Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 46
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30MENNING
Origami – Brot í brot nefnist sýn-
ing sem opnuð verður í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi í dag
klukkan 17. Á sýningunni eru papp-
írslistaverk eftir hjónin Dave og
Assiu Brill sem hafa hannað fjölda
bréfbrota, gefið út bækur, fengist
við kennslu og sýnt verk sín víða
um heim. Verk þeirra voru flutt
sérstaklega til landsins fyrir sýn-
inguna í Gerðubergi en listamenn-
irnir, þau Dave og Assia Brill,
verða viðstaddir opnunina. Hest-
ar, flóðhestar, ljón, gíraffar, kett-
ir og mýs auk blóma, vasa, engla,
stjarna, kassa og kubba eru meðal
þess sem sjá má á sýningunni. Þar
eru einnig þekktustu verk þeirra
svo sem Saint George and the Dra-
gon eftir Dave og St. Basil á Rauða
torginu í Moskvu eftir Assiu.
Sýningin er samstarfsverkefni
Gerðubergs og Origami Ísland en
þeir Björn Finnsson og Jón Víðis
eiga einnig verk á sýningunni. Þeir
félagar hafa brotið þúsund trönur,
en það er japönsk þjóðtrú að hver
sá sem það geri fái ósk sína upp-
fyllta, auk þess að klæða myndar-
lega súlu með goggum eins og svo
margir kunna að brjóta.
Í tengslum við sýninguna verður
haldið námskeið í origami helgina
26. til 27. janúar þar sem Dave
og Assia sjá um kennsluna. Nám-
skeiðið er ætlað hönnuðum, lista-
og handverksfólki og kennslan fer
fram í Gerðubergi báða dagana
frá klukkan 9 til 16. Takmarkaður
fjöldi þátttakenda kemst að á nám-
skeiðinu.
Brot í brot í Gerðubergi
Hjónin Dave og Assia Brill eru þekktir origami-listamenn sem sýnt hafa víða
um heim. Sýning á verkum þeirra verður opnuð í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í dag og stendur til 24. mars.
ORIGAMI Dave og Assia Brill komu til landsins í tilefni sýningarinnar og verða með
origami-námskeið um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MYNDLIST ★★★★ ★
Tónn í öldu
Helgi Þorgils Friðjónsson
GERÐARSAFN - LISTASAFN KÓPAVOGS
Eins og margir aðrir góðir mynd-
listarmenn er Helgi Þorgils Frið-
jónsson mjög upptekinn af sjálfum
sér. Á sýningu hans í Gerðarsafni
málar listamaðurinn „sjálfan
sig“ nakinn í nærri hverju ein-
asta verki á sýningunni, í félags-
skap íslenskra dýra, blóma og mat-
væla m.a., í íslensku landslagi eða
skýjum ofar. Myndirnar eru nær
allar eins konar draumkennd súrr-
ealísk heild þar sem myndefnið
hringsnýst eða vaggar til á fletin-
um. Stundum er allt á hvolfi eða
út á hlið, eða í hnapp, vafningi eða
fléttu.
Helgi leikur sér einnig að spegl-
unum og samhverfum á þessari
sýningu eins og maður hefur séð
hjá honum áður.
Manneskjurnar, oftast mynd
af Helga sjálfum, eru stóreygar,
stundum eins og sálarlausar og
ópersónulegar, og horfa gjarnan
ákveðið út úr myndfletinum sem
gefur þeim á vissan hátt ódrama-
tískt, en á sama tíma ljóðrænt
yfirbragð. Á stundum er litasam-
setningin og málunin teiknimynda-
söguleg, ég nefni sem dæmi verkið
Vinnustofan, módel, blóm og bak-
hlutar málverka, 2011.
Það má segja að verkin á sýning-
unni séu hreinn skáldskapur ætt-
aður úr íslensku umhverfi, en þó
með viðkomu í alþjóðlegri lista-
sögu og málverkahefð. Á sýning-
unni á Helgi þannig í samtali við
endurreisnina, við módernismann
og við samtímalistina, ásamt því
að eiga í samtali eins og fyrr sagði
við íslensk gæði, hvort sem það
er landslagið, dýrin eða matvæli
ýmiss konar.
Sýningin er í öllum sölum safns-
ins. Í sölunum tveimur á efri hæð-
inni sýnir Helgi nýjar og nýlegar
höggmyndir og málverk í bland,
en niðri eru hið stórskemmtilega
Tilhugalíf Indígó I–X, ágætar mál-
verkaseríur og innsetningin Heim.
Heim er heildstætt verk þar sem
listamaðurinn málar báðum megin
á afgangs krossviðarbúta og still-
ir fjöldamörgum slíkum mynd-
um upp eins og höggmynd á miðj-
an stöpul. Þetta er dagbókarlegt
verk og fjallar um bústaði sem
hafa veitt listamanninum skjól
um ævina og umhverfi þeirra.
Manni verður ósjálfrátt hugsað
til verka Kristins G. Harðarsonar
sem sýndi í safninu á undan Helga.
Líklega kemur höggmyndagerð
Helga flestum á óvart á þessari
sýningu. Þessar styttur eru ekki
eins fágaðar og málverkin, þær
eru gróteskar margar, jafnvel
dónalegar (mörgum hefur reynd-
ar fundist málverkin hans dóna-
leg líka í gegnum tíðina) eins og
verkið Alchemy, eða gullgerðarlist
í lauslegri þýðingu, þar sem menn
eru með rassinn upp í loft að kúka
gullkúkum af margvíslegri lögun.
Þetta er kaldhæðið verk og upp í
hugann koma verk eftir Manzoni,
kúkur í dós, kúkaverk Johns Mill-
er og kúkaframleiðsluvél William
Delvoye. Þetta verk Helga er hægt
að skilja sem hyllingu til sköpun-
armáttarins.
Höggmyndirnar eru annars
margar skemmtilegar í grófleika
sínum og litadýrð. Ég nefni sem
dæmi bleika óskapnaðinn Perlu-
móður og Uppstillingu í fjöru. Einn-
ig er samsetta höggmyndin Heil-
agur Antoníus fyrir heimilislausa
spennandi, en þar blandar hann
saman tilbúningi (ready made) og
eigin sköpun.
Þó að það séu augljós tengsl á
milli málverka og höggmynda, bæði
í umfjöllunarefni, auk þess sem
höggmyndirnar eru sumar þrívíð-
ar útgáfur af málverki á sýningunni
eða öfugt, þá hefði verið gaman að
sjá stytturnar saman í sal, þar sem
þær væru ótruflaðar af málverkun-
um, með fullri virðingu fyrir þeim.
Af málverkunum uppi þá eru
verkin Auga, heimurinn, íslensk-
ur hestur, síld og auðnutittlingur
frá árinu 2012 og Endurreisnar-
maðurinn einnig frá 2012, bæði
mjög sterk. Byggingarlega ganga
þau fullkomlega upp, og hafa bæði
óvænta eiginleika. Fyrrnefnda
verkið er þannig mannlaust, en
listamaðurinn hleður dýrunum
upp á afar heillandi hátt, en í End-
urreisnarmanninum vekur það hjá
manni ónotatilfinningu að horfa á
gúrku ganga inn í sköflunginn á
manninum á myndinni.
Þóroddur Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Áhorfendur og
aðdáendur Helga fá mikið fyrir
peninginn á þessari sýningu.
Höggmyndirnar sýna nýja hlið á lista-
manninum, og áhugavert hefði verið
að sjá þær njóta sín án málverkanna.
Endurreisnarmaðurinn
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013
Tónlist
21.00 Tónelskir læknar verða með
tónleika á Café Rosenberg.
22.00 Magnús Einarsson, Eðvarð
Lárusson, Karl Pétur Smith og Tómas
Tómasson leika tónlist eftir The Rolling
Stones á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg
8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Leiðsögn
17.00 Aleksandra Babik býður til leið-
sagnar um sýningu sína, Lífið er list, í
Eiðisskeri, sal Bókasafns Seltjarnarness.
Listamannaspjall
20.00 Ingólfur Arnarsson ræðir við
gesti um sýningu sína, Teikningar, í
Hafnarborg.
Fyrirlestrar
20.00 Dóra Ísleifsdóttir, grafískur
hönnuður og prófessor við Listaháskóla
Íslands, og Guðrún Lilja Gunnlaugs-
dóttir, hönnuður hjá Studiobility, fjalla
um hönnun, hönnunarferli og hvernig
hönnun og aðferðir hennar nýtast sam-
félaginu í fyrirlestri í Hafnarhúsinu.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
Iceland
Business
Forum kynnir:
Philip Kotler
Heilsdags námskeið með föður nútíma markaðsfræði
Í Háskólabíói – 24. apríl 2013
Marketing 3.0
Values Driven Marketing
Markaðssetning fyrir stærri og smærri fyrirtæki
Arðsemi Ávöxtun Sjálfbærni
Tilboð í forsölu 69.900.-
Fullt verð 99.900.-
Gildir til og með 31.janúar 2013
Takmarkað magn miða í boði
Nánari upplýsingar og forsala
er á miði.is og ibf.is
Philip Kotler er í boði: