Fréttatíminn - 02.03.2012, Qupperneq 41
Helgin 2.-4. mars 2012 viðhorf 39
Hver safnar mestum áheitum og verður „Mottan 2012”?
Hvaða motta verður valin „Fegursta Mottan 2012”?
Verið með í Mottumars
Skráið ykkur til leiks - safnið mottum og áheitum.
Það er til mikils að vinna, bæði í einstaklings- og liðakeppni. Hlustið
á Virka morgna á Rás2. Veglegir vinningar dregnir út þrisvar sinnum
í mars. Duglegir keppendur geta m.a. unnið flugmiða með WOW air.
www.mottumars.is
V ið endurreisn atvinnulífsins er mikilvægt að efla fjárfestingu en hún eykur verðmætasköpun og
fjölgar atvinnutækifærum. Við hrunið
urðu 70 prósent innlendra fyrirtækja gjald-
þrota og því dró mikið úr fjárfestingum
en nú horfir til betri vegar þegar endur-
skipulagning skulda fyrirtækjanna er að
mestu lokið, hagvöxtur uppá 2,5 prósent
orðinn viðvarandi og eftirspurn neytenda
er smátt og smátt að aukast. Sérstaklega
er eftirsóknarvert að auka erlenda fjár-
festingu en hún færir verðmæti inní landið
og stækkar þannig þjóðarkökuna.
Einangrunarhyggja stjórnmálamanna
Fjölmargar hindranir eru hins vegar í vegi
fyrir erlendri fjárfestingu á Íslandi. Starfshópur iðn-
aðarráðherra sagði í nýlegri skýrslu að óstöðugleiki
í íslensku efnahagslífi, gjaldmiðilsáhætta og inngrip
stjórnvalda og stjórnmálamanna, séu á meðal þeirra
atriða sem erlendir fjárfestar setja helst fyrir sig.
Við jafnaðarmenn teljum frjáls viðskipti landa á
milli séu eftirsóknarverð og því viljum við stuðla að
erlendri fjárfestingu í íslensku atvinnulífi. Mikilvægt
er að tryggja skýrt og einfalt lagaumhverfi sem at-
vinnulífið getur treyst á og kemur í veg fyrir afskipti
stjórnmálamanna af einstökum verkefnum. Rétt eins
og það er ekki stjórnmálamanna að „skapa störf“,
heldur skapa umgjörð fyrir atvinnulífið til að skapa
verðmæti og þannig störf, eiga stjórnmálamenn að
skapa ramma um erlenda fjárfestingu og láta svo af
afskiptum sínum af einstaka verkefnum.
Alltof oft hafa stjórnmálamenn spilað á strengi
þjóðernishyggju, og varað við erlendum áhrifum í
gegnum frjáls viðskipti, þegar í raun þeir tala fyrir
efnahagslegri einangrun landsmanna. Þannig nota
stjórnmálamenn í dag nota sömu orðræðu og kollegar
þeirra gerðu á síðari hluta 20. aldar þegar andstæð-
ingar aðildar Íslands að EFTA og síðar EES samn-
ingnum sögðu vegið að efnahagslegu sjálfstæði lands-
ins með afnámi hindrana í viðskiptum og
fjárfestingum á milli landa. Sagan segir
aðra sögu. Samningarnir tveir mörkuðu
þáttaskil í nútímavæðingu og efnahags-
legri uppbyggingu Íslands. Frekari opnun
viðskipta landa á milli mun þannig styrkja
atvinnu- og efnahagslíf Íslands.
Hvers konar fjárfesting?
Að mati jafnaðarmanna á erlend fjár-
festingu að rýma við stefnu okkar í um-
hverfismálum. Erlend fjárfesting á að vera
þekkingarmiðuð og byggjast á styrkleik-
um lands og þjóðar. Hún á að bjóða uppá
mikinn innlendan virðisauka þannig að
mikil verðmæti verði eftir í íslensku sam-
félagi og hún á að skapa verðmæt störf,
leiða af sér nýja þekkingu og efla innlendar rann-
sóknir og þróun. Bein erlend fjárfesting á einnig að
geta leitt af sér möguleika fyrir innlend fyrirtæki sem
birgjar eða þjónustuaðilar og hún á að skila miklum
skatttekjum í sameiginlega sjóði okkar. Hún á þannig
að ýta undir fjölbreytileika atvinnulífsins og falla vel
að ímynd landsins.
Sem dæmi um atvinnugreinar þar sem Ísland hefur
samkeppnisforskot og getur laðað til sín erlenda
fjárfestingu má nefna í koltrefjum og efnaferlum, í
minkarækt og við uppbyggingu risagróðurhúsa. Þá
eru miklir möguleikar í gagnaverum, tölvuleikjafram-
leiðslu og líftækni. Nú er mikilvægt að Ísland geri
bragarbót og freisti þess að laða til sín með markviss-
ari hætti beina erlenda fjárfestingu. Verkefni jafn-
aðarmanna næstu misserin er að ljúka gerð stefnu
um beina erlenda fjárfestingu á Íslandi, einfalda
lagarammann og minnka flækjustigið. Þannig verði
hægt að fjölga erlendum fjárfestingaverkefnum, færa
verðmæti inn til landsins og skapa áhugaverð störf. Ef
tekst að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf í anda stefnu
í umhverfismálum, á ekki að skipta neinu hvort fjár-
magnið til uppbyggingar sé í formi innlends eða
erlends eiginfjár.
Endurreisn
Af hverju erlenda fjárfestingu?
Magnús Orri Schram
þingmaður Samfylkingar-
innar
Rétt eins og það er ekki stjórnmálamanna að „skapa störf“, heldur skapa
umgjörð fyrir atvinnulífið til að skapa verðmæti og þannig störf, eiga
stjórnmálamenn að skapa ramma um erlenda fjárfestingu og láta svo af
afskiptum sínum af einstaka verkefnum.
LA BOHÈME
GIACOMO PUCCINI
Hulda Björk Garðarsdóttir · Gissur Páll Gissurarson / Þóra Einarsdóttir · Garðar tHór CortEs
áGúst ólafsson · Hrólfur sæmundsson · jóHann smári sævarsson
HErdís anna jónasdóttir · BErGÞór Pálsson
HljómsvEitarstjóri: daníEl Bjarnason · lEikstjóri: jamiE HayEs
lEikmynd: Will BoWEn · BúninGar: filiPPía Elísdóttir · lÝsinG: Björn BErGstEinn Guðmundsson
föstudaGinn 16. mars kl. 20 - frumsÝninG
lauGardaGinn 17. mars kl. 20 - 2. sÝninG
lauGardaGinn 31. mars kl. 20 - 3. sÝninG
sunnudaGinn 1. aPríl kl. 20 - 4. sÝninG
lauGardaGinn 14. aPríl kl. 20 - 5. sÝninG
föstudaGinn 20. aPríl kl. 20 - lokasÝninG
miðasala í HörPu oG á WWW.HarPa.is
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011