Fréttatíminn - 30.09.2011, Blaðsíða 18
Þingmenn í háska Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, forseti Alþingis, treystir
á að kjósendur séu ekki morgunhanar.
Hún ákvað að færa setningu Alþingis á
morgun, laugardag, aftur um fjóra tíma
af ótta við mótmæli. Til að bæta gráu
ofan á annað öryggisleysi þingmanna
verður enginn heiðursvörður og þurfa
þeir því að ganga óvarðir alla fimmtán
metrana frá Dómkirkjunni inn í Alþingis-
húsið.
Lögreglumenn ósáttirLögreglumenn eru afskap-
lega, svo ekki sé fastar að orði kveðið,
ósáttir við ákvörðun gerðardóms um
launahækkun þeim til handa. Telja þeir
að launahækkunin dugi engan veginn
til að leiðrétta það launamisrétti sem
stéttin hefur orðið fyrir á undanförnum
árum. Lögreglumenn geta ekki farið í
verkfall þannig að þeir verða að láta sér
nægja mótmæli af ýmsum toga – helst
kröfugöngur sem hafa skilað misjöfnum
árangri í gegnum árin.
Sorg í SandgerðiStór skuggi hvílir yfir Sand-
gerði eftir að ellefu ára drengur framdi
sjálfsvíg vegna eineltis sem hann varð
fyrir. Atvikið er reiðarslag fyrir bæjar-
félagið og haldin var bænastund í Sand-
gerðiskirkju fyrr í vikunni.
Engir lestrarhestarÍ vikunni var birt könnun
sem leiddi í ljós að rétt tæpur fjórðungur
fimmtán ára drengja getur ekki lesið sér
til gagns. Í stuttu máli sagt þýðir það að
þeir skilja í sumum tilvikum ekki megin-
inntak lesins texta og sjá ekki tengsl
efnis á ólíkum stöðum eða geta mótað
sér skoðun á upplýsingum. Sem getur
ekki verið vænlegt til árangurs í námi.
Havarí á HólmavíkÁtök brutust út á
Hólmavík á mánudag þegar félagsmála-
yfirvöld gerðu tilraun til að fjarlægja
fjögur börn af heimili sínu. Félagsmála-
stjóri fór, ásamt starfsmanni barna-
verndar, í skóla og leikskóla og fjarlægði
börnin að öðrum börnum ásjáandi. Faðir
barnanna, sem var grunaður um að
beita börnin ofbeldi, ók í veg fyrir félags-
málastjórann og tók tvö börn úr bílnum.
Börnin enduðu hjá foreldrum sínum sem
hyggjast leggja fram kæru á hendur
félagsmálastjóranum vegna málsins.
SLæm vika
fyrir Harald Johannessen ríkislögreglustjóra
Góð vika
fyrir Hafstein Egilsson, veitingamann á Rauða ljóninu
1.096
Fjöldi pistla sem Andy Roo-
ney hefur flutt í bandaríska
fréttaskýringarþættinum 60
Minutes frá því að hann hóf
störf árið 1949. Hann flytur
sinn síðasta pistil, númer
1.097, á sunnudag.
252
Prósentutalan sem skuldir
heimilanna við lánakerfið
jukust um á milli áranna
2000 til 2007 samkvæmt
úttekt DV.
2.330
Heildarfjöldi þeirra sem
mættu á leikina fjóra í fyrstu
umferð Íslandsmótsins í
handbolta karla á mánudag.
6
Milljónirnar sem embætti
Ríkislögreglustjóra eyddi í
piparúða frá janúar 2008 til
apríl 2011.
Sigur á vellinum og á bak við barinn
Hafsteinn Egilsson er einn mesti KR-ingur landsins. Hann var einn af
stofnendum KR-klúbbsins og formaður um árabil. En Hafsteinn er líka
veitingamaður á Rauða ljóninu við Eiðistorg, sem einmitt er heimavöllur
KR-inga þegar kemur að því að fagna titlum og drekka bjór. Hafsteinn sá
liðið sitt tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn á sunnudag og tók svo á
móti stuðningsmönnunum á bak við barinn að leik loknum. Önnur
sigurhátíð fer síðan fram á Rauða ljóninu á morgun, laugardag,
eftir síðasta leik Íslandsmótsins og þá munu leikmenn KR mæta
á svæðið.
Ekki hægt að fara að ýtrustu lögum
Úttekt Ríkisendurskoðunar á innkaupum embættis ríkislögreglustjóra leiddi í
ljós að embættið og þrettán löggæslustofnanir hafa átt í viðskiptum við fyrir-
tæki í eigu lögreglumanna og fjölskyldumeðlima þeirra fyrir um 90 milljónir
króna frá því í janúar 2008. Ríkislögreglustjóri greip til þeirrar óvæntu
varnar – í ljósi embættis síns – að segja að ógerlegt hefði verið að fara
að „ýtrustu lögum“ um opinber innkaup í miðri búsáhaldabyltingu.
Hluti af innkaupum ríkislögreglustjóra fóru þó fram í desember 2009
þegar mótmæli voru að baki. Þá var verslað við fyrirtæki eiginkonu
lögreglumanns hjá embættinu fyrir 13 milljónir króna en gefnir út
þrír reikningar svo að enginn hljóðaði upp á meira en fimm milljónir
króna. Innkaup yfir þeirri upphæð ber að bjóða út.
25
KR-ingar tryggðu sér Íslands-
meistaratitilinn í 25. sinn um helgina.
Ekkert lið hefur unnið titilinn oftar frá því að
byrjað var að keppa um hann árið 1912.
vikan í töLum
Fréttablaðinu nuddað upp
úr vændi
Um miðja vikuna blossaði
upp funheit umræða um lítt
dulbúnar vændisauglýsingar,
aðallega í smáauglýsingum
Fréttablaðsins.
Líf Magneudóttir posted to
Vísir.is
Af hverju eru tveir mismunandi
dálkar undir nudd í smáauglýs-
ingum – annars vegar Nudd og
hins vegar „Þjónusta“?
Stígamót Gegn kynferðis-
ofbeldi
Fréttablaðið flytur fréttir um
vændisauglýsingar á einka-
málum og á vísi.is ... DV flytur
fréttir um vændisauglýsingar í
Fréttablaðinu og á vísi.is ... þetta
er afar spennandi allt saman.
Lögreglan veltir vöngum yfir
þessu. Spurning hvenær einhver
sem getur gert eitthvað gerir
eitthvað.
Stígamót Gegn kynferðis-
ofbeldi
Ég er búin að rannsaka þetta.
Var ekkert mál. Það var hringt
og fengum þá að vita að konur
væru ekki nuddaðar. Það kostar
25 þús. með „happy ending“
(fékk karlmann til að hringja).
Lítið annað eftir en að loka fyrir
þetta. - Karen
vér mótmælum öll ... og
þó?
Þessi er vika er vika mótmæl-
anna. Lögreglumenn fóru fylktu
liði í kröfugöngu á fimmtudag
og nokkur óvissa ríkir um hversu
margir þeirra munu láta sjá sig
á Austurvelli á laugardag þegar
þing verður sett fyrir hádegi og
boðað hefur verið til mótmæla.
Sveinn Andri Sveinsson
Þessi ríkisstjórn er ömurleg og
Alþingi er vanmáttugt. Lög-
reglumenn eru þreyttir, sárir og
reiðir og virðast ekki munu verja
Alþingi. Þá verða löghlýðnir
borgarar þessa lands að standa
vörð um þessa mikilvægustu
stofnun landsins og sjá til þess
að landið verði ekki skrílræði
að bráð.
Guðmundur Magnússon
Mótmæla þeir í einkennis-
búningum? Það finnst mér ekki
viðeigandi. Rifjast upp fræg
mótmæli slökkviliðsmanna í
kjaradeilu fyrir rúmum tveimur
áratugum. Mættu í búningum
og á slökkviliðsbílunum.
Slökkviliðið og lögreglan heyrðu
þá undir borgina og þáverandi
borgarstjóri (DO) fyrirskipaði
lögreglunni að koma í veg
fyrir að bílarnir væru notaðir í
þessum tilgangi. Það var þá sem
Albert Guðmundssoon mælti
hin fleyg orð: „Frjálshyggja er
það þegar lögreglunni er sigað á
slökkviliðið.“
Guðmundur Andri Thorsson
Og þannig endaði búsáhalda-
byltingin í klassískri íslenskri
einkavæðingu. Löggurnar sem
stóðu vörð um alþingishúsið
kræktu sér í umboð á bareflum,
táragasi og skriðdrekum og létu
kaupa þetta þegar allt var um
garð gengið. Og ætla í verkfall
þegar alþingi verður sett.
Ást og hatur í boltanum
KR-ingar lönduðu sínum tuttug-
asta og fimmta Íslandsmeistara-
titli á sunnudaginn. Stuðnings-
menn liðsins fögnuðu ákaflega á
Fésbókinni á meðan aðrir héldu
í þann góða sið að elska að hata
Vesturbæjarveldið.
Sirrý Arnardóttir
HÚRRA fyrir KR!
Sigurjón Egilsson
KR hefur sigrað í fjórðungi allra
Íslandsmóta í fótbolta karla. 25
sinnum í þeim hundrað mótum
sem hafa verið háð. Langar að
vita hvort mörg evrópsk félög
hafi gert betur. Hef trú á að KR
sé með sigursælustu félögum í
Evrópu.
Hilmar Þór Guðmundsson
Mun Valur hylla Íslandsmeistara
KR í lokaleiknum á Hlíðarenda
á laugardaginn eins og tíðkast í
enska boltanum?
Óskar Freyr Pétursson
óskar ekki þessum helvítis KR-
ingum til hamingju með eitt né
neitt!! ... Álíka hressandi klúbbur
og City!
Jenný Anna Baldursdóttir
Er svo gjörsamlega sama um KR
og aðra fótboltaklúbba. Róleg á
hysteríunni.
HEituStu koLin Á
Um 300 lögreglumenn
mótmæltu við fjár-
málaráðuneytið í gær,
fimmtudag.
18 fréttir vikunnar Helgin 30. september-2. október 2011