Prentneminn - 01.01.1970, Page 15

Prentneminn - 01.01.1970, Page 15
27. þing Iðnnemasambands íslands Þann 24. október s.l. kom saman í Domus Medica glæsilegur hópur ungra manna. Þetta voru iðnnemar, sem hin ýmsu iðnnemafélög höfðu kosið til að sitja þing Iðnnemasambands íslands, sem haldið var dagana 24.-26. október s.l. Milli 50—60 fulltrúar sátu þingið að þessu sinni, en telja má að þing þessi séu mikilvcegur þáttur í starfsemi Sambands- ins, því á þeim er mörkuð sú aðalstefna sem I.N.S.Í. starfar eftir. Þingsetning var auglýst 'ki. 2 e. h., en eðlilega hófst hún ekki fyrr en um 3- leytið, er formaður I.N.S.Í., Sigurður Magnússon, sté í púltið og sagði nokkur falleg orð. 2. dagskrárliður átti að vera ávörp til þingsins, en það virtist sem menn væru ekki málhressir, því enginn tók til máls undir þeim lið. Skýrsla formanns var því tekin fyrir sem 2. liður, hældi hann stjórn Sam- bandsins mikið og lastaði lítillega, eins og vera ber. 3. liður var afgreiðsla kjör- bréfa, en þeim mönnum, sem um það sáu, fórst sú afgreiðsla einkar illa úr hendi. 4 .liður: kjörnir starfsmenn. 5. liður: kjörnar nefndir. 6. liður var einna skástur þennan daginn, en hann var: þingfundi frestað. — Er þingforseti hafði frestað fundi, tók Sigurður Magnússon til við að hvetja menn til að mæta í 25 ára afmælishóf I.N.S.Í. er haldið var að Hótel Loftleiðum þá um kvöldið. Afmælishófinu man ég ekki nægilega vel eftir til þess að geta skýrt vel frá því, er þar gerðist, en að því er ég hef frétt, má ráða að það hafi tekizt í alla staði mjög vel. Þar voru meðal annars mættir nokkrir fyrrverandi formenn Sambands- ins, þeir drápu víst á ýmis skemmtileg og fróðleg atriði, sem öllum var vel tekið, svona til að sýna lit. Er líða tók á kvöldið fóru menn að tínast fram í hina frábæru danssali Hó- telsins og tóku þar til við sín aðaláhuga- mál. Það mættu allir hressir og kátir til nefndarstarfa kl. 9 á laugardagsmorgun. Ýmsir höfðu einhverra orsaka vegna far- ið í heimsókn til Bakkusar á föstudags- kvöldið og einstaka menn voru það bí- ræfnir að vera í þeirri heimsókn alla þingdagana. Ekki skal ég 'lasta þá, því maður veit sosum að alltaf freistar Bakk- us. Þingfundur var settur kl. 2 á laugar- daginn í Domus Medica. Fyrsta mál á dagskrá var skýrsla ritara, romsaði hann henni upp úr sér, en tók síðan til við að liæla sambandsstjórnarmeðlimum fyrir frábærar mætingar, að því er honum fannst. Næst kom skýrsla gjaldkera og tókst honum furðanlega að fela öll óþarfa útgjöld bak við önnur meiriháttar. Litlar sem engar umræður urðu um þessar tvær skýrslur, frekar en skýrslu formanns, daginn áður. 3. liður var fyrri umræða um lagabreytingar. Komið var fram með nokkrar mikilvægar breytinga- tillögur á lögum og fundarsköpum I.N.- S.í. Nökkrar umræður urðu um breyt- ingatillögurnar, en menn hugleiddu þær PRENTNEMINN 15

x

Prentneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentneminn
https://timarit.is/publication/950

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.