Prentneminn - 01.01.1970, Blaðsíða 3
PRENTN EMINN
13. árg. 2. tbl. janúar 1970 RítStjÓrarabb
Ritnefnd:
EINAR FRIÐGEIRSSON,
SVEINBJÖRN STEFÁNSSON og
ÞORSTEINN VETURLIÐASON.
Ritstjóri:
ÞORSTEINN VETURLIÐASON.
Ábyrgðarmaður:
MAGNÚS EINAR SIGURÐSSON.
Myndamót:
ÞJÓÐVILJINN
Setning:
HÓLAR.
Prentun:
GUÐMUNDUR HELGASON
ODDI.
Umbrot og útlit:
ÁRNI SÖRENSEN.
Forsíða:
Es.
Atburðarásin á öld atómanna er býsna hröðl
Gerbyltingar á ýmsum menningarsviðum
skella hart á einstaklingnum líkt og aldan hjal-
ar við klettinn. Með tímanum myndast upp-
lausn í bergið og undirstaðan molnar. Að
endingu hrynur kletturinn. Hafi hann verið
stakur úti á reginhafi gjálpar aldan leikandi
létt yfir fallinn svörð. Hafi hann verið land-
fastur er möguleiki að annar klettur hafi verið
á bak við hann. Þá byrjar hans barátta og
öldunnar margnefndu um undirstöðuna. Hvor
hefur betur leiðir tíminn í ljós.
Líkt er á komið með oss mönnunum og bar-
áttu náttúruaflanna innbyrðis.
Hvergi er samhugur svo ríkur með neinum
tveim einstaklingum að ekki beri á milli ein-
hvers staðar. Líf mannsins byggist um aldur
og ævi upp á gamla góða máltækinu: „Eins
dauði er annars brauð".
I því þjóðfélagi sem við gerst þekkjum, lif-
um við hvert á öðru. Maðurinn nær aldrei að
yfirstíga hópsálarklíkuna enda hugsar cm efa
margur sem svo að ekki só vert að vera neinn
„Palli einn í heiminum".
Ef til upplausnar keipur á einum stað, þarf
ekki að verða heimsendir.
í félagsstarfsemi má ekki byggja á staka
klettinum og heldur ekki alla bygginguna á
þeim landshluta. Byggingin verður að ná inn
á landið. Helmingur á klettinum og helmingur
á sandinum.
— Agætu félagarl Við sem látum nú af rit-
stjórn þessa blaðs væntum þess að eftirmönn-
um okkar beri sú gæfa til að fá greinar frá
sem flestum ykkar um ýmis ykkar málefni.
F. h. ritnefndar
Þorsteinn Veturliðason.
PRENTNEMINN
3