Fréttatíminn - 14.10.2011, Qupperneq 32
sem er forstjóri fyrirtækisins sem
ég vinn hjá í dag, og svo annað við
Önnu Pálínu Árnadóttur, sem lést
langt um aldur fram. Það viðtal
hafði svo mikil áhrif á mig að þá
vissi ég að það var þetta sem ég
vildi gera. Ég er óskaplega forvitin.
Ég þarf að vita allt um fólk – en for-
vitni og hnýsni er ekki það sama.
Ég hef ekkert gaman af slúðursög-
um eða kjaftasögu, en ég er forvitin
um hagi fólks. Ég lauk síðan BA-
gráðu í stjórnmálafræði og frönsku
frá Háskóla Íslands, en á meðan ég
var í námi þar fékk ég vinnu sem
næturfréttamaður hjá RÚV árið
2004. Hjá því fyrirtæki lærði ég
gríðarlega mikið þótt ég hafi lést
um átta kíló það sumar og átti við
óreglulegan svefn að stríða í tvö ár
eftir það,“ segir hún brosandi.
„Kári Jónasson var þá frétta-
stjóri og hann brýndi alltaf fyrir
mér að ég ætti að ljúka háskóla-
náminu þótt hann hefði útvegað
mér þessa sumarvinnu. Ég fékk
svo að fara á dagvaktir en ég hafði
þetta alltaf að leiðarljósi og kláraði
mitt nám. Fyrir það verð ég honum
ætíð þakklát – eins og þeim tíma
sem ég vann hjá RÚV. Þar lærði
ég grunninn að fréttamennsku,
málfar, setningagerð og textagerð
en fyrir 25 ára stúlku að koma inn
í umhverfið sem ríkir hjá RÚV var
vissulega erfitt. Ég þurfti að brýna
klærnar og svara sumum þessara
karlmanna á fréttastofu Útvarpsins
– og slíkir menn – og reyndar kon-
ur líka – finnast enn víða. Það var
eins og ég fengi að kenna á því að
vera ung og óreynd, blaut á bak við
eyrun, og það voru nokkrir þarna
sem voru mér ekkert sérstaklega
góðir. Ég náði ekki öryggi þarna
strax og það mótaði mig sem frétta-
mann. Ég var bara lítil og hrædd
og gat stundum ekki sofið fyrir
fréttavaktir. Mamma sagði oft: „Nú
HÆTTIRÐU þarna!“ Síðan fór ég
í Sjónvarpið og þar leið mér ögn
betur en tók svo ákvörðun um að ég
yrði að slíta mig úr þessu umhverfi
og sótti um vinnu hjá Stöð 2.“
Dýrmætt að vera úti á akrinum
Það var mamma hennar sem hvatti
hana til að sækja um hjá Ríkisút-
varpinu.
„Mamma ól mig upp þannig að
ég gæti allt sem ég vildi,“ segir
Helga. „Svo óheppilega vildi til að
inntökuprófið hjá RÚV var á sama
tíma og ég var í skólaferðalagi, en
mamma hringdi bara upp eftir og
bað um undanþágu, að ég fengi að
taka prófið þegar ég kæmi heim.
Sem ég gerði og náði því. En það
var oft virkilega erfitt að vinna þar
í byrjun og mörg tár féllu inni á
klósetti!“
Við höfum sem sagt báðar grenj-
að inni á klósettunum á Ríkisút-
varpinu undan vanara fólki og erum
sammála um að það hafi nú bara
hert okkur! Enda var það ekki fyrr
en árið 2007, eftir að Helga byrjaði
að vinna hjá Stöð 2, sem fólk fór
virkilega að taka eftir henni.
„Það geta verið svo margar
vofur hjá ríkisstofnunum eins og
Ríkisútvarpinu. Þannig er það ekki
hjá einkafyrirtækjum. Sá sem getur
ekki unnið með fjöldanum, hann
hættir einfaldlega. Á Stöð 2 fékk
ég að þróa mitt fag og mína frétta-
mennsku. Yfirmaður minn núna,
Freyr Einarsson, hefur leyft mér
að blómstra. Hann hefur trú á mér,
treystir mér og styður mig eins og
Kristján Már Unnarsson fréttastjóri
gerir líka. Svo hefur maður lært að
brýna klærnar og rífa kjaft ef með
þarf. Maður á í ástar-haturssam-
bandi við þetta starf.
Hún segir að hvort tveggja eigi
vel við sig, að vera fréttakynnir og
fréttamaður.
„Ég myndi aldrei vilja vera
eingöngu fréttakynnir,“ segir hún.
„Það er mjög gaman að prófa það
en mér finnst dýrmætast að vera úti
Nánari upplýsingar á www.heillheimur.is
Skráning á heillheimur@heillheimur.is eða í síma 864-0981
8.00 Móttaka og skráning
8.30 Setning
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu
8.40 Stutt og laggott í D dúr
8.45 D-vítamínbúskapur fullorðinna Íslendinga
Prófessor Gunnar Sigurðsson, yfirlæknir innkirtlasjúkdómad. LSH
9.15 ABC en ekkert D!
Kolbeinn Guðmundsson, sérfr. í efnaskipta- og innkirtlasjúkd. barna
9.45 Vitundarvakning á norðurslóðum
Anna Þóra Ísfold, nemi í Lýðheilsuvísindum við HÍ
10.05 Morgunverður
10.30 Þarf að D-vítamínbæta íslensk matvæli?
Laufey Steingrímsdóttir, prófessor við matvæla- og næringarfr.deild HÍ
11.00 Er ég D í fortíð sé
Haraldur Magnússon, osteópati, B.Sc. (hons)
11.30 The D-lightful Vitamin D For Your Health
Dr. Michael F. Holick, Ph.D., M.D., Professor of Medicine,
Physiology and Biophysics at Boston University
12.30 Pallborðsumræður
13.00 Ráðstefnuslit
Fundarstjóri: Friðfinnur Hermannsson, EMPH og ráðgjafi hjá Capacent
Verð kr. 4.900,-
Heill heimur stendur fyrir ráðstefnu um D-vítamín
Föstudaginn 21. október, kl. 08.00-13.00, á Reykjavík Natura (Loftleiðir)
Dr. Holick er margverðlaunaður fyrir rannsóknir sínar á
D-vítamíni og þykir einkar líflegur fyrirlesari.
„Ef þú vilt öðlast nýja sýn á D-vítamín þá getur það breytt
heilsu þinni og lífi á áhrifaríkan hátt“ .
The Vitamin D Solution - Dr. Holick
D vítamín til daglegra nota
Munnúði
Eins og náttúran hafði í hyggju
VERTU SÓLARMEGIN Í LÍFINU
á akrinum og hitta allt það fólk sem
ég hef verið svo heppin að hitta.
Ég held að það sé mikilvægt að
muna að ef konur vilja eitthvað – og
það lærði ég og stundum af biturri
reynslu – er að biðja um það. Það
finnur enginn á sér hvað maður vill,
en ef maður hefur vit á að biðja er
því yfirleitt sinnt. Ég hef unnið fyrir
öllu mínu sjálf í þessum geira, mér
hefur ekki verið boðið neitt – nema
kannski núna á allra síðustu tímum.
Það er mikil samkeppni í fjöl-
miðlaheiminum og ég vil að konur
standi saman. Það er ofsalega erfitt
stundum að berjast í þessu fagi.
Karlar standa alltaf saman og við
konur eigum líka að gera það. Það
er sérstaklega góður andi meðal
kvennanna á Stöð 2. Mér finnst að
konur eigi að hrósa hver annarri,
hvort sem það er í fjölmiðlaheim-
inum eða annars staðar. Ef kona
gerir góða hluti eða fær góða stöðu
á hún að fá hrós frá okkur konum.
Ef ráðist er að konu eigum við að
verja hana. Framgangur kvenna
verður meiri og betri ef konur
standa saman. Í þessu fagi fá sumir
„break“, aðrir ekki, og þetta er starf
sem gerir fólk áberandi. Ég hata
þetta hugtak „konur eru konum
verstar“. Kannski var það þannig,
ég veit það ekki. Edda Andrésdóttir
hefur alla tíð verið mér mikil fyrir-
mynd og hún hefur verið mér mikill
stuðningur. Hún leiðbeindi mér
þegar ég var að byrja í fréttalestr-
inum og það er svo mikið veglyndi
af hennar hálfu. Hún er svo örugg
í sínu skinni og hún hrósar. Edda
hefur hvatt mig meira en nokkur
önnur kona í þessu fagi og þegar
ég verð stór og eldri á einhverri
fréttastofu ætla ég að verða eins og
hún við ungu konurnar!“
Upplifði mikið myrkur
Þótt Helga hafi verið nokkuð
áberandi á skjánum síðustu árin
má með sanni segja að henni hafi
skotið upp á stjörnuhimininn með
tilheyrandi látum í síðustu viku,
þegar hún var með úttekt á Guð-
mundar- og Geirfinnsmálunum og
lagði meðal annars fram dagbækur
Tryggva Rúnars Leifssonar. Það
leiddi svo til þess að Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra ákvað
að skipa nefnd til að fara ofan í
saumana á þeim málum.
„Ég hafði verið að vinna í þessum
málum frá því í sumar,“ segir
Helga. „Áhugi minn vaknaði eftir
að Sævar Ciesielski lést og það
byrjaði einhver sundurleit um-
fjöllun. Ég hafði lesið bókina „19.
nóvember“ og kom mér í samband
við Freyju Jónsdóttur blaðamann
sem skrifaði bókina, byggða á
frásögnum Hauks Guðmundssonar,
lögreglumanns í Keflavík. Freyja
kom mér í samband við Hauk og
hann benti mér á fleiri sem ég gæti
talað við. Fyrst ætlaði ég bara að
rifja málið aðeins upp en svo vatt
þetta upp á sig og allt í einu var ég
komin með viðtal við fjölmarga. Ein
þeirra sem ég fór að hitta til að taka
viðtal við var Sigríður Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, ekkja Tryggva Rún-
ars. Þegar ég kom heim til hennar
var dóttir þeirra þar og þannig fékk
ég dagbækur Tryggva Rúnars í
hendur.“
Hér er rétt að taka það fram að
hvoruga þeirra þekkti Helga, en í
síðdegisþættinum Reykjavík síð-
degis í liðinni viku sagði Sigríður
Sjöfn að þær mæðgur hefðu ekki
haft góða reynslu af fjölmiðlafólki –
en þá hefði Helga Arnardóttir birst
og þær hefðu samstundis vitað
að þeirri ungu konu væri hægt að
treysta.
„Mér þótti ótrúlega vænt um að
heyra þetta,“ segir Helga. „Maður
verður heltekinn af þessu máli og
það er enginn vandi. Hins vegar
skynjar maður mikinn sársauka og
mikið myrkur í því. Þetta harðræði,
þessi málsmeðferð öll, yfirheyrsl-
urnar og meðferðin gagnvart þeim
öllum, getur ekki annað en misboð-
ið réttlætiskennd manns. Ekki bara
að lesa um það, heldur að heyra það
frá sakborningunum sjálfum sem
eftir lifa. Lyfjagjafir, sársaukinn,
einmanaleikinn og vosbúðin þarna
inni, lokaðir í klefa. Það sem kom
mér mest á óvart var að Gísli Guð-
jónsson réttarsálfræðingur skyldi
vera reiðubúinn að tjá sig um málið.
Það tel ég að hafi gefið því byr
undir báða vængi. Vissulega var
hann rannsóknarlögreglumaður á
þessum tíma, en hann segist aldrei
hafa komið að þessu máli og sé
tilbúinn að aðstoða við rannsóknina
núna. Ég hugsa að hann muni taka
réttarsálfræðivinkilinn á þessa
rannsókn sem nú stendur yfir. Ég
tel það mjög dýrmætt því hann
hefur það gott orðspor.“
Kranablaðamennska í upphafi
Guðmundar- og Geirfinnsmála
En áttirðu von á þessari bombu
sem sprakk í kjölfar viðtalanna
þinna?
„Nei, aldrei. Ég byrjaði sem sagt
í sumar en fékk svo þrjár vikur
Helga Arnardóttir „... fyrir 25 ára stúlku að koma inn í umhverfið sem ríkir hjá RÚV
var vissulega erfitt. Ég þurfti að brýna klærnar og svara sumum þessara karlmanna á
fréttastofu Útvarpsins.“
32 viðtal Helgin 14.-16. október 2011