Bókbindarinn - 01.04.1973, Side 27
BCKBINDARINN
27
Tryggví Sveinbjörnsson.
32 þing ASÍ:
Stjórn félagsins ákvað að kosn-
ing til ASÍ-þings færi fram að
þessu sinni á félagsfundi og
voru þessir kosnir aðalfulltrú-
ar: S'vanur Jóhannesson og
Tryggvi Sveinbjörnsson. Vara-
fulltrúar: Grétar Sigurðsson og
Kolbrún Kristjánsdóttir. Fé-
lagið átti nú í fyrsta sinn tvo
fulltrúa á þingi ASÍ. Á þinginu
var samþykkt að fela miðstjórn
að boða til ráðstefnu þegar rík-
isstjórnin væri búin að gera
efnahagsráðstafanir þær, sem
þá voru á döfinni. Formaður
mætti á ráðstefnu þessari, sem
haldin var í jan. sl., og var þar
lögð fram skýrsla eða tiilögur
um hugsanlegar aðgerðir til
þess að daga úr verðbólguþróun,
sem spáð er á árinu 1973. Ráð-
stefnan samþykkti í ályktun að
til greina gæti komið að fallast
á niðurfellingu vísitölustiga í
staðinn fyrir lækkun tekju-
skatts og aukna tannlækninga-
niðurgreiðslu, en var mótfallin
því að tóbak og áfengi yrði
tekið út úr vísitölugrundvellin-
um, og það mál bæri að taka
til endurskoðunar við gerð
næstu kjarasamninga.
Þing bókagerðarmanna í DDR:
Félagið fékk boð frá A-Þýzka-
landi í sumar um að senda einn
til tvo bókbindara á þing bóka-
gerðarmanna í Rostock. Stjórn-
in ákvað að styrkja einn félaga
til þess að fara á þingið og va’d-
ist Einar Helgason til fararinn-
ar. Hann sagði frá för sinni á
félagsfundi 15. jan. sl. og sýndi
skuggamyndir úr ferðinni.
Bókagerðarmannatal:
Bókbindaratalið var fullbúið til
prentunar snemma á þessu ári,
en beðið var eftir öðrum bóka-
gerðarmönnum og varð það til
þess að rétt þótti að fara yfir
það allt aftur og bæta við og
leiðrétta. Nú er það komið í
setningu í Prentsm. Odda, en
myndir eru í athugun og kliss-
iur, en þær þarf að minnka að-
eins og fara yfir. Nafn ritsins
er ákveðið Bókagerðarmenn.
Hörður Karlsson hefur mætt á
2 fundum vegna ritsins, en
Svanur Jóhannesson hefur ann-
ast söfnunina.
Sjúkrasjóðsnefnd
var kosin sl. haust skv. samn-
ingum við F.í.p., og eru í nefnd-
inni Svanur Jóhannesson, Hörð-
ur Karlsson og Einar Egilsson,
af hálfu BFÍ.
Reglugerð veikindadaga
var samþykkt á félagsfundi 15.
jan. sl„ og var hún siðan fjöl-
rituð og send á verkstæðin.
Heiðursfélagi
var kjörinn á trúnaðarmanna-
ráðsfundi sl. haust Bjarni Ól-
afsson í Gutenberg og var hon-
um haMið samsæti af því til-
efni í nóv. sl. og afhent skraut-
ritað heiðursfélagaskírteini í
skinnbandi. Bjarni átti sinn þátt
í því að fundargerðarbækur
félagsins varðveittust.
Samband við félaga úti á landi:
Formaður og gjaldkeri fóru til
Keflavíkur í sumar og ræddu
við forstjóra Grágásar, en bók-
band þar hefur að mestu legið
niðri síðan 1971.
Gott samstarf hefur verið við
félaga á Akureyri og var full-
trúa þaðan nú boðið á aðalfund
féiagsins í fyrsta sinn. Félagar
þar eru nú um 10 talsins. Hafn-
firðingar hafa átt sína fulltrúa
í stjórn og TRMR og gott sam-
starf verið við þá.
Önnur mál, sem tekin hafa
verið fyrir í stjórninni, varða
aðallega daglegan rekstur, und-
anþágur fyrir stúlkur og ýmis
konar fyrirgreiðslu við félagana.
Stjórn næsta tímabils:
Tillögunefnd um stjórnarkjör
var kosin á fé’agsfundi 15. jan.
sl. og áttu sæti í henni: Hjör-
leifur Hjörtþórsson, Tryggvi
Sveinbjörnsson, Einar Helgason,
Óskar Kjartansson og Viðar
Þorsteinsson. Nefndin lauk
störfum 24. jan. sl. og tilnefndi
þessa menn:
Formaður: S'vanur Jóhannesson.
Varaform.: Hörður Karlsson.
Ritari: Tryggvi Sveinbjörnsson.
Gjaldkeri: Einar Egilsson.
Meðstj.: Bjarni Ingólfsson.
Varamenn:
1. Björn Guðnason,
2. Hjörleifur Hjörtþórsson
3. Ólafur Ottósson,
4. Ragnar Einarsson,
5. Birgir Guðmundsson.
Aðeins tillaga nefndarinnar
kom fram og eru þessir menn