Fréttatíminn - 02.03.2012, Síða 20
Hún fjallar
um neyðina,
fátæktina
og misréttið
sem er því
miður ennþá
til staðar.
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
H2O heilsukoddinn
Verslaðu á vefnum Frí sending að 20 kg 1 árs skilaréttur
• Minnkar verki í hálsi og eykur svefngæði • Fylltur með vatni eftir þörfum
9.750 kr.
Selma var vel þekkt söng-, leikkona og
Eurovision-fari þegar hún fikraði sig yfir í
leikstjórnina sem hún hefur stundað meira
og minna frá árinu 2007. „Ég tek samt enn
hlutverk svona í og með og hoppa inn í
sýningar hér og þar. Ég stekk einmitt inn
í Rómeó og Júlíu hjá Vesturporti bara um
leið og ég klára hér,“ segir Selma. „Það er
alltaf ofsalega skemmtilegt að þurfa ekki
að vera með alla yfirsýn og alla ábyrgðina
og einbeita sér bara að leiknum. En vissu-
lega finnst mér mjög gaman að leikstýra,
að hafa þessa yfirsýn, skapa heiminn, kafa
ofan í verkið og greina það. Mér finnst það
ofsalega gefandi og spennandi.“
Risavaxið draumaverkefni
Þegar Selmu bauðst að leikstýra Vesaling-
unum hikaði hún ekki augnablik. „Tinna
[Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri] hafði
samband við mig fyrir ári síðan og bauð
mér að gera þetta og ég þurfti engan tíma
til að hugsa mig um og svaraði bara á staðn-
um. Ég er söngleikjanörd, Vesalingarnir
eru í miklu uppáhaldi hjá mér og ég hef
haldið upp á söguna. Ég sá Vesalingana
fyrst sem teiknimynd sem lítið barn. Hún
hitti mig í hjartastað, snerti rosalega við
mér og vék aldrei úr huga mér eftir það.
Ég kynntist síðan tónlistinni einhvern tíma
á unglingsaldri. Sá síðan söngleikinn úti
í London fyrir einhverjum árum síðan,
hef séð allar bíómyndirnar og auðvitað
lesið bókina. Þannig að þetta er vissulega
draumaverkefni.“
Og verkefnið er risavaxið. Þjóðleikhúsið
tjaldar öllu til og allar deildir hússins voru
virkjaðar í verkefnið; eru í raun undirlagðar
að sögn Selmu. Hún er með 25 manns á
sviðinu, fjórtán manna hljómsveit, sviðs-
skiptingarnar eru 27, búningarnir 230 og
hver leikari notar um ellefu búninga. „Ég
held að söngleikir verði ekki mikið stærri í
sniðum á Íslandi en þetta og það er í mörg
horn að líta og verkefnið gríðarlega um-
fangsmikið. Sagan er líka stór og nær yfir
sautján ár.“
Þrátt fyrir umfangið segir Selma vinn-
una við Vesalingana einungis hafa verið
ánægjulega. „Þegar ég tók þetta stóra verk-
efni að mér ákvað ég að ég ætlaði ekki að
fara á taugum. Og það hefur bara tekist
furðuvel. Ég sef ennþá á nóttunni, borða
alveg og held gleði minni. Ég ákvað líka
að nálgast verkið út frá kjarna þess sem
er að mínu mati síðasta setning verksins:
„Að sýna öðrum kærleik er að vera í hjarta
Guðs“. Ég ákvað líka að nálgast þetta verk-
efni með kærleika og okkur hefur tekist að
gera þetta að ofboðslega ánægjulegu ferli.“
Selma gerir ekki lítið úr ábyrgðinni sem
hún axlaði þegar hún tók verkefnið að sér.
„Auðvitað er ábyrgðin mjög mikil og ég tek
hana mjög alvarlega. Ég er með frábært list-
rænt teymi og við tökum þetta öll alvarlega.
Allir hafa lagt sig algerlega fram og við
komum bara mjög vel undirbúin og skipu-
lögð að verkefninu. Við höfum öll lagst á eitt
og ég sagði það líka strax á fyrsta samlestri
að þegar þessi lest færi í gang þá yrðu allir
að vera samstíga. Hópurinn allur meðtók
þetta frá upphafi á öllum vígstöðvum, í öllu
húsinu og það hefur verið unaður að vinna
í þessum starfsanda.“
Bróðirinn sem hún eignaðist aldrei
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson stjórnar
tónlistinni í sýningunni en þau Selma
hafa átt langt og ánægjulegt samstarf sem
segja má að hafi byrjað þegar Selma var
að hefja feril sinn og saman fóru þau til
Ísrael þar sem Selma söng fyrir Íslands
hönd í Eurovision og hafnaði í 2. sæti. „Við
þekkjumst mjög vel. Hann er eiginlega
eins og bróðirinn sem ég eignaðist aldrei.
Við vinnum vel saman, tölum sama tungu-
mál og skiljum hvort annað og mér finnst
mjög mikilvægt að hafa svona náinn sam-
starfsmann í þetta stóru verkefni.“
Leiðir þeirra lágu fyrst saman eftir að
Selma sigraði í söngvakeppni í Verslunar-
skólanum og fékk tíma í hljóðveri í verð-
laun. „Þegar ég kom þar inn var hann á
tökkunum og tók upp lagið og samstarf
okkar hófst upp úr því og hefur gengið
bæði í gegnum poppið og mikið í gegnum
leikhúsið í seinni tíð. Hér segjum við alla
söguna í söng. Þetta er heilmikil saga að
segja og Þorvaldur stendur með tónsprot-
ann í gryfjunni þessa þrjá klukkutíma,
svitnar og hefur gaman af.“
Vesalingar allra tíma
Söngleikinn um Vesalingana byggja höf-
undarnir Alain Boublil og Claude-Michel
Schönberg á þekktri skáldsögu Victors
Hugo. Sagan gerist í París á fyrri hluta 19.
aldar þar sem Jeans Valjeans berst fyrir
því að hefja nýtt líf eftir langa fangelsis-
dvöl. Örlög hans tengjast miklum sam-
félagslegum hræringum og lífi fjölda
fólks og við sögu koma meðal annarra
utangarðsfólk, fátæklingar, smáglæpa-
menn, stúdentar, vændiskonur, verka-
menn og byltingarsinnar. Sagan er sígild
og virðist alltaf eiga erindi. „Við erum trú
tímanum og staðháttum en sagan er al-
gerlega sammannleg. Hún ferðast í gegn-
um tímann og fjallar um okkar minnstu
bræður. Hún fjallar um neyðina, fátæktina
og misréttið sem er því miður ennþá til
staðar óháð leikmynd og búningum. Það
er kannski það eina sem breytist í heim-
inum en hún höfðar til þessa sammann-
lega þáttar sem fólk virðist tengja við enn
þann dag í dag. Og mér finnst óþarfi að
uppfæra það á einhvern hátt og eftirlæt
áhorfendum að upplifa það á sinn hátt.
Þessi saga talar alveg til áhorfenda. Og
er einstaklega mannleg.“
Selma segist aðspurð vera ljúf sem
lamb á leikstjórastóli. „Ég er ósköp ljúf en
ég er mjög skipulögð og vinn mjög ákveð-
ið, hratt og er alltaf að. Ég skipti mér af
öllu og hef skoðanir á öllu og er örugglega
dálítið mikið óþolandi með það. Ég hef
það líka alltaf að leiðarljósi að ég vil miklu
frekar byrja af fullum krafti þannig að
síðasta vikan fari í að leyfa fólki að njóta
sín í stað þess að byrja rólega og svo séu
allir úttaugaðir, þreyttir og að fara á lím-
ingunum og mér hefur tekist það núna.
Nú erum við bara að renna og fínpússa og
allir að fá að glansa og njóta sín. Og ég á
von á því að allir verði úthvíldir og góðir á
laugardaginn. Ég veit sjálf hvernig það er
að vera á sviði og vera úttauguð og þreytt
og ég kann því ekki vel.“
Ákvað að fara ekki á taugum
Þjóðleikhúsið frumsýnir á laugardaginn söngleikinn Vesalingana í umfangsmikilli uppfærslu þar sem ekkert er til sparað.
Selma Björnsdóttir leikstýrir og hefur alla þræði í hendi sér og heldur ró sinni þó ábyrgðin sé mikil. Hún segir verkefnið
vissulega vera draumaverkefni, hún sé söngleikjanörd og saga Victors Hugo hafi hitt hana í hjartastað þegar hún kynntist
henni fyrst í teiknimynd á barnsaldri. Þórarinn Þórarinsson hitti Selmu í Þjóðleikhúsinu þar sem hún stóð í reykjarkófi og fór
yfir síðustu smáatriðin fyrir frumsýningu.
Selma hefur alltaf nóg að gera en stefnir á að taka sér sumarfrí með börnunum. „Svo er veturinn að raðast upp. Það er ýmislegt í spilunum, kannski ekkert sem er tímabært
að segja frá núna en það er margt spennandi sem við erum að skoða.“ Ljósmynd Hari
18 fréttir Helgin 2.-4. mars 2012