Fréttatíminn - 14.10.2011, Síða 66
L eikhúslistamennirnir Sig-urður Skúlason og Benedikt Árnason standa saman að
sýningu byggðri á höfundarverki
Williams Shakespeare í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Um er að ræða einleik
þar sem leiktexta úr ýmsum verkum
Shakespeares, í þýðingu Helga Hálf-
danarsonar, er fléttað saman. Þarna
er stiklað á stóru, og þá aðallega
út frá mannskilningi leikskáldsins
fræga. Sigurður stendur á sviðinu,
Benedikt leikstýrir.
Það er augljóst frá upphafi hvers
konar upplifun er hér í boði. Sig-
urður bregður sér í heimsþekkt
hlutverk leikbókmenntanna og
flytur magnaðan texta skáldsins, á
sinn kröftuga en hógværa hátt og
án nokkurra „hjálpartækja”. Hann
gerir þetta af þó nokkurri íþrótt og
nýtur sín vel en sýningin öll er mjög
fyrirsjáanleg og ég sakna þess veru-
lega að þeir félagar skuli ekki leggja
meira út af efninu en raun ber vitni.
Þetta varð á köflum eins og „best-
of”-plata eða lagleg tilvitnanabók –
gripir sem eru sannarlega ágætir til
síns brúks en rista grunnt.
Flestir vita jú að Shakespeare var
og er hreint magnað leikskáld, arf-
leifð hans er mikilvæg og merkileg
– mannskilningur hans einstakur.
Stundum þarf að minna á hið aug-
ljósa en ég held að hér hafi gullið
tækifæri farið forgörðum. Efnivið-
urinn er auðugur en listamennirn-
ir fara örugga leið og nálgast hann
með ópersónulegum silkihönskum.
Það er gaman að sjá Sigurð Skúlason
á sviðinu en það skilur ekki annað
eftir sig en staðfestingu þess sem
maður mögulega vissi fyrir: Shake-
speare er sígildur meistari og Sig-
urður er hæfileikaríkur leikari.
Kristrún Heiða Hauksdóttir
Upphafning þess augljósa
Hvílíkt snilldarverk
er maðurinn!
Leikur einn í samvinnu við Þjóðleikhúsið
Höfundar: Sigurður Skúlason og Benedikt Árnason
Leikstjóri: Benedikt Árnason
Leikdómur HvíLíkt sniLLdarverk . . . sýnt í ÞjóðLeikHúsinu
„Leikurinn gerist árið 1965 og það var ákveðið að
halda sig við þann tíma. Leikstjórinn gaf þá skýr-
ingu að í nútímanum væri of mikið um farsíma til
þess að það yrði sannfærandi að leikurinn gerðist
meira og minna í myrkri,“ segir Þóra Karítas sem
tók því fagnandi að fá að fara aftur í tímann, ekki
síst í klæðaburði. „Mér finnst þetta líka bara svo
skemmtilegt tímabil þannig að það kveikti í mér
að þetta væri frekar þarna en í núinu.“
Peter Shaffer er öllu þekktari fyrir þyngri og
dramatískari verk eins og Equus. „Hann er svo-
lítið að gera grín að yfirstéttinni og stéttaskipt-
ingu með því að setja fína fólkið í aðstæður þar
sem það getur ekki verið alveg jafn fínt og það vill
vera.“
Leikurinn gerist í London þar sem ungur,
fátækur listamaður og unnusta hans fá ríkulega
antíkhúsmuni að láni án leyfis til að ganga í
augun á föður hennar, uppskrúfuðum og stífum
ofursta. Fleira fólk bætist í hópinn, meðal annars
Þóra Karítas sem mætir óboðin og óvænt í hlut-
verki fyrrverandi ástkonu listamannsins. Síðan
fer rafmagnið af og í myrkrinu hleðst ruglingur-
inn og grínið upp.
„Hún er smá tálkvendi,“ segir Þóra. „Hún
mætir á svæðið vegna þess að hún áttar sig á því
að hún gerði mistök þegar hún hætti með kærast-
anum sínum og er komin til að endurheimta hann
– ætlar í það minnsta að eyðileggja þetta nýja sam-
band fyrir honum.“
Þóra segir glímu leikaranna við að látast vera
í myrkri á sviðinu hafa verið mjög áhugaverða
og að hún hafi tekið nokkuð á. „Ég bý til dæmis
í leikaraíbúð með Árna Pétri Guðjónssyni, Guð-
mundi Ólafssyni og Einari Aðalsteinssyni og við
erum búin að vera að slökkva ljósin og pæla í
hvernig við hreyfum okkur í myrkri. Þar er mað-
ur oft alveg fáránlegur, ber hendurnar fyrir sig og
dansar eiginlega frekar en gengur.“
Þóra segir myrkrið bjóða upp á gott grín og
ýmis skakkaföll en á æfingum hafi verið erfiðast
að gleyma sér ekki og horfa beint í augu mótleik-
aranna. „Það má ekki vegna þess að í myrkrinu
myndi maður horfa aðeins meira til vinstri eða
hægri því að maður veit ekki nákvæmlega hvar
manneskjan er.“
toti@frettatiminn.is
Þóra karítas Leikur í svörtu kómedíunni
Fálmaði sig áfram í myrkri
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld, föstudagskvöld, farsann Svörtu kómedíuna eftir Peter
Shaffer. Á sviðinu kemur saman hópur reyndra og yngri leikara í fjörugum gamanleik sem gerist
að mestu í myrkri þótt sviðið sé upplýst. Þóra Karítas Árnadóttir leikur þar konu sem er til alls
vís; hálfgert tálkvendi
Þóra Karítas kann vel við sig í múnderingu sjöunda
áratugarins enda hrifin af því tímabili. Ljósmynd/Grímur
Bjarnason
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
65
89
1
0/
11
Gildir til 18. október.
Lægra
verð
í Lyfju
20%
afsláttur
af Efalex
Eflir og styrkir hugsun,
einbeitingu, sjón og
hormónajafnvægi.
Fös 14.10. Kl. 19:30 9. sýn.
Fös 14.10. Kl. 22:00 3. aukas.
Lau 15.10. Kl. 16:00 10. sýn.
Lau 15.10. Kl. 19:30 11. sýn.
Fim 20.10. Kl. 19:30 2. sérst.
Fös 21.10. Kl. 19:30 3. sér.
Lau 22.10. Kl. 16:00 12. sýn.
Lau 22.10. Kl. 19:30 13. sýn.
Sun 23.10. Kl. 19:30 14. sýn.
Lau 29.10. Kl. 16:00 15. sýn.
Lau 29.10. Kl. 19:30 16. sýn.
Listaverkið (Stóra sviðið)
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Fös 4.11. Kl. 19:30
5. aukas.
Lau 5.11. Kl. 19:30
6. aukas.
Lau 19.11. Kl. 19:30
22. sýn.
Sun 13.11. Kl. 19:30 21. sýn.
Fös 14.10. Kl. 19:30
12. sýn.
Lau 15.10. Kl. 19:30 13. sýn.
Fim 20.10. Kl. 19:30 3. auks.
Fös 21.10. Kl. 19:30 14. sýn.
Lau 22.10. Kl. 19:30 15. sýn.
Fim 27.10. Kl. 19:30 4. auks.
Lau 12.11. Kl. 19:30 20. sýn.
Lau 29.10. Kl. 19:30 17. sýn.
Fim 3.11. Kl. 19:30 18. sýn.
Mið 9.11. Kl. 19:30 19. sýn.
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 16.10. Kl. 14:00 38. sýn.
Hreinsun (Stóra sviðið)
Uppnám (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 15.10. Kl. 22:00 7. sýn. Lau 29.10. Kl. 22:00 8. sýn. Fös 2.12. Kl. 22:00
Fim 27.10. Kl. 19:30 Frums.
Fös 28.10. Kl. 19:30 2. sýn.
Fös 4.11. Kl. 19:30 3. sýn.
Lau 5.11. Kl. 19:30 4. sýn.
Lau 12.11. Kl. 19:30 5. sýn.
Sun 13.11. Kl. 19:30 6. sýn.
Lau 19.11. Kl. 19:30 7. sýn.
Sun 20.11. Kl. 19:30 8. sýn.
Fim 24.11. Kl. 19:30 9. sýn.
Fös 25.11. Kl. 19:30 10. sýn.
Fös 2.12. Kl. 19:30 11. sýn.
Lau 3.12. Kl. 19:30 12. sýn.
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
Ö
Ö
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 14.10. Kl. 19:30 4. sýn. Lau 15.10. Kl. 19:30 5. sýn. Mið 19.10. Kl. 19:30 6. sýn.
Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 16.10. Kl. 21:00 Frums. Fös 21.10. Kl. 22:00
2. sýn.
Lau 22.10. Kl. 22:00
3. sýn.
U
U
U
Ö
U
Ö
U
U
Ö
Ö
U
U
Ö
Hlini kóngsson (Kúlan)
Lau 15.10. Kl. 13:30 Lau 15.10. Kl. 15:00
ATHUGIÐ SÍÐASTA SÝNING!
U Sun 30.10. Kl. 19:30 17. sýn.
U
Fös 28.10. Kl. 19:30 16. sýn.
Sun 20.11. Kl. 19:30 23. sýn.
Fim 24.11. Kl. 19:30 24. sýn.
Fös 25.11. Kl. 19:30 25. sýn.
Lau 22.10. Kl. 13:30
Síðasta sýning
sunnudaginn
16. október kl. 14
62 menning Helgin 14.-16. október 2011