Prentneminn - 01.01.1970, Qupperneq 6
virtist hafa neikvæð áhrif eða svo virtist,
þegar gauraganginum lauk loksins eftir
ofsafjör og slagsmál.
Annað hvort eru prentnemar náttúru-
lausir þegar út úr bænum er komið eða
þá að viðkoma fíngerðra lieimasætna í
sveitum nær ekki til sh'kra heimsborgara
sem við erum.
Um morguninn voru allir heldur bet-
ur hressir og kátir. Bílstjórinn var líka
kominn til þess að sækja okkur, og var
nú komin grenjandi rigning, og um að
gera að fella tjöld í skyndi ,gekk jrað
heldur brösótt, en tókst þó að lokum.
Var svo eftir dálítinn tíma lialdið af stað.
Keyrt var nú í einni lotu að Botnsdals-
skála og þar fenginn snarl. Var því næst,
þegar menn voru orðnir mettir, lialdið
heim á leið.
Stemmning var mikil í bílnum, menn
sungu eins hátt og þeir frekast máttu,
létu þá beztu flakka og eins og sjá má
voru menn í bezta skapi, sumir hverjir
meira að segja játuðu „Stínu" ást sína.
Farið var um Kjósina, en eins og flestir
vita er þar hið fegursta landslag, og
dáðust rnenn óspart að. Undir lokin var
farið í fótbolta á undirlendi Esjuhlíða,
sem líktist liinum fyrri í alla staði. Til
Reykjavíkur komum við um kl. 18,30.
Var ákveðið að hittast í Glaumbæ um
kvöldið ,en mættum aðeins 4, á staðinn.
Hinir hafa líklega verið andlega og lík-
amlega illa á sig komnir.
En eitt er víst, að ferðalag þetta heppn-
aðist í alla staði vel, og svo var að heyra
á mönnum eftir á, að Jreir hefðu aldrei
skemmt sér eins vel. Megi |3eir minnast
þessarar ferðar um ókominn tíma.
Þórleifur Friðriksson.
flkranesreisa
Skömm og svívirða!
Hér á eftir átti að fylgja lieil ritgerð
um þessa ævintýralegu för, en æsingur
minn er Jsað mikill enn Jná, að ég ætla
aðeins að benda á nokkur meginatriði til
að fyrra forsjármenn Jjessa handbolta-
móts meiri hneysu en komið er.
Úr mátti bæta:
1. Enginn afsláttur fyrir hópferð sem
slíka með Akraborginni.
2. Engin hátíðamóttaka á hafnarbakka
og því síður leiðsögumaður viðlátinn að
vísa á íveruhúsnæði.
3. Hvergi möguleiki á að seðja matar-
Jjörf okkar, nema á hóteli staðarins og
allir vita hvað það kostaði.
4. Ekkert skipulag á tilnefningu dóm-
ara, markaskráningarmanna eða tíma-
varða báða dagana.
5. Athugunarleysi að leigja ekki á-
ætlunarbifreið undir mannskapinn á
ballið á Hlöðum, úr Jdví að ekki þótti
tækt að nýta danshúsin á Akranesi, t. d.
Rein.
6. Foxdýrt inn á ballið, sem iðnnem-
arnir þarna upp frá stóðu J>ó fyrir.
7. Mótinu var aldrei slitið, svo sem
viðeigandi hefði verið.
8. Engin sjóveikispilla nægilega sterk
á heimleiðinni.
9. Við töpuðum alltof oft þó við vær-
um alltaf að skora.
10. Frh. í næsta blaði, ef tækt þykir.
ILLUR
6
PRENTNEMINN