Fréttablaðið - 24.01.2013, Síða 36

Fréttablaðið - 24.01.2013, Síða 36
KYNNING − AUGLÝSINGGólfefni & hitakerfi FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 20138 Plankaparket í miklu úrvali Flotuð gólf hafa verið vinsæl undanfarin ár og þykja nútímaleg og smart. Veitingahús sem vilja vera samkvæmt nýjustu tísku hafa flotuð gólf, jafnvel í ýmsum litum. Sömuleiðis eru margir farnir að velja flotuð gólf á skrif- stofur en ekki síður á heimili. Gott er að þrífa flotuð gólf og þau henta vel þar sem asma- eða ofnæmissjúklingar búa. Flotið er hægt að mála eða lakka, allt eftir smekk hvers og eins, en margir vilja þó hafa gólfið í steinsteypulitnum. Hægt er að fá flot með ýmsum áferðum og litum, sem fagmenn geta gert. Það er því engin ástæða til að hafa flotið grátt frekar en fólk vill. Flotið er ágætis kostur fyrir þá sem hafa ekki efni á dýru parketi eða flísum strax og það er sannarlega endingargott. Fallegar mottur setja síðan oft punktinn yfir i-ið. Einnig er hægt að hafa heimilið flotað að hluta en parket og flísar með. Íbúðin getur verið ákaflega smekkleg þótt gólfefnin „vanti“. Ef gólfefnið er ekki nýjum eiganda að skapi við sölu er auðvelt að breyta og setja annað gólfefni yfir. Flotuð gólf geta verið smart Hér hefur flot verið sett á stóran flöt en dökkt parket er á hluta. DÝRASTA PARKETIÐ Dýrasta parket heims er búið til úr Makassar-svartviði sem vex til dæmis á Indlandi og Srí Lanka en þó helst á eyjunni Sulawesi sem tilheyrir Indónesíu. Nafn viðarins er dregið af aðalhöfn eyjunnar sem heitir Makassar. Viðurinn er dökkbrúnn og svartur á lit með appelsínu- og gullituðum röndum sem oftast liggja nokkuð beint eftir viðnum. Viðurinn er sérstaklega þéttur og losnar síður í sundur en annar viður. Það er ekki ókeypis að leggja parket úr slíkum við. Fermetrinn kostar um 200.000 krónur og þar sem hann fæst ekki í verslunum hérlendis bætist flutningskostnaður við verðið hafi einhver áhuga. Viðurinn er einnig notaður í ýmislegt annað, til dæmis í skápa og innrétt- ingar. Japanir notuðu einnig viðinn lengi sem stólpa og stoðir í húsum sínum enda voru þeir lengi vel helstu innflytjendur hans. Það þykir frekar erfitt að vinna með viðinn enda er hann nokkuð brothættur. Þannig þarf að bora í viðinn áður en hann er negldur fastur. Það tekur líka mjög langan tíma að þurrka viðinn eða allt að tvö og hálft ár. Trén sjálf ná um 20 metra hæð við bestu skilyrði en það gerist sjaldan nú á dögum sökum mikillar eftirspurnar. STIGIÐ INN Í ÞRÍVÍÐAN HEIM Götur og gólf eru strigi bandaríska listamannsins Kurts Wenner. Wenner þessi fann upp nýja tækni til að búa til þrí- víðar götumyndir og hefur vakið heimsathygli fyrir verk sín. Hann byrjaði feril sinn sextán ára sem grafískur listamaður. Hann sótti hönnunar- og listaskóla áður en hann hóf störf hjá NASA. Þar starfaði hann sem vísinda- legur myndskreytingarmaður og teiknaði myndir að hugmyndum um geimverkefni framtíðar. Hann hætti hjá Nasa árið 1982, seldi allar eigur sínar og flutti til Ítalíu til að læra meira um málaralistina. Wenner varð með tímanum þekktur á Ítalíu fyrir götulistaverk sín enda vakti ný aðferð hans við gerð þrívíðra málverka mikla ánægju. Wenner breytir þannig gólfum og götum í lifandi listaverk. Þrívítt listaverk eftir Kurt Wenner.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.