Fréttatíminn - 02.03.2012, Page 39
KJÖTbúðin
GrensásvegOpið: mán-fös 10-18:30, lau 11-16, sun lOkað
Fylltar bringur með piprosti sólþurrkuðum tómötum vafið inn í serranoskinku,
Fylltar bringur með camembertosti brauðteningum vafið inn í bacon.
Kjúklingabringur, leggir, vængir, læri (ferskt og kryddað).
kálfalundir 3.995 kr/kg
kálfafile 3.495 kr/kg
kálfainnralæri 3.295 kr/kg
kálfvalærvöðvar 2.495 kr/kg
beint úr kjötborði
ferskur kjúklingur
VITA er lífið
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
Vita er í eigu Icelandair Group
LETTLANDI
Falleg borg með steinlögðum strætum
og merkum byggingum frá fyrri öldum.
Saga, menning, góðir veitingastaðir og
fyrirtaksverslanir.
Verð frá 69.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
M.v. 2 í tvíbýli á Hotel Albert í 3 nætur.
Innifalið: Flug fram og til baka, flugvallarskattar,
gisting með morgunverði og íslensk fararstjórn.
*Verð án Vildarpunkta 79.900 kr.
3. maí
3 nætur
RIGA
Þrjár nætur
í Riga, Lettlandi
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
V
IT
5
86
87
0
3/
12
Fært til bókar
Aðkomumenn í Reykjavíkurliðum
Lið KR og Valur í 2. flokki spiluðu í Reykja-
víkurmótinu í knattspyrnu um síðustu leiki
og unnu gestirnir frá Hlíðarenda 1-2, sem
er auðvitað fagnaðarefni fyrir Valsmenn
en þó lítil tíðindi út af fyrir sig. Samsetning
liða þessara fornfrægu Reykjavíkurfélaga
er aftur á móti fréttnæm. Í byrjunarliði
Vals voru aðeins fjórir leikmenn sem
eru uppaldir hjá félaginu, hinir sjö voru
aðkomumenn. Einn frá hvoru liði Fylki og
ÍA, og fimm frá Breiðabliki, þar af fjórir
sem hafa gengið til liðs við Val undanfarna
mánuði. KR-ingar gátu státað af aðeins
fleiri uppöldum leikmönnum. Sex Vestur-
bæjarpiltar voru í byrjunarliði KR en fimm
úr öðrum félögum, þar á meðal tveir sem
komu frá HK í haust. Aðfengnir leikmenn
hefðu þó líka getað verið í meirihluta hjá
KR því liðið var án leikmanns sem félagið
fékk til sín frá Þrótti í fyrra. Valur galt af-
hroð í keppni 2. flokks í fyrra. Féll úr A-riðli
með yfir 100 mörk í mínus. Auðvelt er að
draga af þessu þá ályktun að þessi félög
geti bætt barna- og uppeldisstarf innan
sinna raða.
Öryggishlutverk RÚV
Tveir snarpir jarðskjálftar skóku höfuð-
borgarsvæðið skömmu eftir miðnætti að-
fararnótt fimmtudagsins. Fyrri skjálftinn
mældist 3,7 stig á Richter en sá síðari var
öflugri, 4,2 stig. Fyrir báðum fannst vel,
einkum þeim síðari sem varð um klukkan
eitt og vakti marga af værum blundi. Upp-
tök skjálftanna voru við Helgafell, í grennd
við Hafnarfjörð. Einhverjar skemmdir
urðu á húsum í Vallahverfi í Hafnarfirði.
Fólki verður að vonum ónotalega við slíka
skjálfta og fyrstu viðbrögð flestra er að
kveikja á Ríkisútvarpinu enda hefur fólki
verið kennt að gera það til þess að fá
nánari upplýsingar. Það var þó lítið gagn
í því, að minnsta kosti fyrsta hálftímann
eftir seinni skjálftann. Þá var í gangi, að
minnsta kosti á Rás 2, endurfluttur tón-
listarþáttur en engin tilkynning barst. Þá
var þolinmæði flestra hlustenda þrotin
og þeir leituðu upplýsinga á vefmiðlum.
Þar var frammistaðan betri en á öryggis-
rás Ríkisútvarpsins. Meðal helstu raka
fyrir úthaldi skattgreiðenda á ríkisreknu
útvarpi er einmitt öryggisþátturinn í til-
fellum sem þessum. Sá þáttur brást að
þessu sinni.
Helgin 2.-4. mars 2012