Fréttatíminn - 14.10.2011, Side 52
48 garðar unnið í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands Helgin 14.-16. október 2011
L
engi vel bjuggum við Íslendingar svo vel að vorin voru vot og oft og tíðum
nokkuð hlý. Sólríkustu dagar vorsins voru að sjálfsögðu á meðan skóla-
krakkar sátu sveittir yfir skólabókunum en um leið og prófum lauk fór að
rigna og rigndi nokkuð samviskusamlega fram yfir 17. júní, sem oft og
tíðum batt endahnútinn á vætutíðina með hressilegu slagviðri. Þessar tímar
virðast nú heyra sögunni til. Þurrasti árstíminn er nú gjarna vorið og jafnvel hefur
legið við að sólskinsstunda- og hitamet hafi verið slegin á sjálfan þjóðhátíðardaginn!
Sú breyting sem við höfum orðið vör við á veðurfari hérlendis
síðustu árin hefur haft margvíslegar afleiðingar, ekki síst í
garðyrkju. Nú er til dæmis hægt að rækta ýmsar tegundir vor-
blómstrandi plantna sem alls ekki gekk að rækta fyrir 10-15
árum og má þakka það því að síðustu vor hafa verið mildari og
lengri en áður var.
Gróðursetningartímabilin
Garðyrkjumenn hafa lagað hegðun sína og atferli nokkuð að
þessu breytta tíðarfari. Áður fyrr kappkostuðu menn að koma
öllum plöntum niður fyrir 17. júní og eftir þann tíma var sölu-
tímabili í gróðrarstöðvum hreinlega lokið; þorri plantna var
gróðursettur að vori enda gott að planta í vætutíð og hlýindum.
Síðustu ár hafa garðyrkjumenn smám saman hætt að gróður-
setja plöntur á vorin og farið í að gróðursetja á haustin í staðinn.
Í raun er hægt að gróðursetja allt sumarið, svo framarlega sem
plönturnar eru ræktaðar í pottum því þá eru þær tilbúnar til
gróðursetningar hvenær sem er. Plöntur sem teknar eru upp
af beði og eru ýmist berróta eða hnausplöntur er hins vegar
best að gróðursetja snemma á vorin áður en þær laufgast eða
síðla sumars og fram á haust, eftir að lengdarvexti greina og
yfirbyggingar plöntunnar lýkur. Talað er um haustgróður-
setningu þegar plöntur eru búnar að ljúka vexti og komnar með
haustlit eða búnar að fella laufið að haustinu. Samkvæmt þessu
getur tímabil haustgróðursetningar hafist strax upp úr miðjum
ágúst, þegar harðgerar plöntutegundir eins og birki ljúka vexti.
Kannski væri réttara að tala um síðsumargróðursetningu í þeim
tilfellum.
Haustgróðursetningar hafa marga kosti í för með sér fyrir
garðeigendur og ekki kannski síst fyrir þá sem eru að rækta
plöntur í sumarbústaðalandinu sínu og hafa ekki tök á að sinna
þeim daglega.
Eftir að vöxtur greinanna stöðvast taka ræturnar til við að
vaxa fram á haustið og þær halda áfram vexti þar til hitastigið í
jarðveginum er komið niður í um það bil 5°C; eftir það leggjast
ræturnar í dvala líka. Þetta þýðir að ef plöntur eru gróðursettar
snemma í september getur rótakerfið vaxið hægt og rólega í 6-8
vikur fram á haustið, ef tíðin er góð. Með því móti ná plönturnar
að festa sig aðeins í sessi fyrir veturinn.
Vaxtartímabil
Næsta vor hefst vaxtar-
tími plantnanna á því að
rótakerfið tekur við sér
um leið og hitastigið í
jarðveginum hækkar.
Ræturnar hefja vöxt og
fara að taka upp vatn sem
er forsenda þess að laufg-
un geti átt sér stað. Þessi
rótavöxtur getur hafist
snemma í apríl í góðu
vori en yfirleitt fara garð-
eigendur ekki að huga að
gróðursetningu fyrr en
um miðjan maí. Plöntur
sem gróðursettar eru að
hausti fara því fyrr af stað
á vaxtarstaðnum og geta
átt mun lengra vaxtartímabil en ef þær væru gróðursettar að vori.
Eftir að plöntur ljúka vexti á haustin falla þær í dvala og það
skiptir plönturnar í raun engu máli hvort þær eru í dvala inni í
gróðrarstöð eða annars staðar. Eitthvað hefur borið á því að mjög
fínlegar greinar geti þornað upp ef veturinn er vindasamur og
plönturnar staðsettar á erfiðum stöðum en þetta er í raun ekki
bundið við plöntur sem gróðursettar eru að haustinu.
Vissulega geta plöntur orðið fyrir skakkaföllum yfir veturinn.
Frostlyfting getur verið vandamál á stöðum þar sem gróðursett
er í erfiðan jarðveg. Garðyrkjumenn eiga að sjálfsögðu ráð gegn
þessum vanda. Hægt er að setja þekjandi efni yfir jarðvegsyfir-
borðið kringum plöntuna.
Gróðursetning
plantna á haustin
Frá afhendingu ávaxtatrjáa til félagsmanna.
GarðyrkjufélaG ÍsLands
Ræktað með
Garðyrkjufélaginu
um land allt
Þ að er líf í Garðyrkjufélaginu þessa dagana. Það lifir vel í gömlum glæðum þessa 126 ára félags sem
nú stendur fyrir nýjungum í ræktun
og boðar nýja tíma. Það eru spennandi
tímar fram undan í ræktun hér á landi.
Ávaxtaverkefnið sem sett var á lagg-
irnar í fyrravetur í samvinnu við Land-
búnaðarháskólann, komst á flug með
afhendingu yfir 1.750 plantna til um 160
félaga úti um allt land, frá Hornafirði og
Suðurnesjum til Ísafjarðar, Bjarnarfjarð-
ar á Ströndum, Húsavíkur og austur á
Hérað. Nú horfir fólk með eftirvæntingu
til næstu ára hvernig til tekst. Nýstofn-
aður ávaxtaklúbbur gefur klúbbfélögum
aftur möguleika á að panta ungar ávaxta-
plöntur fyrir 10. október. Þessar plöntur
verða til afgreiðslu á vordögum.
Um þessar mundir er félagið að kynna
nýja möguleika í ræktun berjarunna.
Hugmyndin er m.a. að sækja nýjan efni-
við til Finnlands til prófunar hér á landi.
Reynslan af finnskum rósa- og ávaxta-
yrkjum bendir til þess að Finnar búi yfir
tegundum og yrkjum sem gætu passað
vel fyrir Íslendinga. Sumt er komið frá
Rússlandi og annað frá Kanada en á
það sammerkt að geta gefið góða upp-
skeru við erfið skilyrði. Íslendingar hafa
ekki almennt áttað sig á því hve góða
möguleika við eigum á þessu sviði og
hve heilsusamleg uppskeran er, þökk sé
löngum, björtum sumardögum á norð-
lægum slóðum.
Grenndargarðarnir hafa nú verið starf-
ræktir á þrem stöðum á höfuðborgar-
svæðinu við vaxandi vinsældir. Leigjend-
ur garða ganga að sínum matjurtareitum
um lengri tíma ef þeir kjósa og mun fé-
lagið fjárfesta í girðingum og verkfærum
til að auðvelda umhirðu reitanna. Þá mun
félagið áfram veita fræðslu um matjurta-
rækt og aðstoða garðleigjendur á staðn-
um með góðum ráðum. Akureyrarbær
hefur leigt út grenndargarða með góðum
árangri. Matjurtaklúbburinn hefur staðið
fyrir námskeiðum og fræðslufundum um
matjurtarækt og kynnt til sögunnar nýjar
tegundir og yrki matjurta.
Rósaklúbbur Garðyrkjufélagsins hefur
verið starfræktur í níu ár og staðið fyrir
tilraunum til að finna heppileg rósayrki
fyrir íslenskar aðstæður og aðstoðað
meðlimi við innkaup á tegundum og
yrkjum sem lítið hafa verið á markaði
hérlendis. Það hefur gefist vel og þekk-
ing á rósaræktun hefur breiðst hratt út.
Nýlega var opnaður rósagarður í Laugar-
dal í samstarfi klúbbsins og Reykjavíkur-
borgar. Þar er til sýnis fjöldi yrkja sem
hafa reynst vel eða lofa góðu. Fram und-
an er kynning Rósaklúbbsins á reynslu
félaga til þessa fyrir meðlimi Garðyrkju-
félagsins og verður almenningi boðið að
koma og hlýða á fyrirlestrana. Þar verður
margt áhugavert fyrir þá sem vilja kynn-
ast drottningu blómanna, rósinni, og
skreyta umhverfi sitt. Á næsta ári verður
Norræna rósahelgin haldin á Íslandi á
vegum klúbbsins. Um 130 manns annars
staðar á Norðurlöndum hafa látið í ljós
áhuga á að koma.
Félagið hefur nú endurreist eða
stofnað deildir með félögum sínum á
Suðurlandi, Suðurnesjum, í Borgarfirði,
á Snæfellsnesi, í Eyjafirði, á Húsavík,
Egilsstöðum og í undirbúningi er endur-
reisn deilda á Hornafirði og Ísafirði.
Skagfirðingar hafa starfrækt félags-
deild um langt árabil sem aldrei hefur
lagst út af. Breytingar á samgöngum og
endurnýjaður áhugi á heimaræktun sem
tengist breytingum á lífsstíl skapar þörf
fyrir félagslegan vettvang til fræðslu og
miðlunar á góðum efniviði til ræktunar
víða um land.
Í Garðyrkjufélaginu fjölgar meðlimum
ört þessi misserin og greinlegt er að
starfsemi þess fellur í frjóan jarðveg
– bókstaflega. Glæsilegt, árlegt Garð-
yrkjurit fylgir félagsaðild og hefur komið
nánast samfellt út frá 1895. Í því birtist
mikilvægur fróðleikur um ræktun í takt
við þörf á hverjum tíma, og byggir hann
ekki síst á eigin reynslu félaga, bæði
leikra og lærðra.
Fólk getur skráð sig í félagið á heim-
síðu þess gardurinn@gardurinn.is
Velkomin í Garðyrkjufélag Íslands!
Skoðaðu kosti þess
að vera félagi Öflug heimasíða www.gardurinn.is
Frakkastíg 9 - 101 Reykjavík - Sími 552 7721 og 896 9922 - gardurinn@gardurinn.is
Myndarleg hola tilbúin.
Mold mokað varlega að rótum plöntunnar.
Plantan komin á sinn
stað, vökvuð og tilbúin
fyrir veturinn.
Haustgróðursetning í
sumarbústaðalandinu.
Vænn skammtur af hús-
dýraáburði í fötu.
Jóhann Pálsson afhjúpar upplýsingaskilti við
opnun Rósagarðs í Laugardal 21. júlí, 2011