Fjarðarpósturinn - 24.03.1988, Side 9
Félagsmiðstöiin að Strandgötu 1 vígð sl. sunnudag:
Bœjarstjórí gengur í salinn „vopnaður" lykli Vitans.
Vitinn
- skal húi heita
Nýja félagsmiðstöðin við Strandgötu 1 var vígð að viðstöddu
fjölmcnni sl. sunnudag. Afhenti bæjarstjóri, Guðmundur Árni
Stefánsson, Margréti Sverrisdóttur forstöðumanni miðstöðvar-
innar, og Steinunni Ármannsdóttur, fulltrúa unglinga bæjar-
ins, lykil að húsnæðinu til varðveislu. Þá var tilkynnt nafn
félagsins og sigurvegara samkeppni um það, en nafnið er
„Vitinn“. Vitanum bárust margar góðar gjafir og árnaðaróskir
í tilefni opnunarinnar.
Guðmundur Árni Stefáns-
son, bæjarstjóri, flutti ræðu
þar sem hann gerði grein fyrir
þróun æskulýðsstarfs í bænum
og rakti sögu félagsheimilis-
ins, sem hann sagði hafa kost-
að um 20 millj. kr. Hann
afhenti síðan lyklavöldin for-
stöðumanni og fulltrúa ungl-
inga. Margrét Sverrisdóttir,
forstöðumaður, þakkaði fyrir
og Steinunn Ármannsdóttir
flutti þakkarávarp fyrir hönd
unglinga bæjarins og hvatti þá
til að fylla húsið lífi og ganga
vel um það.
Þá tilkynnti Árni Guð-
mundsson, æskulýðs- og tóm-
stundafulltrúi, úrslit í sam-
keppni grunnskólabarna um
nafn. Fyrstu verðlaun fyrir
nafnið Vitinn hlutu tvö ung-
menni, sem bæði stungu upp á
sama nafninu, en það voru
þau Sigrún Gísladóttir og Þór
Fjalar Hallgrímsson. Verð-
launin voru kr. 5.000 og frír
aðgangur að öllum skemmt-
unum æskulýðsráðs næsta
árið. Önnur verðlaun, fyrir
nafnið Uppsalir hlaut Halldór
Viðar Hafsteinsson kr. 3.000
og þriðju verðlaun fyrir nafnið
Brekkusel Hildur Iris Helga-
dóttirkr. 1.500.
Fulltrúar félaga í bænum
ávörpuðu samkomuna og bár-
ust góðar gjafir frá mörgum
þeirra, m.a. þrjár skáktölvur
frá Rauða Krossdeild Hafn-
arfjaðrar. Þá skemmtu stúlkur
úr Björkunum samkomugest-
um við góðar undirtektir. Síð-
an var gestum boðið til kaffi-
samsætis.
Vitinn var síðan opinn
almenningi síðdegis og um
kvöldið var mikið um dýrðir
hjá unglingum sem létu
diskódansinn duna fram eftir
kvöldi.
Vitanum bárust margar góðar gjafir,
sem hér má sjá sýnishorn af afhertding-
Lykillinn kominn íöruggar hendur SteinunnarÁrnadóttur til vinstri og Margrétar Sverrisdóttur.
Bjarkirnar sýndu listir sínar við góðar undirtektir áhorfenda.
K'HIíLLVGAIt
Verð aðeins kr. 865,- pr. kg.
\A IIAI lAKIí. 1. II,.
fímm kg og meira, verð kr. 345,-/kg.
Smærri skammtar, vcrð kr. 395,*/kg
unmmi.
VÖRUMARKAÐUR
8
9