Fréttatíminn - 02.03.2012, Side 42
40 bækur Helgin 2.-4. mars 2012
RitdómuR ListgiLdi samtímans Jón B. K. Ransu
Óbærilegur léttleiki eftir
Milan Kundera er kom-
inn út á kilju en hún hefur
verið ófáanleg um skeið.
Sagan kom út 1984 og í
íslenskri þýðingu tveimur
árum síðar í þýðingu
Friðriks Rafnssonar.
KundeRa á KiLJu
RitdómuR nútímaheimiLið í mótun eftiR aRndísi s. áRnadóttuR
B reytingar á híbýlaháttum Íslend-inga frá aldamótum 1900 til loka viðreisnar 1970 eru viðfangsefni
Arndísar S. Árnadóttur í bókinni Nútíma-
heimilið í mótun. Arndís varði doktorsrit-
gerð sína í júní í fyrra og um svipað leyti
kom hún á prenti á vegum Háskólaútgáf-
unnar. Þetta er stórt rit, 330 síður með
skrám, nokkuð myndskreytt en hefði vís-
ast mátt innihalda miklu meira af mynd-
um til skýringar og upplýsingar. Í ritinu
er í fyrsta sinn með heildstæðum hætti
tekið á fagurfræðilegum og pólitískum
áherslum og breytingum sem verða
á heimilisháttum hér á landi; hvernig
skipulega er unnið að því að endurvekja
fornættaða hugmynd í húsateikningum
og húsgagnateikningum sem víða um
lönd er kennd við Arts and Craft og fyrst
verður vart hér á landi 1907 í þýðingum á
skrifum Ellen Key – sænskrar framfara-
konu en Helgi Valtýsson birti ritgerð
hennar um heimilisfegurð í Skólablaðinu
í átta pörtum það ár. Key var undir áhrif-
um John Ruskin og William Morris.
Hulu svipt af híbýlakosti
Arndís sýnir síðan fram á hvernig hug-
myndir um fegurð og notagildi ryðja
sér til rúms á fleirum en einu sviði hins
íslenska gripsvits; annars vegar með
endurvakningu í því sem við höfum
lengst af kallað heimilisiðnað sem um
síðir þróaðist í listiðnað og hinsvegar
hvernig tækniframfarir lögðu undir sig
verkstæðisframleiðslu sem mátti um síðir
lúta í lægra haldi fyrir innflutningi við
inngöngu okkar í Fríverslunarsamband
Evrópu. Þetta var þótt hugvit og menntun
væri í þann mund komið á það stig að
íslensk framleiðsla var ekki drepin þótt
hún væri lögð í dróma.
Það er sérkennilegt að lesa jafn vel
unnið rit um stóran og mikilvægan þátt
íslenskrar listsköpunar, sem Arndís
rekur í samhengi við erlenda þróun með
afar sannfærandi hætti, með sterkum til-
vísunum í erlenda fræðiumræðu, á sama
tíma og við lítum fimm binda útgáfu
Listasögu þar sem nánast allt sem Arndís
tekur til er útilokað: Húsgagnahönnun,
innanstokksskraut, vefnaður, leirlist og
útskurður. Verk Arndísar er í himinhróp-
andi mótsögn við hið einangraða hugtak
sem lagt er til grundvallar íslenskri lista-
sögu Ólafs Kvaran og samstarfsmanna
hans.
Arndís rekur líka með ítarlegri heim-
ildakönnun sinni að íslensk hönnunar-
saga á sér langan aðdraganda, er hluti
af kviku umræðu í Evrópu, sem byggir
á róttækri lýðræðislegri fagurfræði og
rímar í tíma við það sem er að gerast í ná-
grannalöndum okkar. Rit hennar er þann-
ig byltingarkennt tillegg í söguskoðun
um íslenskan nútíma og færir okkur heim
sanninn að sambandsleysi milli greina í
íslensku fræðasamfélagi er ríkt og skaðar
þekkingu á mörgum sviðum um ein-
angrun þjóðarinnar í fagurfræðilegu til-
liti. Hér var sem sagt í gangi gróskumikil
en dreifð umræða um hönnun og betra líf
með nútímalegum viðmiðum og kröfum
um bætta samfélagshætti til handa öllum
þorra fólks.
Eitt merkilegasta rannsóknaverk
liðins árs
Nútímaheimilið í mótun er mikilvægt
rannsóknarverk og kallar á róttæka end-
urskoðun á hugmyndum okkar um hvað
gekk hér á. Það storkar þeim almennu
úrtöluröddum þess efnis að hér hafi verið
einangrað samfélag í fagurfræðilegum
skilningi. Verkið byggir á yfirgripsmikilli
og vandaðri heimildarýni, það er styrkt
gögnum úr nýrri fjölþjóðlegri umræðu
um hönnun og hlutverk hennar á liðinni
öld; víst hefði útgefandi mátt leggja ríkari
áherslu á myndefni, bæði með stærri
myndflötum sem víða eru smærri en
spaltaefni.
Mikil bót er á að prenta neðanmáls-
greinar og athugasemdir neðanmáls í
stað þess að hrúga þeim í kafla aftast í
verkinu eins og tíðkast víða um þessar
mundir. Verkið er tvímælalaust eitt
merkilegasta rannsóknarverk sem hér
kom út á liðnu ári og vekur furðu að það
skuli ekki hafa komið til álita í viðurkenn-
ingum fræða og bókmenntasamfélags-
ins eftir áramótin. Verkið er læsilegt, vel
undirbyggt í formlegri uppsetningu verka
af vísindalegum toga og mun þegar fram
líða stundir skipta sköpum í þeirri endur-
skoðun sem það hlýtur að leiða af sér.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Byltingarkennt innlegg
Komið er nýtt hefti af Tímariti Máls og menningar, 1. hefti
2012. Meðal efnis má nefna grein eftir Salvöru Nordal
formann Stjórnlagaráðs þar sem hún segir frá störfum
ráðsins, setur það í samhengi við störf Þjóðfundar og
Stjórnlaganefndar og veltir fyrir sér umræðunni sem þarf
að fara fram um breytingar á stjórnarskránni.
Hallgrímur Helgason skrifar fjöruga grein um Guð-
rúnu frá Lundi og Dalalíf; Jón Karl Helgason ræðir þá
Jónas og Bjarna en Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson
skrifar snarpa grein um óeirðirnar í London og orsakir
þeirra. Allmikið er um skáldskap í heftinu: Ljóð eftir
Gerði Kristnýju, Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur og
Eyvind, sögur eftir Einar Má Guðmundsson, Guðmund Brynjólfsson og
Rúnar Helga Vignisson.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur skrifar um nýútkomna listasögu, Árni Berg-
mann um nýjar bækur þar sem þeir Elías Mar og Þórður Sigtryggsson koma við
sögu og Fríða Björk Ingvarsdóttir fjallar ítarlega um þríleik Jóns Kalmans. -pbb
Fyrsta TMM ársins
Lífsins blómasystur – hannyrðakonur
af Svaðastaðaætt eftir Ingu Arnar er
fallega brotin og ríkulega myndskreytt
útgáfa frá Byggðasafni Skagfirðinga sem
margar hagar hendur vildu komast yfir og
fletta sér til skemmtunar og yndisauka.
Inga gerir þar grein fyrir hannyrðahefð
fjögurra kynslóða kvenna sem ættaðar
eru frá Svaðastöðum. Bókin er ríflega
hundrað síður og þar er handverk
kvennanna sett í samhengi við heimilis-
iðnað í Skagafirði, tóvinnu, klæðnað
kvenna, útsaumshefðir og iðnsýningar.
Ritinu fylgir heimildaskrá og ítarleg og vönduð myndaskrá . Inga er þjóð-
fræðingur og að auki fata- og textílkennari. Ritið fæst í öllum betri bóka-
verslunum og á Minjasafni Skagafjarðar. -pbb
Hannyrðafræði
Listgildi
samtímans
Jón B. K. Ransu
Eigin útgáfa, 104 síður,
2011.
Jón B. K. Ransu myndlistarmaður
og fyrrum gagnrýnandi hefur
tekið saman inngangskver á
mannamáli um samtímalist á Ís-
landi, eins og hann kallar það.
Verkið er snoturlega útgefið,
myndskreytt nokkrum dæmum
til stuðnings erindi höfundar
sem hann lýsir svo: „...mér fannst
vanta bók á íslensku sem fjallar
um listgildi samtímans.“
Kverinu skiptir hann í fáa
stutta og skorinorða kafla sem
bera yfirskriftina: Sagan, Hug-
myndafræðin, Markaðsfræðin,
Hið fagra, Hið háleita og Hið
gróteska.
Það er rétt hjá höfundinum að
umræða um listir hér á landi er
harla skammt á veg komin. Þar
ræður ekki fámennið, íslenskt
menntakerfi hefur á liðnum
áratugum skilað okkur fjölda menntaðra einstak-
linga sem eru flestir hæfir til að halda hér úti virkri
umræðu, mætti ætla, ef þorið vantaði ekki. Þar
kann návígið að hamla mönnum, þrengslin neyða
menn til þagnar. Fyrir bragðið er umræða um listir
fábreytt, helst bundin meðvirkum inngangstextum
til skýringar á framferði einstakra listamanna og
tengist þá sýningarhaldi, svokölluðum dómum um
einstaka sýningar og söguleg, gagnrýnin yfirlitsverk
eru fátíð.
Myndlistin er þannig sett á háan stall og gerð tor-
tryggileg í upphrópunum manna sem litla þekkingu
hafa á eðli hennar, tilgangi og erindi. Þar er ekki síst
um að kenna skóla- og menntakerfi sem hefur alger-
lega brugðist að koma á framfæri lágmarksþekkingu
á listum yfirleitt.
Inngangsrit sem skrifað er af skýrri hugsun og
einlægum vilja til að rjúfa þau höft sem myndlistin
er sett í er því kærkomið. Hvort það megnar að koma
hreyfingu af stað í okkar fábreyttu og fjörefna-
snauðu listumræðu skal ósagt látið. Aðkoma höf-
undarins og það almenna gildi sem verkið hefur ætti
að vera innspýting í almenna opinbera umræðu um
listir yfirleitt. Því margt í köflunum á ekki aðeins
við um myndlist, heldur listir almennt og þá einkum
hvernig listir hafa verið markaðsvæddar sem afþrey-
ing. -pbb
Inngangur um listirnar
nútímaheimilið í
mótun
Fagurbætur, funksjónalismi og
norræn áhrif á íslenska hönnun
1900-1970
Arndís S. Árnadóttir
Háskólaútgáfan, 230 blaðsíður,
2011.
108
NÚTÍMAHEIMILIÐ
Mynd 12. Samkeppni um húsgögn fyrir stofu í sveit 1939. 3. verðlaun
Helgi Hallgrímsson.
Mynd 13. Samkeppni um húsgögn fyrir stofu í sveit 1939. 2. verðlaun
Jónas Sólmundsson.
Tillaga Jónasar Sólmundssonar, sem önnur verðlaun hlaut, bar aftur á móti ögn
„sveitalegri“ blæ sem minntu á einföld bændahúsgögn í nágrannalöndunum.
109
HLUTIRNIR SEM SKAPA HEIMILIN
Mynd 14. Jónas Sólmundsson. Vinnuteikning, stólar. Handíða-
og myndlistaskólinn (1943–1947).
Nokkrar heimildir finnast þó um notkun teikninga Jónasar sem fyrirmynda á
næstu árum. Þær voru til dæmis notaðar í bændadeild Handíðaskólans fljótlega
eftir stofnun skólans (1939) þar sem vinnuteikningar hans af húsgögnunum
voru fyrirliggjandi og nemendur smíðuðu eftir þeim.48 Ekki er vitað hve lengi var
smíðað eftir teikningum hans í skólanum, en á Landbúnaðarsýningunni sem haldin
var í Reykjavík sumarið 1947 sýndu nemendur Handíða- og myndalistaskólans
húsgögn af sömu gerð fyrir „setustofu á sveitabæ“ sem sett var upp á sýningunni. Í
sýningarskrá kemur fram að teikningar af húsgögnunum hafi tveir kennarar skólans,
þeir Kurt Zier og Gunnar Klængsson, gert í samráði við Jónas Sólmundsson.49
Stefán Jónsson teiknari gat þess nokkru síðar í grein í Dansk Kunsthåndværk að
teikningarnar hafi verið til sölu en viðtökurnar því miður ekki verið eins og vænst
var og lítið selst af þeim.50 En verðlaunahúsgögn Jónasar frá 1939 voru líka tengd
við „þjóðlegan stíl“ eins og sést í kynningu á þeim sem fór fram í „sýningarstofum
Íslenzkrar ullar“ árið 1941, en þar er þeim lýst á eftirfarandi hátt:
Þau eru smíðuð úr ljósum viði, en stólar klæddir heimaofnu áklæði. Eru þau einkar
lagleg, íburðarlaus en traust, og svo einföld að gerð, að ekki er ólíklegt, að þeir, sem
handlagnir eru og eitthvað hafa lært að smíða, geti gert þau sjálfir, ef teikning eru
fyrir hendi, en hana geta menn fengið hjá Teiknistofu Búnaðarbankans.51
48 Vinnuteikningar af húsgögnunum sem sjást á fjarvíddarteikningunni, þ.e. setbekkur, stóll, armstóll,
borð og skatthol og undirritaðar af Jónasi Sólmundssyni og merktar Handíða- og myndlistaskólinn
hafa varðveist. Í vörslu höfundar.
49 Landbúnaðarsýningin 1947. Sýningarskrá, bls. 31–32. Ljósmyndaplötur (gler) af sýningargripunum
frá Handíða- og myndlistaskólanum fyrir Landbúnaðarsýninguna voru varðveittar í Bókasafni
Myndlista- og handíðaskóla Íslands (frá september 1999 Bókasafn Listaháskóla Íslands). Vonandi eru
þær þar enn.
50 Stefán Jónsson, „Kunsthåndværk fra Island“, bls. 63.
51 „Húsgögn í þjóðlegum stíl“, bls. 9. Með fylgir ljósmynd af húsgögnum Jónasar.
Opna úr bókinni
Nútímaheimilið í
mótun.
Jón B. K. Ransu.
Nútímaheimilið í mótun er tvímælalaust eitt merkilegasta rannsóknarverk sem hér kom út á liðnu ári.
Verk Arndísar er í himinhrópandi mót-
sögn við hið einangraða hugtak sem lagt
er til grundvallar íslenskri listasögu Ólafs
Kvaran og samstarfsmanna hans. www.noatun.is
Fermingar-
veislur
Veisluþjónusta Nóatúns
býður upp á úrval af hlaðborðum
fyrir fermingarveisluna!
pantaðu veisluna þína á
2100
á mann
Verð frá