Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Page 64

Fréttatíminn - 14.10.2011, Page 64
Sími í mið asölu 5511200 PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 12 81 7 TRYGGÐU ÞÉR SÆTI! Kortasölu lýkur núna um helgina Tryggðu þér leikhúsupplifun á frábæru verði. 4 leiksýningar á aðeins 11.900 kr. – 33% afsláttur! Glatt á hjalla á Íslandsmessu Ísland er í aðalhlutverki á bókakaupstefnunni í Frankfurt, þeirri stærstu sinnar tegundar í heiminum. Kaupstefnan verður opnuð almenningi um helgina og er þá reiknað með 50.000 gestum í íslenska skálann. Innanbúðarfólk í heimi bókanna hóf hins vegar leik á þriðjudag þegar útgefendur, höfundar og fjölmiðlafólk mættu á sýningarstaðinn. Þar á meðal var Þorsteinn Joð, sem sendi þessar stemningsmyndir. Halldór Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Sögueyjunnar, eins og Íslandssýningin kallast, var í við- tali í „heim- ilishluta“ íslenska sýningarskálans. Þar eru sófar og borðstofuhúsgögn og Singer-sauma- vélar frá sjöunda áratug síðustu aldar, bækur í hillum og allt eins og í stofunni heima. Ljósmyndir/ Þorsteinn Joð Egill Helgason að undirbúa viðtal við danska spennusagna- höfundinn Jussi Adler- Olsen. Jón Gnarr borgarstjóri að undirbúa ræðu í íslenska sýningarskálanum í gær, fimmtudag, í tilefni þess að Reykjavík var formlega gerð að Bókmenntaborg Unesco. Jón las meðal annars upp úr ljóði eftir Vilhjálm frá Skáholti, Jesús Kristur og ég, á þýsku. Steinunn Sigurðardóttir í viðtali við ARTE-sjónvarps- stöðina í íslenska skálanum, heimilishlutanum. Guðrún Eva Mínervudóttir var hinn opnunarræðumaður Íslands. Hún var í hvítum kjól og komin sjö mánuði á leið. Jón Kalman Stefánsson rithöfundur í viðtali í hádeginu í gær við þýsku 3SAT, þar sem hann sagði frá skáldsögu sinni, Himnaríki og helvíti, sem er nýkomin út í Þýskalandi. 60 menning Helgin 14.-16. október 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.