Fjarðarpósturinn - 24.03.1988, Blaðsíða 14
Fjárhúsholtið
Það ber óneitanlega dálítið skondið nafn nýja íbúðahverfið í
Setbergslandinu. Fjárhúsholtið heitir það og er hér um að ræða
innsta hluta Setbergslandsins. Hverfi þetta verður selt hæstbjóð-
anda til byggingar og er verktaka ætlað að sjá um allar hliðar fram-
kvæmda í þessari einhverri sérstæðustu íbúðabyggð landsins.
Vomámskeio a©ö
Tónlistar- C08756744
skólans MU.VXUl SEÐLABA^ltt
Vornámskeið Tónlistarskólans
fyrir 7 ára börn og eldri hefjast 18.
apríl.
Námskeiðin verða með hefð-
bundnum hætti og standa yfir til 6.
maí n.k. Þau verða nánar auglýst
síðar í Fjarðarpóstinum.
Fjarðar-
posturinn
-fréttablað
allra Hafn-
íirðinga
■ ■
MJOG GOTTURVALAF
FERMINGARGJÖFUM
^ Hljómtæki - útvarpsklukkur
^ Tölvur - útvörp
★ Loftljós - borðlampar
Fjölbreytt úrval!
^jóó &
STRANDGÖTU 39 - SÍMI52566
Leifur Helgason.
Þar kom að því... og Ingimar
féll með brauki og bramli úr
„Happ-firðingum vikunnar“ eftir
að hafa aðeins krækt sér í eina
tölu rétta í Lottóinu um helgina.
Leifur Helgason, andstæðingur
hans og alræmdur lukkugrís, náði
tveimur tölum réttum og það
gerði útslagið. Þar með er Ingi-
mar úr leik að sinni en Leifur
heldur áfram keppni.
„Haukamaðurinn var ekkert
mál,“ sagði Leifur og kippti sér
ekki mikið upp við sigurinn um
helgina. Til þess að enginn gangi í
grafgötur um hvar Leifur stendur
í félagamálum skal þess getið hér
fyrir þá sem ekki vita það þegar,
að hann er rótgróinn FH-ingur.
Leifur var snar til svara er hann
var beðinn um nýjar tölur og þær
koma hér: 1-4-5-12-18-29-32.
Ingimar Haraldsson tilnefndi
mág sinn, Árna Mathiesen, dýra-
lækni, sem arftaka sinn en það var
ekki beint hlaupið að því að hafa
upp á honum. Eftir 863 hringingar
Blómaskreytingar
eru okkar fag.
Pantið tímanlega
fyrir
fermingarnar.
BÆJARHRAUNI 26 - SIMI 50202 - REYKJAVÍKURVEGI 60 - SIMI 53848
Arni Mathiesen.
heim til hans gáfumst við upp og
leituðum á náðir alnafna hans og
frænda, sem starfar hjá E. Th.
Mathiesen. Hann var snöggur að
taka við sér þó svo hann segðist
aldrei taka þátt í hinu eiginlega
lottói - konan sæi aðallega um þá
hlið málanna. Tölurnar hans
Árna eru sem hér segir: 2-7-8-11-
13-19-24. Ekki mikið líkt með
þeim og tölunum hans Leifs þann-
ig að líkurnar á hreinum úrslitum
eru all verulegar.
Flóamarkaður
Rannsóknarlögreglumað-
ur óskar eftir 4ra herb. íbúð á
leigu, helst í Suðurbænum.
Uppl. í síma 52747 (heima)
eða 44000 (vinna),
Jónmundur.
Vantar ekki einhvern
barngóða stúlku til að passa
börn og sjá um heimili í
Hafnarfirði í sumar. Hef
meðmæli. Uppl. í síma
52116.
Lítið notuð Brother-prjóna-
vél til sölu. Uppl. í síma
52116.
Hef til sölu handprjónaða
vettlinga, leista, prjónakjól og
bláan kvenjakka nr. 38. Hef
opiðfrá kl. 16-18. Sími
54423.
Hverjum
bjargar það ^
næst.
GOTTBILMILLI BÍLA —
=5^. tirvun uniuui
14