Prentneminn - 01.01.1970, Page 9
svo að mönnum yxi ökki kjarkur varð-
andi ferðalög upp í púltið, sumir urðu
meira að segja svo áhugasamir að álieyr-
endum fór að leiðast, en allt var þetta til
góðs, jafnvel fyrir félagið.
Efnt var til kvöldvaka og voru þær
við sitthvað kenndar, til að mynda ,,1 og
átta“ og „Jóðlíf“. Allar urðu þessar
kvöldvökur mönnum til mikillar ánægju
og yndisauka, nema hvað sumir á útleið,
runnu á rassinn. Lengi verður í hávegum
höfð prúðmennska og yfirnáttúrulega
hrifnæmur söngur manna á fyrrnefndum
kvöldvökum.
íþróttamenn félagsins, allir sérlega í-
þróttamannslega vaxnir, stóðu sig af-
spymuvel, unnu meðal annars bikar einn
mikinn af silfri gjörðan, til eignar, í fót-
boltakeppninni á landsmóti iðnnema. í
mörgum fleiri keppnum tóku þeir þátt í
og báru þeir ávallt af bæði utan vallar
sem innan, fyrir sérstaka prúðmennsku,
siðsemi og hógværð í hvívetna.
Um mitt sumar brugðu nokkrir „gal-
vaskir“ prentnemar sér svo í ferðalag.
Farið var um uppsveitir Borganfjarðar
og var allsstaðar tekið á móti okkur með
pomp og pragt þar sem við lögðumst svo
lágt að á. Næturgisting átti sér stað í
Hvalfirði í skjóli við félagsheimili nokk-
uð, allir vorum við til hvílu gengnir um
átta-tleytið, en ekki höfðum við lengi sof-
ið er við vöknuðum við söng mikinn.
Höfðu heimamenn slegið upp balli
miklu í tilefni af komu okkar, gengum
við því til veizlu og neyttum lengi nætur,
framhald á síðu 112.
Ekki gieymdum við því að við nem-
um prent og þess vegna eru komin út tvö
tölublöð af málgagni okkar, Prentnem-
inn, en hann er nú senn á þrotum.
Eíkki skulum við gleyma að minnast
lítililega á málfundinn eina. Tekin voru
fyrir tvö málefni og voru sérfræðingar
fengnir til framsögu, en síðan áttu sér
stað almennar umræður og fyrirspurnir
og sáust þar þess merki að djúphyggnir
menn áttust við.
Það er engan veginn satt að allt sem
ég hef sagt sé eintóm lielber lýgi, sumt
af því er meira að segja staðreynd —
ég meina „í Guðs friði“. Mes
PRENTNEMINN
9