Fréttatíminn - 30.12.2011, Blaðsíða 64
Vigdís, Bragi og Ólafur
í Egyptalandi
Egypska forlagið Animar hefur
keypt útgáfuréttinn af bókum
eftir þrjá íslenska rithöfunda. Um
er að ræða
Tröllkirkjuna
eftir Ólaf
Gunnarsson,
Gæludýrin
eftir Braga
Ólafsson og
Z ástarsaga
eftir Vigdísi
Grímsdóttur.
Allar þessar
bækur munu koma út á arabísku á
næstunni. -óhþ
Síðasti sjéns á Nasa
Tónlistarskemmtunin Síðasti
Sjens verður haldin í þriðja sinn á
Nasa á næst síðasta kvöldi ársins í
kvöld, föstu-
dagskvöld.
Þá verður
allt hækkað
í botn með
dansi og
glensi.
Hljómsveit
ársins, Of
Monsters and
Men, treður
upp auk Retro Stefson og Rich
Aucoin frá Halifax en sá náungi
batt endahnútinn á Iceland Airwa-
ves og slær hvergi af þegar hann
tryllir lýðinn.
Hægt er nálgast miða á midi.is og
í verslunum Brim við Laugaveg og
í Kringlunni. Húsið opnar kukkan
22 og skemmtunin hefst skömmu
síðar.
Vicky á lista Rolling Stone
Tónlistarskríbentinn David Fricke
hjá hinu goðsagnarkennda tón-
listartímariti Rolling Stone setur
plötuna Cast
a Light með
hinu öfluga
rokkbandi
Vicky á lista
sinn yfir
áhugaverð-
ustu plötur
ársins 2011 – þeirra sem flugu
undir radar. Fricke segist aðeins
hafa heyrt hluta af tónleikum
Vicky á Iceland Airwaves en það
hafi dugað honum til þess að
heyra uppáhaldslag sitt í ár, How
Do You Feel? Hann leynir hvergi
hrifningu sinni á plötunni og segir
vel þess virði að hafa uppi á henni
og mælir með því að fólk hefji
leitina á iTunes. Í herbúðum Vicky
ríkir vitaskuld mikill fögnuður og
á heimasíðu sveitarinnar segir:
„Vá þvílíkur heiður!“
Frelsi og breytingar
„Orkan sem fer af stað núna
2012 merkir frelsi, breytingar,
nýjungar, hugmyndir. Ef heldur
áfram að halla á fólk getur það á
endanum ekki gert annað en líkt
eftir atgervi músarinnar. Ef hún
er komin út í horn stekkur hún á
þig. Það er líka í mannlegu eðli,“
segir Hermundur
Rósinkranz
talnaspek-
ingur þegar
hann horfir
fram á veginn
og spáir í
árið 2012
í sam-
tali við
Frétta-
tímann
sem
birt er
í heild
á
www.
fretta-
tim-
inn.
is.
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Hrósið …
... fær Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
Alcoa Fjarðaáls, en hann mun taka við sem
forstjóri Alcoa í Evrópu nú um áramótin.
Tómas er þekktur af prúðmennsku og fram-
ganga hans innan Alcoa ber félaginu góðan
vitnisburð.