Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.01.2013, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 24.01.2013, Qupperneq 26
FÓLK|TÍSKA ÚTSALA HAFIN! Skipholti 29b • S. 551 0770 Belladonna á Facebook Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Nýjar vörur í hverri viku Vor 2013 Útvarpsþátturinn Snorri með Orra frá hádegi alla virka daga FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, s 512 5432 Elsa Jensdóttir elsaj@365.is s. 512-5427 Ég var búin að heita sjálfri mér því að þegar ég væri orðin fullorðin og mætti vera að því að gera eitthvað fyrir sjálfa mig þá fengi ég mér tattú. Mig hafði langað til þess frá því ég sá sjómennina sem barn koma úr spennandi ferða- lögum með tattú á handleggnum. Mér fannst það heillandi,“ segir Kolbrún Lilý Hálfdánardóttir, amma og langamma með meiru, en hún lét húð- flúra rós aftan á öxlina á sér fyrir stuttu. Áður hafði hún látið flúra á sig fjórar svölur og orðin La vie est belle. „Ég er ofboðslega ánægð með rósina, það er mikið flúr í henni og hún er í lit en hitt er einfald- ara. En þetta sést nú ekki nema ég sé í erma- lausu,“ segir Kolbrún og gantast með að kannski fái hún sér fleiri. „Ég sagði nú við hann Sigga Palla húðflúrara, svona í gríni, að ég kæmi aftur þegar ég yrði 75 ára og þegar ég yrði áttræð. Kannski stend ég við það. Hann á svo flottan stól sem ég hef aldrei fengið að prófa svo ég þarf eiginlega að fá mér flúr á þannig stað að ég geti setið í stólnum.“ En af hverju dreif hún sig ekki fyrr? „Mér fannst ég aldrei mega vera að því. En nú þegar maður hefur meiri tíma er upplagt að gera svona hluti,“ segir Kolbrún sposk en milli þess sem hún lætur sig dreyma um fleiri húðflúr sinnir hún handavinnu, bútasaum og prjónaskap og er þegar farin að prjóna fyrir næstu jól. En hvað finnst barnabörnunum um nýja húð- flúrið? „Það trúði nú enginn að ég léti verða af þessu þegar ég orðaði þetta í haust,“ segir Kol- brún hlæjandi. „En þau verða bara að taka mér eins og ég er, það má ekki taka sig of alvarlega. Enda er þetta bara fyrir mig sjálfa.“ LANGAMMA MEÐ TATTÚ GAMALL DRAUMUR Kolbrúnu Lilý Hálfdánardóttur hafði langað í húðflúr frá því hún var krakki. Hún lét það eftir sér þegar hún komst á eftirlaun. TEKUR SIG EKKI OF ALVARLEGA Barnabörnin trúðu því ekki að amma léti verða af því en Kolbrún Lilý Hálfdánardóttir dreif sig á húðflúrstofu og lét gamlan draum rætast. MYND/PJETUR LAGERFELD KOM Á ÓVART ■ JÁKVÆTT Hinn 79 ára gamli Karl Lager- feld endaði Chanel-hátísku- sýningu sína í París á þriðjudag með því að lýsa yfir stuðn- ingi við hjónabönd samkyn- hneigðra. Tvær brúðir gengu í salinn hönd í hönd og telja sérfræðingar að með því hafi Lagerfeld komið skemmtilega á óvart. Með fyrirsætunum gekk fjögurra ára fyrirsæta, Hudson Kroenig, sem brúðarsveinn. Reyndar hefur Lagerfeld lýst því yfir að hann sé á móti brúð- kaupum yfirleitt en á hátísku- sýningunni kvað við annan tón hjá meistaranum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.