Fréttatíminn - 02.03.2012, Blaðsíða 34
32 fréttir vikunnar Helgin 2.-4. mars 2012
Góð vika
Fyrir Mugison
Slæm vika
Fyrir Ólaf Ragnar Grímsson forseta
48,9
milljarðar króna var hallinn á
viðskiptajöfnuðinum á fjórða
ársfjórðungi 2011 samanbor-
ið við 8 milljarða króna í plús
fjórðunginn á undan.
Píslarvætti á Bessastöðum
Ólafi Ragnari Grímssyni var gerður grikkur á mánudag þegar honum var
afhentur undirskriftalisti með áskorun um að bjóða sig fram í fimmta skipti
til forseta Íslands. Eins og rifjað hefur verið upp var Ólafur Ragnar á þeirri
skoðun árið 1996 – „með allri virðingu“ fyrir fyrri forsetum – að ekki væri
tilhlýðilegt að gegna þessu embætti lengur en tvö kjörtímabil.
Hann er nú þegar búinn að pína sig í gegnum tvöfaldan
þann tíma og því ekki undarlegt að hann hugsi þunglega
til þess að þurfa að taka þann kross á herðar sínar að
vera fjögur ár í viðbót á Bessastöðum.
Eða eins og hann orðaði það sjálfur þá
vonaðist hann til þess að hann „þyrfti
ekki að standa í þessum sporum.“
Ólafur Ragnar hefur dregið sig í hlé
til að íhuga næsta skref. Valið
stendur á milli þess að þjóna
þjóð sinni eða sinna mikil-
vægum verkefnum fyrir
„mannkynið allt“. Svona
er byrðunum misjafn-
lega dreift.
6,17
vikan í tölum
HeituStu kolin á
Tillaga um að vísa frá tillögu
Bjarna Benediktssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins,
um afturköllun ákæru á
hendur Geir Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra, fyrir
landsdómi var samþykkt á
alþingi í gær, fimmtudag,
með 33 atkvæðum gegn 27.
Niðurstaðan felur það í sér
að aðalmeðferð í lands-
dómsmálinu yfir Geir hefst á
mánudaginn. Ljósmynd Hari
er hlutur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
í Högum í kjölfar kaupa í vikunni.
Sigursæll Vestfirðingur
Sveitungi forsetans, Vestfirðingurinn Guðmundur
Mugison Örn Elíasson, fagnaði enn einni góðri viku
í sínu lífi. Hann átti fimm sigurstundir á Íslensku
tónlistarverðlaununum, sem voru veitt í Hörpu á
miðvikudagskvöld, eða flestar allra kollega sinna.
Mugison fékk verðlaun sem vinsælasti flytjandin,
var valinn laga- og textahöfundur ársins, lag hans
Stingum af var valið
popp/rokk lag ársins
og Haglél plata ársins.
Mugison kórónaði þar
með magnað ár og ríkir
um þessar mundir sem
ókrýndur konungur
íslenskrar
dægur-
tónlistar.
Félag um Vestmannaeyjaferju
Vestmannaeyingar ætla sjálfir að stofna
félag um nýja Vestmannaeyjaferju. Auk
Vestmannaeyjabæjar verður ríkinu,
nágrannasveitarfélögum, lífeyrissjóðum og
áhugasömum fjárfestum boðið að koma að
félaginu.
MP tapar hálfum milljarði
MP banki tapaði 541 milljón króna í fyrra
fyrir skatta. 140 milljóna króna hagnaður
varð hins vegar á rekstrinum seinni hluta
ársins. Fyrri hluta 2011 var tapið 681
milljón króna.
Gunnar rekinn en segist saklaus
Stjórn Fjármálaeftirlitsins rak í gær Gunnar
Andersen, forstjóra þess. Hann segist
saklaus af sakargiftum stjórnarinnar og
hafi ekki séð kæru hennar til lögreglu né
þau gögn sem stjórnin vísi til.
Á bæjarstjóralaunum til 1. apríl
Laun Guðrúnar Pálsdótttur, fráfarandi
bæjarstjóra Kópavogs, voru hækkuð um
7,5 prósent fjóra mánuði aftur í tímann
í starfslokasamningi sem bæjarstjórn
Kópavogs afgreiddi. Hún verður á bæjar-
stjóralaunum til 1. apríl.
Fækkar á
Facebook
Tveir vaskir
Facebook-menn,
Jakob Bjarnar Grétarsson og Þráin Bertelsson,
hættu á samskiptavefnum í vikunni eftir að þeir
lentu á umdeildum lista á Facebook yfir karla sem
hata konur. Aðrir á vegnum létu sig málið varða.
Andri Þór Sturluson
Er það rétt skilið hjá mér að maðurinn sem
ítrekað kallar aðra hálfvita, hvort sem það eru
þingmenn eða 5% þjóðarinnar, skuli vera hættur
á Facebook vegna þess að einhverjum finnst hann
vera hálfviti?
Gisli Ásgeirsson
kemst að niðurstöðu: „Fólk sem fer í fýlu og
hættir á FB-, ætti að hafa í huga að við eigum að
vera sammála um að vera ósammála á stundum.
Annars verður umræðan litlaus og leiðinleg.
Voltaire hefði t.d. ekki hætt á FB.“
Kristinn Theodorsson
Nú keppast menn við að nota sem stærst orð
um allskyns „fífl“ sem segjast vera þröngvað af
Fésbókinni. Ég vona hinsvegar að Jakob Bjarnar,
Þráinn, Hildur L og fleiri fífl komi fljótt aftur, því
það er oft fólk með skoðanir sem hressir mest
upp á svona eldhúspartý.
móðir byltingarinnar
Ýmsir vilja eigna alþingiskonunni Álfheiði
Ingadóttur heiðurinn af Búsáhaldabyltingunni.
Sjálf kannast hún ekki við slíkt og flestir sem
mótmæltu á Austurvelli á sínum tíma komu af
fjöllum þegar kenningin sú fékk vængi.
Stefán Pálsson
er handviss um að nær allur VG-þingflokkurinn
er að deyja af öfund út í Álfheiði fyrir að vera
útmáluð sem höfuðarkitekt Búsáhaldabyltingar-
innar af hægrirugludöllunum.
Illugi Jökulsson
Álfheiður brosti til
fólks, og veifaði. Mér
finnst alveg deffinitlí
að það eigi að dæma þessa Álfheiði í langt langt
fangelsi. Eruði ekki sammála? Ég meina, þetta er
þjóðhættuleg manneskja!
Rothögg í þungavigt
Árvakur neytandi tók sig til og vigtaði matvæli sem
hann keypti og komst að stófelldu svindli. Netheimar
brjáluðust en lætin voru út af engu. Vigt neytandans
var biluð.
Eva Hauksdottir
Ég hélt að það væru bara feitar kjeddlingar sem
kenndu vigtinni um. Hversu lamaðar afsakanir geta
menn fundið fyrir skíthælshætti sínum?
Hafliði Helgason
Er hægt að fá árvakra neytandann með vigtina í
heimahús? Ég þyrfti nefnilega að missa tvö til þrjú
kíló.
Baldur Guðmundsson
Mín vigt er líka biluð – það bara hlýtur að vera.
Jón Óskar
Stýrimaðurinn Friðrik er maður vikunnar. Ég bíð
spenntur eftir næstu könnun. Go go go!
Bjór í 23 ár
Ölsvelgir hafa haldið 1. mars hátíðlegan í 23 ár en þá
var áfengur mjöðurinn leyfður á Íslandi á ný.
Kristín Anna
fagnar því að fagna ekki bjórdeginum.
Jón Mýrdal
Jæja, búinn í litun og plokkun og á eftir er það dekur
t.d. steinanudd og ilmkjarnameðferð. Maður verður
að tríta sig á bjórdeginum.
Orri Björnsson
Öl í kvöld, eitt af fáum táknum nýfrjálshyggjunnar
sem enn stendur. Kannski okkar síðasta vígi.
33-27
er niðurstaða atkvæða-
greiðslu þegar Alþingi
samþykkti að vísa frá tillögu
Bjarna Benediktssonar um
að falla frá ákæru á hendur
Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra.
47
voru skiptin sem Ólafur
Ragnar Grímsson talaði um
„þjóðina“ á blaðamanna-
fundi sínum á mánudag, eða
á um það bil mínútu fresti að
jafnaði.
23
ár voru liðin þann 1. mars frá
því sala á áfengu öli var leyfð
á nýjan leik á Íslandi eftir 74
ára bann sem var í gildi frá
1915 til 1989.
Hver
hremmir
bráðina?
„[Adler-Olsen] er algjörlega prófessjónal
maður … mjög hugmyndaríkur.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Heildarlisti 5.02.–21.02.12
veiðimennirnir,
ný bók eftir
Jussi Adler-Olsen,
höfund metsölubókArinnAr
kOnAn í búrinu