Einstein að
efni væri orka. A fylgir B líkt og
dagur fylgir nótt. Kenning Ein-
steins var spádómur, forspá um
það sem kemur. Hann opnaði
dyr. Áhrifin eru hægt
og hljótt að koma í ljós.
Uppgötvun Einsteins
árið 1905 um efni og orku
hefur leitt vísindin á slóð
orkunnar.
Árið 1996 gaf ég út
heimspekirit sem Gunn-
ar heitinn Dal þýddi. Lög-
málin sjö um velgengni
eftir Deepak Chopra sem
stendur traustum fótum í
nýrri heimsmynd. Gunn-
ar Dal ritaði formála:
„Efnið er skapað. Efnið kemur og
fer. Tíminn er skapaður og hann
líður undir lok. Hann kemur og
fer. Rúmið hefur ekki merkingu
án tíma og efnis. Allt er þetta
skapað.“ Dyrnar sem Einstein
opnaði staðfestist í skammta-
fræðinni, quantum physics. Efni
er skapað úr orku, ljóseindum
óháðum tíma og rúmi. Þetta eru
mikil tíðindi, risavaxin.
Ef orka er grundvöllur lífsins
þá hljótum við að leita til upprun-
ans, ekki satt?
Af orkubrautum
og minni frumunnar
Árið 1985 uppgötvaði bandaríski
sálfræðingurinn Roger Callahan
að neikvæðar tilfinningar stífli
orkubrautir.
Í september 2004 skýrðu vís-
indamenn við University of
Texas frá því að frumur hafi
minni; geymi neikvæða og
jákvæða lífsreynslu. Jákvæðar
minningar séu undirstaða góðr-
ar heilsu, neikvæðar minningar
hafi áhrif á hegðan og leiði til
sjúkdóma. „Vísindamenn leita
skilnings á því hvernig frumur
festa minningar í sessi og jafnvel
hvort meðhöndla megi sjúkdóma
með því að stilla tíðnisvið,“ sagði
staðarblað í Dallas.
Ný heimsmynd, nýr skilningur
Mannkyn stendur í dyragætt og
horfir inn í nýjan heim. Heims-
mynd okkar er að breytast. Lífs-
orkan er grundvöllur lífsins. Allt
er háð orku. Þessi nýja heims-
mynd er hægt og hljótt að ryðja
sér braut. „Hinar gömlu forsend-
ur efnishyggjunnar eru fallnar,“
sagði vinur minn Gunnar Dal.
Bandarísk heilbrigðisyfirvöld
rekja 90% allra sjúkdóma til
streitu, Bruce Lipton segir 95%
að lágmarki. Við fæðumst en nei-
kvæð lífsreynsla truflar tíðni-
svið og afvegaleiðir. Er krabba-
mein nokkurs konar „svarthol“
sem smám saman stækkar og
stækkar. Ef svarthol eru „þarna
úti“ af hverju ekki í mannslíkam-
anum?
Með nýrri heimsmynd kemur
nýr skilningur. Hægri vinstri
pólitík gengur úr sér enda reist á
úreltri heimsmynd efnishyggju.
Misrétti ræðst af neikvæðni
sem í bernsku er hlaðið inn á
„harða diskinn“. Ef mannkyn á
að eiga framtíð verður að rjúfa
vítahring. Til þess að komast út
úr öngstræti 20. aldar hugsun-
ar verður mannkyn að brjóta af
sér hlekki úreltrar efnishyggju.
Hægri vinstri pólitík með óskil-
greinda miðju hefur ýtt mann-
kyni fram á brún hengiflugs.
Með lífsorku á fund atómsins
Á síðustu árum hefur mönnum
lærst að virkja lífsorkuna með
áhrifaríkari hætti en áður. Við
förum inn í skammtaveröldina á
fund atómsins, leiðréttum tíðni
sem kann að hafa raskast; tíðni
sem er orsök neikvæðra tilfinn-
inga og sjúkdóma.
Framtíðin er mætt til leiks. Við
förum til upphafsins. Hinn stór-
kostlegi bónus í þessu öllu saman
er að lífsorkan er kærleikur, líkt
og Kristur boðaði fyrir tvö þús-
und árum.
Þetta kann að vera fólki í
heimi efnishyggjunnar torskil-
ið og kannski þess vegna sem
Fréttablaðið á svo erfitt með að
ímynda sér Taggart á Íslandi til
þess að rýna á veröld bullu sem
er leiksoppur eigin neikvæðra
tilfinninga og tekur samfélag og
fjölskyldu í gíslingu. Þetta skoða
þeir í Skotlandi. Er ekki vert að
gera slíkt hið sama á Íslandi?
Meira síðar.
Af nýrri heimsmynd
og úreltri hægri vinstri pólitík
SAMFÉLAG
Hallur
Hallsson
höfundur skáld-
sögunnar Váfugl
➜ Þetta kann að vera fólki
í heimi efnishyggjunnar
torskilið og kannski þess
vegna sem Fréttablaðið á
svo erfi tt með að ímynda sér
Taggart á Íslandi til þess að
rýna á veröld bullu sem er
leiksoppur eigin neikvæðra
tilfi nninga og tekur samfé-
lag og fjölskyldu í gíslingu
Liðsstyrkur er nýtt átak til að berjast gegn
atvinnuleysi og auka verðmætasköpun um leið.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA