Fréttablaðið - 01.02.2013, Qupperneq 6
1. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
DÓMSMÁL „Það var ótrúlega
gaman að fá þessar fréttir. Fyrst
fattaði ég reyndar ekki að við
hefðum unnið en þá kleip mamma
í mig. Ég er mjög glöð,“ segir
Blær Bjarkardóttir Rúnarsdóttir,
sem hafði sigur í máli sínu gegn
íslenska ríkinu í gær og má sam-
kvæmt niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur heita nafninu Blær.
Málið var höfðað fyrir hönd
Stúlku Bjarkardóttur Rúnars-
dóttur, en það er nafnið sem hún
hefur borið hjá opinberum aðil-
um frá því stuttu eftir fæðingu.
Það breyttist í gær: Fyrsta opin-
bera skjalið sem er merkt Blævi
er dómur héraðsdóms.
Blær var reyndar skírð Blær
í ágúst 1997 en þegar prestur-
inn áttaði sig á því að nafnið var
ekki á mannanafnaskrá sem kven-
mannsnafn var nafngiftin aftur-
kölluð og leitað til mannanafna-
nefndar.
Nefndin hafnaði nafninu á
þeirri forsendu að nafnið væri
þegar til sem karlmannsnafn. Í
lögum um mannanöfn frá árinu
1996 segir skýrum stöfum að
stúlku skuli gefa kven-
mannsnafn og dreng
karlmannsnafn.
Í niðurstöðu dóms-
ins segir hins vegar að
þekkt séu dæmi um það á
Íslandi að karlkyns nafn-
orð séu notuð sem kven-
mannsnöfn, til dæmis
Ilmur og Apríl, og kven-
kyns nafnorð sem karl-
mannsnöfn, til dæmis
Sturla. Þá séu bæði karlar
og ein kona sem beri nafn-
ið Júlí í Þjóðskrá.
Auk þess segir að kona,
fædd 1973, beri þegar
nafnið Blær og að það hafi
verið samþykkt af manna-
nafnanefnd á sínum tíma.
Þar virðist dómurinn reyndar
líta fram hjá þeirri staðreynd að
mannanafnanefnd var ekki til
fyrr en árið 1991.
„Af því sem nú hefur verið rakið
er ljóst að í ákveðnum tilvikum
getur íslenskt nafn bæði verið
karlmanns- og kvenmannsnafn,“
segir í dómnum. Það hafi verið
ólögmætt af nefndinni að hafna
beiðninni um nafngiftina. „Það er
mat dómsins að réttur stefnanda
til að bera nafnið Blær sé ríkari
en hagsmunir samfélagsins af því
að hafna kröfunni.“
Blær fær ekki miskabætur eins
og hún gerði kröfu um en er engu
að síður himinlifandi og kvíðir
ekki umstanginu sem mun fylgja
því að sækja um vegabréf með
nýju nafni og annað í þeim dúr.
Hún segist hafa verið aðalmann-
eskjan í skólanum í gær. „Það
hlupu allir að mér þegar mætti –
kennarinn hafði lesið fréttina upp
í tíma. Svo er ég búin að fá fullt af
símtölum með hamingjuóskum.“
stigur@frettabladid.is
Blær má heita nafninu sínu
Fimmtán ára stúlka vinnur mál gegn íslenska ríkinu og má heita Blær þótt mannanafnanefnd hafi úrskurðað
það karlmannsnafn. Hið opinbera hefur kallað hana „Stúlku“ allt þangað til á dómsskjalinu frá því í gær.
GLEÐIDAGUR Blær faðmar móður sína, Björk Eiðsdóttur, eftir að niðurstaðan lá
fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Árið 2005 sagði mannanafnanefnd af sér eftir deilur um nafnið Eleonoru.
Nefndin hafði hafnað nafninu og sagt að það væri ekki í samræmi við ís-
lenskrar ritreglur; það skyldi vera Eleonóra– með ó-i. Yfir þessu var kvartað
til dómsmálaráðuneytisins, sem sendi nefndinni bréf og dró í efa að hún
hefði gætt meðalhófs við synjunina. Í kjölfarið var ákvörðuninni snúið og
nefndin sagði af sér, mjög ósátt.
Ágústa Þorbergsdóttir, starfandi formaður mannanafnanefndar, hafði
ekki kynnt sér dóminn í máli Blævar í gær og vildi því ekki tjá sig um
hann.
Broddstafur leiddi til afsagnar
1. Hvaða hjúkrunarheimili hefur gert
erlendu starfsfólki sínu að gangast
undir íslenskupróf?
2. Hver leikur titilhlutverkið í stór-
myndinni Lincoln?
3. Hvaða kvikmynd fékk fl estar til-
nefningar til Edduverðlaunanna?
SVÖR
1. Skjól 2. Daniel Day-Lewis 3. Djúpið
ÚTSÖLULOK!
kíktu inn á www.pfaff.is
Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400
Opið í dag til kl. 18 og laugardag kl. 11-16.
37%
28%
39%
LOFTLJÓS
VERÐ ÁÐUR 48.900,-
NÚ 29.800,-
SIMPLE 3X60W
VERÐ ÁÐUR 25.900,-
NÚ 18.000,-
CHARLOTTE VEGGLJÓS
VERÐ ÁÐUR 8.990,-
NÚ 5.000,-
STÆKKUNARGLERSLAMPI
VERÐ ÁÐUR 24.900,-
NÚ 18.000,-
MADELON LJÓSAKRÓNA
VERÐ ÁÐUR 95.900,-
NÚ 60.000,-
44%
Fjöldi loftljósa og lampa á ótrúlega góðu verði!
31%SÍÐAST
I
SÉNS!
KÓPAVOGUR Alþingismaðurinn Magnús Orri
Schram og Herdís Hallmarsdóttir, slitastjórnar-
maður í Landsbankanum, hrepptu byggingarlóð-
ina í Hólmaþingi 7 þegar fulltrúi sýslumanns dró á
milli umsækjenda á fundi framkvæmdaráðs Kópa-
vogs á miðvikudag.
Hólmaþingi 7 var fyrst úthlutað til knattspyrnu-
mannsins Eiðs Smára Guðjohnsens sumarið 2005.
Eiður byggði aldrei á lóðinni og í fyrravor sam-
þykktu bæjaryfirvöld ósk hans um að endurgreiða
lóðina.
Í fyrrasumar var síðan lagt fram og tekið fyrir
í framkvæmdaráði ríflega 17 milljóna króna til-
boð í lóðina. Það var frá Birni Jakobi Björnssyni
lögmanni, sem er tengdasonur formanns fram-
kvæmdaráðs, Gunnars I. Birgissonar. Úr varð
þó að lóðin var auglýst til sölu og óskað tilboða
á grundvelli úthlutunarreglna bæjarins. Uppsett
verð var 19,9 milljónir.
Auk Magnúsar Orra og Herdísar sótti
fyrrnefndur Björn Jakob um lóðina
ásamt Agnesi Gunnarsdóttur, eigin-
konu sinni.
Útsýni er yfir Elliðavatn frá
Hólmaþingi 7. Fasteignasalar
hafa lýst lóðinni sem „ótrú-
legri“ og „án efa efa með fal-
legri byggingarlóðum“. - gar
Þingmaður og slitastjórnarkona heppin í útdrætti sýslumanns:
Fá lóðina sem Eiður skilaði
VERÐANDI EIGENDUR
HÓLMAÞINGS 7 Hjónin
Magnús Orri Schram og
Herdís Hallmarsdóttir
fá glæsilega einbýlis-
húsalóð með útsýni
yfir Elliðavatn.
SAMSETT MYND
SVÍÞJÓÐ Dregið verður af laun-
um lögreglumanns í Kalmar-
léni í Svíþjóð vegna þess að
hann gleymdi beltinu sínu með
skammbyssu, varamagasíni og
kylfu á salerni fyrir almenning á
flugvellinum í Kalmar.
Greint er frá því í sænskum
fjölmiðlum að öryggisvörður
hafi fundið búnaðinn en litið var
svo á að hann hefði getað komist
í rangar hendur. - ibs
Dregið af laununum:
Lögreglumaður
gleymdi byssu
í salernisferð
VESTURLAND Snæfellsbær sagði
nýverið upp þjónustusamningi
frá 2011 við Grundarfjarðarbæ
um verkefni skipulags- og bygg-
ingafulltrúa, vegna anna fulltrú-
ans heima fyrir. „Þetta er ekkert
sem kemur á óvart.
Þetta fyrirkomulag var hugsað
til bráðabirgða og hefur í raun
gengið lengur en við þorðum að
vona og gengið mjög vel,“ sagði
Björn Steinar Pálmason, bæjar-
stjóri Grundarfjarðar, í samtali
við Skessuhorn. Hjá sveitarfé-
laginu er verið að vinna að lausn
í málinu. - fb
Rifta samningi um skipulagsmál:
Hugsað til
bráðabirgða
GEKK VEL Bæjarstjórinn segir sam-
starfið hafa gengið vel en verið hugsað
til bráðabirgða.
VEISTU SVARIÐ?