Prentneminn - 01.01.1970, Blaðsíða 22
Um íþróttalífifi í félaginu
íþróttaáhugi innan Prentnemafélags-
ins hefur verið góður það sem af er starfs-
árinu. Knattspyrna hefur verið aðal-
íþróttagreinin, og hafði félagið í því sam-
bandi afnot af Ármannsvelli við Sigtún
í sumar. Marga æfingaleiki höfum við
fengið. Má þar nefna:
P.F.R. — Félagsprentsmiðjan .... 4:8
Oddi - P.F.R..................... 1:2
P.F.R. - Slippfélagið .......... 4:3
P.F.R. - ísafold ............... 2:3
Einnig skoruðu Loftleiðir á okkur, en
mættu ekki til leiks þegar til átti að taka.
Eðlilega sýna tölurnar lítið um gang
hvers leiks fyrir sig, og um tapleikina er
það að segja, að við höfðum ekki í fullt
lið gegn ísafold og er þar um að kenna
gleymsku nökkurra beztu manna okkar,
en í leiknum gegn Félagsprentsmiðjunni
þekktum við varla liver annan sökum æf-
ingaskorts. í vor mættu prentnemar á
liandknattleiksmót I.N.S.Í. sem haldið
var á Akranesi. Kostaði félagið að hluta
fargjald keppenda. Lékn þeir fjóra leiki
og er þar Skemmst frá að segja að við
töpuðum þeim öllum með heiðri og
sóma og svo ekki meir um það, en vísast
til greinar um þá ferð á öðrum stað í
blaðinu.
Nú í vetur tókum við á leigu æfinga-
liúsnæði undir stúku íþróttaleikvangsins
í Laugardal og hyggjumst þar æfa og æfa
og vinna næsta mót. Það er vel mögulegt
ef vel verður mætt á æfingar.
Hér í blaðinu er allnokkuð skýrt frá
Landsmótinu að Félagslundi og er því ó-
þarfi að rekja hér sögu atvikanna á þeirri
liátíð. Þar unnum við knattspyrnukeppn-
ina með yfirburðum og héldum heim
með fagran bikar í viðurkenningarskini.
Liðið, sem vann bikarinn var þannig
skipað:
Stefán Asgrímsson
Guðleifur Magnússon
1‘órarinn Beck
Sigurður Magnússon
Jóhannes Harðarson
Mattliías Gunnarsson (fyrirliði)
Þórleifur Friðriksson
Guðmundur Grétarsson
Eyjólfur Alfreðsson
Skúli Marteinsson
Magnús Axelsson
Magnús Sigurðsson
í handknattleik lékum við í undanúr-
slitum gegn liði rafvirkja og töpuðum
Iionum (14:16) í tvísýnum en spennandi
leik, og misstum þar með af þeim bikar.
Ekki var um almenna þátttöku Prent-
nema í frjálsum íþróttum að ræða, og
látum við afrekaskrá þeirra liggja milli
hluta.
Á næstunni eru verkefni íþróttanefnd-
ar að undirbúa þátttöku í innanhúsknatt-
spyrnumóti í desember, skíðalandsmóti
í febrúar, æfingaleiki í handknattleik
öðru hverju fram til handknattleiksmóts
í apríl og væntanlegs landsmóts í sumar.
„Enginn veit hvað framtíðin ber í
skauti sér,“ segja prentsmiðjustjórarnir,
en við prentnemamir getum horft bjart-
sýnir fram á veginn.
22
PRENTNEMINN