Fréttatíminn - 02.03.2012, Page 12
Forngripir almennings greindir
Þjóðminjasafnið Þjónusta sérfræðinga á sunnudaginn
a lmenningi er boðið að koma með gamla gripi til greining-ar hjá sérfræðingum Þjóð-
minjasafns Íslands sunnudaginn 4.
mars. Að þessu sinni er fólk sérstak-
lega beðið að koma með heimasaum-
uð föt, skartgripi og annað tengt
klæðaburði áður fyrr, en sérfræð-
ingar safnsins hafa mikinn áhuga
á slíku í tengslum við sýningarnar
Tízka – kjólar og korselett, þar sem
sjá má kjóla frá árunum 1947-1970, og
Handaverk frú Magneu Þorkelsdótt-
ur bsikupsfrúar; úrval þjóðbúninga
úr smiðju hennar. Einnig er velkomið
að koma með annars konar gripi af
ýmsum toga.
Dagskráin hefst klukkan 14 og lýk-
ur klukkan 16 og samkvæmt fenginni
reynslu næst að greina um 50 gripi á
þeim tíma, að því er fram kemur í til-
kynningu Þjóðminjasafnsins. Fólki
er því bent á að koma tímanlega og
taka númer.
Þetta er í tíunda skipti sem safn-
ið býður fólki að koma með gripi til
greiningar, en þessir greiningardag-
ar safnsins hafa verið mjög vel sóttir.
Margt skemmtilegt hefur komið í ljós
sem er fróðlegt fyrir gesti og um leið
gefst starfsmönnum Þjóðminjasafns-
ins tækifæri til að sjá áhugaverða
gripi sem til eru á heimilum fólks.
Einungis verður reynt að greina
muni með tilliti til aldurs, efnis og
uppruna en starfsmenn meta ekki
verðgildi gamalla gripa. Eigendur
taka þá með sér aftur að lokinni
skoðun. -jh
Forngripir greindir af sérfræð-
ingum Þjóðminjasafnsins.
aðeins fram á sunnudag
Lagerútsala!
30-70%
afsláttur
Bak við Holtagarða!!
s tjórn Félags for-stöðumanna ríkis-stofnana krafðist
þess á fundi með fulltrú-
um kjararáðs að það
gætti jafnréttis við launa-
ákvarðanir. Tilefnið var
uppljóstrun Fréttatímans
um að heildarlaun fram-
kvæmdastjóra Fríhafnar-
innar hefðu lækkað um
85 þúsund krónur þegar
kona tók við starfinu að
karli. Ósk Ástu Sigrúnar
Helgadóttur, umboðs-
manns skuldara, um end-
urskoðun á launum sínum
vegna fárra yfirvinnu-
eininga sem henni voru
dæmdar þrátt fyrir mikil
umsvif, vegur þungt.
Magnús Guðmundsson, formaður
Félags forstöðumannanna, segir þá ekki
geta metið út frá úrskurðum kjararáðs
hvort það mismuni kynjunum við launa-
ákvarðanir þar sem forsendurnar fyrir
þeim séu óþekktar. Undan því hafi félagið
kvartað og er málið nú í skoðun hjá um-
boðsmanni Alþingis.
Í ályktun félagsins sem afhent var á
fundinum skorar félagið á kjararáð að
rannsaka skipulega bæði
grunnlaun og einingar
sem greiddar eru fyrir
yfirvinnu og álag sem og
greidd hlunnindi og „upp-
ræta í kjölfarið kynbundinn
launamun meðal forstöðu-
manna.“ Magnús segir að
fulltrúar kjararáðs hafi
fullyrt á fundinum að þessi
munur væri ekki gerður á
kynjunum.
Mikla athygli vakti þegar
Fréttatíminn sagði frá því
að kjararáð hefði lækkað
laun framkvæmdastjóra
Fríhafnarinnar þegar
Ásta Dís Óladóttir tók við
starfinu. Það ákvað svo að
hækka launin til jafns á við
það sem Hlynur Sigurðs-
son hafði daginn sem það átti að verja
ákvörðun sína fyrir kærunefnd jafnréttis-
mála. Vörn kjararáðs er að ekki hafi verið
búið að lækka laun framkvæmdastjórans
að fullu til jafns á við aðra forstöðumenn.
Ekki hafi þótt forsvaranlegt að lækka laun
Hlyns svo bratt í fyrstu atrennu.
gunnhildur arna gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
launabarátta funduðu með kjararáði
Krefjast þess að kjararáð
greiði jafnt til kynjanna
Félag forstöðumanna ríkisstofnana krefst þess að jafnréttis verði gætt við launaákvarðanir. Í
kjölfar frétta Fréttatímans funduðu forstöðumenn og fulltrúar kjararáðs. Forstöðumennirnir
gagnrýna að geta ekki borið laun sín saman vegna óljósra viðmiða ráðsins.
13,4%
hlutFallið
sem kjararáð
ákvað að skera
laun Fram-
kvæmdastjóra
FrÍhaFnarinnar
niður.
Þegar kona tók við
starfinu af karli.
Kjararáð
Fréttatíminn upplýsti að
um kjarabaráttu ástu dísar
óladóttur við kjararáð og um
óánægjuna með störf þess.
atvinnulausum
fækkar
atvinnuleysi hefur minnkað um eitt
og hálft prósent milli ára í Hafnarfirði.
alls eru tæp átta prósent bæjarbúa
án vinnu. Það er hálfu prósentustigi
meira en á landinu öllu. alls voru 11.452
atvinnulausir á landinu í janúar. mest
var atvinnuleysið á suðurnesjum eða
12,5 prósent, en minnst á norðurlandi
vestra – 2,8 prósent. atvinnulausum á
suðurnesjum hefur fækkað um tæp tvö
prósentustig milli ára. atvinnuleysið á
landinu í janúar var 7,5 prósent meðal
karla og 6,8 prósent meðal kvenna. - gag
victoria’s secret opnar
Fríhöfnin opnaði á miðvikudag fyrstu victoria‘s
secret verslunina á Íslandi í brottfararrými
Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Victoria’s
secret er leiðandi
fyrirtæki á heimsvísu í
smásölu á snyrtivörum og
undirfatnaði fyrir konur.
á boðstólum er meðal
annars victoria‘s secret
Beauty-vörulínan ásamt
hinum þekktu Bombshell-
og vs angel-ilmvötnum, sem slegið hafa í gegn
víða um heim. einnig er sérstakt úrval af leður-
vörum, töskum, nærbuxum, bolum og öðrum
hátísku fylgihlutum frá victoria‘s secret.
10 fréttir helgin 2.-4. mars 2012