Fréttatíminn - 02.03.2012, Qupperneq 56
M ikið er þakklátt að fá stælalaust og hefðbundið stofudrama á ís-lenskt leiksvið. Og mikið er þakk-
látt að fá að sjá þetta magnaða og mikilvæga
verk í flutningi frábærra leikara.
Um síðustu helgi frumsýndi Þjóðleik-
húsið Dagleiðina löngu eftir Eugene O‘Neill
í afbragðs þýðingu Illuga Jökulssonar.
Hann fetar þar í fótspor ekki minni manna
en Thors Vilhjálmssonar sem þýddi Long
Day‘s Journey into Night sem Dagleiðin
langa inn í nótt og var það sýnt í Þjóðleik-
húsinu 1982 en áður hafði það birst íslensk-
um leikhúsgestum 1959 í þýðingu Sveins
Víkings og bar þá hinn ljóðræna og ágæta
titil Húmar hægt að kveldi.
Leikstjórinn Þórhildur Þorleifsdóttir
hefur ráðist í nokkuð umfangsmiklar stytt-
ingar á leikritinu en í viðtali við hana í leik-
skrá kemur fram að án styttinga væri þetta
fimm tíma sýning. Með hléi tók sýningin
um tvo tíma og verður ekki betur séð en
styttingarnar séu vel heppnaðar. Án þess
að hér gefist svigrúm til að fara í saum-
ana á því þá virðist mér í fljótu bragði sem
þær komi helst niður á hlutverki Edmund,
yngsta syninum og hugleiðingum hans um
skáldskap sem óneitanlega gerir þá persónu
grynnri en efni standa til.
Fyrirmynd Edmunds er einmitt Eugene
sjálfur en verkið fjallar um fjölskyldu stór-
leikarans Tyrones; konu hans Mary og
synina Jamie og Edmund en höfundurinn
dró aldrei fjöður yfir að þarna er hann að
lýsa sinni eigin fjölskyldu, býsna nákvæm-
lega og farið er djúpt – enda skipaði hann
svo fyrir um að verkið mætti ekki gefa út né
sýna fyrr en eftir dauða sinn. Því hefur ver-
ið haldið fram að Eugene O´Neill sé fremsta
leikskáld Bandaríkjanna og Dagleiðin langa
hans sterkasta verk. Þetta eitt ætti að duga
til að ýta við fólki með að láta sjá sig í Kassa
Þjóðleikhússins en uppsetningin sjálf spillir
sannarlega ekki fyrir.
Það er líkt og þessi rulla sé bókstaflega
skrifuð fyrir Arnar Jónsson sem er stór-
kostlegur í hlutverki James Tyrone. Í raun
vantar ekkert nema skallann svo vísað sé
í nákvæmar „intrúktsjónir“ höfundarins.
Arnar er nú á hátindi ferils síns, ég sá hann
sem Lé á síðasta leikári, nú fær hann tæki-
færi á að takast á við annað af stærstu hlut-
verkum leikbókmenntanna og afgreiðir það
með glæsibrag. Guðrún Gísladóttir er hin
miðlæga morfínháða móðir, bitastætt hlut-
verk sem Guðrún skilar eftirminnilega og á
dramatískum nótum. Hilmir Snær Guðna-
son og Atli Rafn Sigurðsson leika synina
og fara vel með sín hlutverk. Erfitt er að sjá
hvernig betur hefði mátt skipa í hlutverkin.
Það er líkt og
þessi rulla sé
bókstaflega
skrifuð fyrir
Arnar Jóns-
son sem er
stórkostlegur
í hlutverki
James Tyrone.
LeikdóMur dagLeiðin Langa í kassa ÞjóðLeikhússins
Hádramatískir leik-
arar fara á kostum í
mögnuðu verki
Á stundum finnst manni sem slegið
sé á hæstu nótur hins dramatíska í leik
(Flosi heitinn Ólafsson hefði kallað það
ofleik en vitaskuld vogar maður sér ekki
að nota slíkt orð þessu samhengi) – ein
snilldin við þetta verk er nefnilega sú að
þar er fjallað um botnlausa neyslu og þá
ekki síður leikarafjölskyldu, þannig að
hvað varðar dramatíska framgöngu eru
sennilega skýin þakið í þeim efnum. En,
það má sjá fyrir sér að baneitraðar rep-
likkur O´Neill nytu sín betur lágstemmd-
ari á stundum. Annað, sem er leikstjórn-
arlegt atriði og finna má að, er að lögnin
var stundum ómarkviss; alkóhólistar eru
staðari en svo að þeir rápi ómarkvisst um
rýmið þegar víman nær yfirhöndinni...
held ég. Mikil kúnst að leika drukkið og
dópað fólk. En, án efa á þetta eftir að slíp-
ast með fleiri sýningum. Því ekki trúi ég
öðru en þessi sýning eigi eftir ganga.
Ljós, leikmynd og búningar voru í
samræmi við hið hefðbundna stofudrama
og með ágætum. Þó náði ég engan veg-
inn að tengja við klossuð málverkin af
Tyrone sem þekja hliðarveggina; líklega
eiga þau að tákna hið þrúgandi karlaveldi
sem býr í heimilisföðurnum og er undir-
rót alls ills (!?) en fallega stíliseruð lýsing
milli atriða, þar sem kastara er varpað
á persónur til að undirstrika, þrátt fyrir
allt, einsemd þeirra, vann þar blessunar-
lega á móti.
Jakob Bjarnar Grétarsson
Niðurstaða: Eitt mikilvægasta verk leik-
bókmenntanna í flutningi nokkurra af
okkar allra bestu leikurum. Það hlýtur að
mega heita skyldumæting í leikhúsið.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
SVARTUR Á LEIK ER EINNIG SÝND Í MIÐBÆNUM!
“MOVES LIKE A SNAKE ON SPEED” -TWITCHFILM
SVARTUR Á LEIK
(BLACK’S GAME) ENGLISH SUBTITLES
GERARD BUTLER
MACHINE GUN
PREACHER
dagleiðin langa
Þjóðleikhúsið – Kassinn
Leikstjóri:Þórhildur Þorleifs-
dóttir/Leikmynd og búningar:
Jósef Halldórsson/Lýsing:
Hörður Ágústsson/Hljóðmynd:
Kristinn Gauti Einarsson/
Þýðing: Illugi Jökulsson
Irkeindir smygla sér
í óútgefna bók
Rithöfundurinn
Eiríkur Örn Norð-
dahl hefur sagt
skilið við Facebook,
en vinnur þeim mun
betur í væntanlegri
skáldsögu sinni Illsku
en Eiríkur er búsettur
í Finnlandi. Við endur-
skriftir handrits skaut
irkinu, spjallforriti, upp
í koll hans; „IRC spjall
á netinu. 1997.“ Og þar sem Eiríkur var á
bókasafninu í Ouluháskóla komst hann
að því að irkið hafi Finni nokkur að nafni
Jarkko Oikarinen fundið upp. „Í Ouluhá-
skóla. Þar sem ég sat," skrifar Eiríkur Örn
á blogg sitt. „Mér leið skyndilega einsog
ég gæti fundið fyrir irkeindunum í loftinu.
Einsog þær hefðu smogið inn í mig. Og
væru að smygla sér út í bókina mína í von
um eilíft líf.“
Ljósmynd/Aino Huo-
vio
Galdrakarlinn í Oz –HHHHH KHH. Ftími
Galdrakarlinn í Oz –HHHHH KHH. Ftími
Fanný og Alexander (Stóra sviðið)
Fös 2/3 kl. 20:00 12.k Sun 11/3 kl. 20:00 aukas Fös 23/3 kl. 20:00
Sun 4/3 kl. 20:00 aukas Fim 15/3 kl. 20:00 aukas Sun 25/3 kl. 20:00 aukas
Fim 8/3 kl. 20:00 Lau 17/3 kl. 20:00 Lau 31/3 kl. 20:00 lokas
Fös 9/3 kl. 20:00 Sun 18/3 kl. 20:00 aukas
Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið. Sýningum lýkur í mars.
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Sun 4/3 kl. 14:00 Sun 25/3 kl. 14:00 Sun 15/4 kl. 14:00
Sun 11/3 kl. 14:00 Lau 31/3 kl. 14:00 Sun 22/4 kl. 14:00
Sun 18/3 kl. 14:00 Sun 1/4 kl. 14:00 Sun 29/4 kl. 14:00
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
NEI, RÁÐHERRA! (Menningarhúsinu Hofi)
Lau 3/3 kl. 21:00 Lau 10/3 kl. 22:00 aukas Fös 16/3 kl. 22:00
Lau 10/3 kl. 19:00 Fös 16/3 kl. 19:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Sýnt í Hofi í mars
Eldhaf (Nýja sviðið)
Fös 2/3 kl. 20:00 15.k Fim 8/3 kl. 20:00 Fim 15/3 kl. 20:00
Sun 4/3 kl. 20:00 16.k Fös 9/3 kl. 20:00 Lau 17/3 kl. 20:00 aukas
Mið 7/3 kl. 19:00 aukas Sun 11/3 kl. 20:00 Sun 18/3 kl. 20:00 lokas
Sýning 7/3 til styrktar UN Women og umræður á eftir. Síðustu sýningar
Axlar - Björn (Litla sviðið)
Sun 4/3 kl. 20:00 Fim 15/3 kl. 20:00
Fim 8/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 lokas
Nýtt verk úr smiðju Vesturports. Síðustu sýningar
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Lau 17/3 kl. 20:00
Lau 3/3 kl. 20:00 Sun 11/3 kl. 20:00 Fös 23/3 kl. 20:00
Fös 9/3 kl. 20:00 Fös 16/3 kl. 20:00 Lau 24/3 kl. 20:00
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 18/3 kl. 13:00 Sun 15/4 kl. 13:00
Sun 4/3 kl. 14:30 Sun 18/3 kl. 14:30 Sun 22/4 kl. 13:00
Sun 11/3 kl. 13:00 Sun 25/3 kl. 13:00
Sun 11/3 kl. 14:30 Sun 1/4 kl. 13:00
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Mínus 16 (Stóra sviðið)
Lau 3/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Fös 16/3 kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn - Verk eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 sýningar á 11.900 kr.
með leikhúskorti
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 2/3 kl. 19:30 Forsýn Mið 28/3 kl. 19:30 11.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 17.sýn
Lau 3/3 kl. 19:30 Frums Fim 29/3 kl. 19:30 12.sýn Mið 25/4 kl. 16:00 AUKAS.
Fös 9/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 30/3 kl. 19:30 AUKAS. Fös 27/4 kl. 19:30 18.sýn
Lau 10/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 31/3 kl. 19:30 AUKAS. Lau 28/4 kl. 19:30 19.sýn
Sun 11/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 1/4 kl. 19:30 13.sýn Sun 29/4 kl. 19:30 20.sýn
Fös 16/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 14.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 21.sýn
Lau 17/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 AUKAS. Lau 5/5 kl. 19:30 22.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 AUKAS. Sun 6/5 kl. 19:30 23.sýn
Fös 23/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 15.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 24.sýn
Lau 24/3 kl. 19:30 9.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 AUKAS. Lau 12/5 kl. 19:30 25.sýn
Sun 25/3 kl. 19:30 10.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 26. sýn
Athugið - einungis sýnt í vor!
Heimsljós (Stóra sviðið)
Fim 8/3 kl. 19:30 18.sýn Mið 14/3 kl. 15:00 AUKAS. Fim 15/3 kl. 19:30 síð.sýn
Ein ástsælasta saga Nóbelsskáldsins í nýrri leikgerð.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 12.sýn
Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 9.sýn Fös 23/3 kl. 19:30
Mið 7/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 10.sýn Lau 24/3 kl. 19:30
Fös 9/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 11.sýn Sun 25/3 kl. 19:30
Frumsýnt 24.febrúar
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Sun 4/3 kl. 13:30 Sun 11/3 kl. 13:30 Sun 18/3 kl. 13:00
Sun 4/3 kl. 15:00 Sun 11/3 kl. 15:00 Sun 18/3 kl. 15:00
Lau 10/3 kl. 13:30 Lau 17/3 kl. 13:30
Lau 10/3 kl. 15:00 Lau 17/3 kl. 15:00
Hjartnæm og fjörmikil sýning
Sjöundá (Kúlan)
Sun 4/3 kl. 19:30 Fim 22/3 kl. 19:30
Fim 8/3 kl. 19:30 Mið 28/3 kl. 19:30
Ný leiksýning um morðin á Sjöundá
Orð skulu standa (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 8/3 kl. 21:00
Útvarpsþátturinn Orð skulu standa öðlast nýtt líf á sviði!
EFTIR OHAD NAHARIN
minus 16
54 menning Helgin 2.-4. mars 2012