Fréttablaðið - 01.02.2013, Side 8

Fréttablaðið - 01.02.2013, Side 8
1. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 LÖGREGLUMÁL Afli norska loðnu- skipsins Manon reyndist tölu- vert meiri en skipstjóri hafði til- kynnt um að veitt hefði verið innan íslensku efnahagslögsögunnar. Dómsátt var gerð í málinu eftir rannsókn lögreglunnar á Eski- firði. Landhelgisgæslan telur ekki ástæðu til að halda að brot sem þessi séu algeng. Víðtækt eftir lit er á miðunum. Varðskipið Týr vísaði fyrir rúmri viku norska loðnuskipinu Manon til hafnar á Eskifirði fyrir meintar ólöglegar veiðar eftir að varðskipsmenn fóru um borð til eftirlits. Mælingar varðskips- manna leiddu í ljós að afli um borð virtist meiri en skipið hafði til- kynnt um að það hefði veitt innan íslensku efnahagslögsögunnar og fylgdi Týr skipinu til hafnar eftir að samráð var haft við atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytið. Ásgrímur Ásgrímsson, fram- kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land- helgisgæslunnar, segir að tæplega 800 tonnum hafi verið landað úr Manon, en skipstjórinn tilkynnti að 600 tonna loðnuafli væri um borð. Ásgrímur segist ekki hafa ástæðu til að halda að brot sem þessi séu algeng, á síðustu loðnu- vertíð hafi Landhelgisgæslan til dæmis farið um borð í tuttugu erlend skip án þess að dæmi sem þetta kæmi upp. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að lögregluyfirvöld eystra hafi ekki farið fram á eigna- upptöku vegna málsins, en ekki er óalgengt að afli og veiðarfæri séu gerð upptæk ef menn eru staðnir að brotum sem þessum. Umfang brotsins er þá haft til hliðsjónar. Skipstjórinn á Manon mun hafa gengist undir svokallaða viður- lagaákvörðun, sem er í raun dóm- sátt, og greiðir 400 þúsund krónur í Landhelgissjóð Íslands. Eftirlitið á miðunum er víðtækt á meðan á vertíðinni stendur. Varðskip er á svæðinu sem fylgir flotanum eftir og áhöfn þess fer til eftirlits um borð í skipin. „Veður hamlar þessu eftirliti vissulega stundum en skipunum er gert að koma við á fyrir fram tilgreind- um eftirlitsstað á miðunum áður en þau halda heim. Um borð eru gögn er varða veiðarnar yfirfarin og athugað hvort rétt hefur verið staðið að öllu,“ segir Ásgrímur. Áður en bræla skall á fyrir helgi voru 22 erlend loðnuskip á miðun- um; norsk skip að viðbættu einu grænlensku. Fá íslensk skip hafa haldið til veiða eftir bræluna, en margar útgerðir halda að sér hönd- um þar sem mjög gengur á kvót- ann. Ætla menn að nýta síðustu tonnin þegar hrognafylling loðn- unnar eykst og þar með verðmæt- ið. Hafrannsóknastofnun leitar nú loðnu norður af landinu. svavar@frettabladid.is Norski loðnuskipstjórinn sleppur með lága sekt Loðnuskipið Manon reyndist vera með 200 tonnum meira af loðnu í lestum sínum en tilkynnt var. Skipstjórinn gerði dómsátt og borgar sekt. Landhelgisgæslan telur brotið undantekningu miðað við reynslu af eftirliti. ÚTIVISTARFAT NAÐUR REIÐHJÓL GÖNGUSKÓR BAKPOKAR O G SVEFNPOKA RSKÍÐA - OG VETRAR FATNAÐUR UTANRÍKISMÁL Verði framsal ríkis- valds ekki heimilað með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í frumvarpi til stjórnskipunarlaga gætu Íslending- ar staðið frammi fyrir ákvörðun um hvort ætti að stíga út úr EES-samn- ingnum. Þetta sagði Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra á þingi í gær en Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins hafði hafið máls á þessu efni. Bjarni vitnaði í texta frumvarps- ins þar sem ástæða er sögð til að tryggja stjórnskipulegan grund- völl við þróun EES-samningsins og lagt er til að opnað verði fyrir framsal ríkisvalds til stofnana sem við Íslendingar eigum ekki aðild að. Tók hann sem dæmi reglur ESB um eftirlit með fjármálamörkuðum, sem álitið er að krefjist framsals að því marki að það brjóti í bága við stjórnskrá Íslands. Bjarni sagði að það mál virtist hafa gefið meirihlut- anum tilefni til að leggja til ákvæði í stjórnarskrá þar sem Ísland fallist á að hverfa frá tveggja stoða kerf- inu sem EES-samningurinn bygg- ir á, að kröfu ESB. Spurði Bjarni Össur að því hvers vegna lagt væri í slíkar breytingar fyrir ESB. Össur svaraði því til að EES- samningurinn hefði breyst mikið frá því að hann var tekinn upp árið 1994, meðal annars með nokkru valdaframsali. Það væri hins vegar jákvætt fyrir Ísland að hægt væri að þróa samninginn með þess- um hætti. Hann spurði Bjarna því hvernig hann vildi sjá EES þróast og „hvort [Bjarni] vilji að Ísland taki upp umræðu um að við stíg- um út úr því samstarfi. Ég hygg að ef við heimilum ekki framsal með þessum hætti kunnum við að standa frammi fyrir ákvörðun af því tagi.“ Bjarni sagði þá að í EES-sam- starfinu hefði ESB í auknum mæli leitast við að færa vald til sinna stofnana. Það væri meiriháttar breyting frá upphaflega samningn- um og „alger eftirgjöf“ fælist í að fara að kröfum ESB með stjórnar- skrárbreytingum. Össur lauk málinu með því að segja að EES-samningurinn hefði breyst verulega og í mögum atrið- um væri hann kominn út fyrir það sem stjórnarskrá heimilaði. Úr því sem komið er væri að hans mati „miklu hreinlegra“ fyrir Ísland að ganga í ESB. „Ef við ætlum að halda áfram þessu samstarfi og göngum ekki í Evrópusambandið þá verðum við að [heimila framsal ríkisvalds með umræddum hætti].“ thorgils@frettabladid.is Deilt um framsal ríkisvalds í stjórnskipunarlögum: Getum þurft að hverfa frá EES-aðild BJARNI BENEDIKTSSON Í PONTU Utanríkisráðherra sagði að ef Ísland heimilaði ekki framsal ríkisvalds með þeim hætti sem stjórnarskrárfrumvarp gerir ráð fyrir gætum við staðið frammi fyrir ákvörðun um að yfirgefa EES-samstarfið. Á LOÐNU Norðmenn eiga átta prósent af um 300 þúsund tonna útgefnum loðnukvóta. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR DANMÖRK Nýfætt stúlkubarn fannst yfirgefið í Kaupmanna- höfn í gærmorgun á milli tveggja bíla sem lagt var við Vestre Kirkegårds Allé. Faðir sem var á göngu með barnavagn fann litlu stúlkuna, sem var í fjólublárri íþróttatösku sem komið hafði verið fyrir á púða. Þegar komið var með barnið á spítala var líkamshiti þess 27 gráður. Samkvæmt frétt á vef Politiken var líðan barnsins góð eftir meðferð. Talið er að stúlkan sé tveggja til þriggja daga gömul. Lögreglan leitar nú móðurinnar. - ibs Lögreglan leitar móður: Nýfætt barn í íþróttatösku EVRÓPUMÁL Mótframlög íslenska ríkisins vegna IPA-styrkveitinga í tengslum við aðildarumsóknina að ESB hafa hingað til numið 2,4 milljörðum króna. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efna- hagsráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingkonu Framsóknarflokks. Þar segir einnig að IPA-fram- lög hafi hingað til numið tæpum 4,4 milljörðum, en mótframlög Íslands séu að miklu leyti útgjöld sem ríkið hefði þurft að leggja í þótt ekki hafi komið til ESB- umsóknar. Þar vega drýgst fram- lög vegna endurnýjunar tollkerfa og þýðinga á ESB-reglugerðum sem telja alls um tvo milljarða. - þj Útgjöld ríkis vegna IPA-fjár: 2,4 milljarðar í mótframlög

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.