Fréttatíminn - 08.07.2011, Blaðsíða 2
Fréttatíminn fluttur í Kaaber-húsið
N ú síðast kallaði kona á eftir mér að ég hefði lagt í stæði fyrir fatlaða,“ segir María. „Ég sagði
henni þá að líta á miðann í framrúðunni
og þá hrópaði hún á eftir mér: „Þú ert
ekki í hjólastól!“ Þá fór ég til hennar og
sagði henni að það væru alls konar aðrar
ástæður fyrir því að fólk fengi þessi
stæðiskort og það þyrfti ekki endilega
að vera í hjólastól. Þá sagði hún bara
að sér væri alveg skítsama og hún væri
bara ósammála því. Þá sagði ég henni að
ég væri með MS og nokkra gigtarsjúk-
dóma og mér þætti hún sýna rosalega
mikinn dónaskap. Þá baðst hún flótta-
lega fyrirgefningar.“
María segir að þessi uppákoma sé síð-
ur en svo einsdæmi. Hún hafi meðal ann-
ars lent í því að fólk slái í bílinn hennar
og sendi henni alls kyns glósur. „Þetta
er frekar algengt og það er ekki bara ég
sem lendi í þessu. Ég er alltaf að heyra
af fólki sem er ekki með sýnilega fötlun
og verður fyrir aðkasti þegar það leggur
í þessi stæði. Þetta er mjög óþægilegt
og ég er farin að forðast að leggja í þessi
stæði. Ég hef stundum snúið við og farið
bara heim; hætt við að fara í búðina af
því að mér finnst þetta svo óþægilegt.“
„Við könnumst við þetta vandamál,“
segir Hafdís Runólfsdóttir, ferlismála-
Sérmerkt bílaStæði Fatlaðir verða Fyrir áreiti
María Pétursdóttir stríðir við fötlun en hikar við að nýta sér rétt sinn á sérmerktum bílastæðum fyrir fatlaða vegna áreitis
samborgaranna sem eiga það til að ganga býsna langt þar sem fötlun Maríu er ekki sýnileg.
Óþarfa afskiptasemi
og dónaskapur
María Pétursdóttir glímir við MS-sjúkdóminn og gigt. Hún á því erfitt með að ganga og hefur,
vegna fötlunar sinnar, merki í bíl sínum sem heimilar henni að leggja í stæði fyrir fatlaða. Þar
sem hún ber hins vegar ekki fötlun sína utan á sér verður hún svo oft fyrir áreiti og skömmum
samborgaranna að hún er farin að forðast þau bílastæði sem ætluð eru fötluðum. Þekkt
vandamál, segir fulltrúi hjá Öryrkjabandalaginu.
fulltrúi hjá Öryrkjabandalagi Ís-
lands. „Það eru margir sem lenda
í þessu, og þá sérstaklega þeir
sem ekki eru með sýnilega fötlun.
Merkið er þannig gert að margir
tengja þetta við hjólastólana og það
er erfitt að eiga við þetta vegna þess
að það eru svo margir með fötlun
sem ekki er sýnileg en eiga ein-
hverra hluta vegna erfitt með gang
og hafa þess vegna rétt á þessum
stæðiskortum.“
María segir margvíslegar ástæð-
ur fyrir skertri göngugetu kalla á
alls konar misskilning. „Þannig að
fólk á bara ekkert að vera að skipta
sér af þessu. Löggan og stöðumæla-
verðir sjá um að sekta ef einhver er
að misnota þetta og fólk á bara að
láta þetta í friði. Það er mjög óþægi-
legt fyrir fólk sem er með einhverja
fötlun að þurfa einhvern veginn að
vera með allra augu á sér, “ segir
María sem finnst óþarfa tauga-
veiklun ríkja hjá fólki í kringum
bílastæði fyrir fatlaða. Ekki síst þar
sem hún verði afar sjaldan vör við
ómerkta bíla í stæðunum.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Stæðiskort
með ströngum
skilyrðum
Samkvæmt reglugerð um útgáfu
og notkun stæðiskorta fyrir
hreyfihamlaða þarf umsækjandi
að hafa, annað hvort sem öku-
maður eða farþegi, sérstaka þörf
fyrir ívilnun til að leggja ökutæki
vegna heimilis, vinnu eða annarr-
ar starfsemi vegna þess að „hann
getur ekki gengið eða á mjög
erfitt með að hreyfa sig nokkurn
spöl“. Læknisvottorð verður að
fylgja umsókn um stæðiskort og
lögreglustjóri leggur síðan sjálf-
stætt mat á umsóknina og tryggir
að fullnægjandi upplýsingar um
hreyfihömlun umsækjanda liggi
fyrir áður en ákvörðun um útgáfu
korts eða endurnýjun er tekin.
Þetta
er mjög
óþægilegt
og ég er
farin að
forðast
að leggja
í þessi
stæði.
Leiðrétting
Í umfjöllun Fréttatímans
24. júní um kynferðis-
brot í Landakotsskóla var
ranglega sagt að Hinrik
Frehen hefði verið sá biskup
kaþólsku kirkjunnar sem
fékk ábendingar um
kynferðisbrot árið 1963.
Hið rétta er að þá var annar
maður biskup kaþólskra á
Íslandi. Hinrik Frehen tók
ekki við sem biskup fyrr en
1968. Beðist er afsökunar
á þessum mistökum. Þau
voru blaðsins en ekki við-
mælandans.
Fréttatíminn er fluttur á nýjan stað, í glæsilegt húsnæði að Sætúni 8 í Reykjavík,
sem betur er þekkt sem Kaaber-húsið. Húsið hefur verið endurnýjað að utan jafnt
sem innan en aðsetur Fréttatímans er í björtu risi hússins. Auglýsingastofan Fíton
hefur einnig sameinað alla starfsemi sína undir einu þaki í Kaaber-húsinu, þ.m.t.
birtingafyrirtækið Auglýsingamiðlun, framleiðslufyrirtækið Miðstræti og vefsíðu-
fyrirtækið Atómstöðina. Þá eru fasteignafélagið Þórsgarður og Meira leiguhúsnæði
með aðstöðu í húsinu. Kaaber-húsið hefur lengi sett svip á umhverfi sitt og þaðan
er fögur sjávarsýn yfir sundin blá, Esju, Akrafjall og Skarðsheiði. Húsið var teiknað
1947, byggt úr steinsteypu og tekið í notkun á fyrstu árum sjötta áratugarins en þar
var Kaffibrennsla Ó. Johnson & Kaaber. Arkitekt var Sigmundur Halldórsson. Auk
kaffibrennslunnar var Ludwig David-kaffibætir framleiddur í húsinu svo segja má
að ljúfur kaffiilmur hafi fylgt því. Eftir að kaffibrennslan flutti var þar framleiðsla á
Sani-pappírsvörum og fleiru. Enn fremur var þar lager Heimilistækja eftir að kaffi-
framleiðslan fluttist á Tunguháls. Í þessu sögufræga húsi líta starfsmenn Frétta-
tímans björtum augum til framtíðar. - jh
Ráðherra skoðar
malarvegi vestra
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fór í vikunni,
ásamt fylgdarliði frá ráðuneytinu og Vegagerðinni,
vestur á firði til að kynna sér stöðu vegamála í
fjórðungnum. Þar eru malarvegir algengari en í
öðrum fjórðungum, einkum í Barðastrandarsýslu,
en deilur hafa staðið um vegstæði þar árum saman.
Ráðherra hitti sveitarstjórnarfólk og starfsmenn
Vegagerðarinnar og ræddi einnig við lögreglumenn,
að því er fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins. Rætt
var um það sem fram undan er í vegaframkvæmdum
á Vestfjörðum og fram kom hjá sveitarstjórnar-
mönnum að samstaða væri um það í Fjórðungssam-
bandi Vestfirðinga að áhersla skyldi lögð á vegafram-
kvæmdir í Barðastrandarsýslu og síðan framkvæmdir
við Dýrafjarðargöng og Dynjandisheiði. - jh
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
GERÐU VERÐSAMANBURÐ
LÆGRA LYFJAVERÐ Í 14 ÁR
–einfalt og ódýrt
Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri
Bardagamaðurinn
í búrinu
Gunnar Nelson er sá
harðasti en honum
leiðist ofbeldi
María Bergsdóttir upplifði aðfarir lögreglunnar sem nauðgun og segist aldrei munu bíða þess bætur. Ljósmynd/Hari
32
34
Viðtal Fórnarlamb SelFoSSlögreglunnar
síða 24
Eigendur strípa íbúðir áður
en bankarnir taka þær yfir
2. tölublað 1. árgangur
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
HELGARBLAÐ 15.-17. október 2010
3. tölublað 1. árgangur
Lindsay
Lohan
Óþekkasta
stelpan í Holly-
wood en
alltaf flott
í tauinu
52
b ankar hafa þurft að kæra fyrrverandi eigendur hús-næðis, sem þeir hafa yfir-
tekið, til lögreglu fyrir skilasvik.
Dæmi eru um að reitt fólk, sem
misst hefur eignir sínar, hafi gert
þær tilbúnar undir tréverk.
„Ástandið er þannig að fólk, sem
misst hefur íbúðir sínar, hefur í
síauknum mæli ráðist í að hreinsa
allt út úr þeim áður en lánastofn-
anir taka þær yfir. Fólk tekur
eldhúsinnréttingar, baðinnrétt-
ingar, skápa, hurðir og í sumum
tilvikum gólfefni. Við verðum æ
oftar vör við þetta. Það er mikil
reiði í fólki gagnvart bönkunum
og stemningin er þannig að bank-
arnir eigi ekkert skilið. Þetta er
auðvitað hörmulegt,“ segir Grét-
ar Jónasson, framkvæmdastjóri
Félags fasteignasala, í samtali við
Fréttatímann.
Kristján Kristjánsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsbankans, stað-
festir í samtali við Fréttatímann
að bankinn hafi kært eitt slíkt
tilvik til lögreglu. „Við vitum um
örfá tilfelli þar sem skil á eignum
hafa ekki verið fullnægjandi og
eitt mál er í farvegi hjá lögregl-
unni,“ segir Kristján.
Már Másson, upplýsinga-
fulltrúi Íslandsbanka, segir
nokkur dæmi um eignaspjöll
hafa komið inn á borð til bank-
ans og þau hafi í öllum tilvikum
verið kærð. „Við erum með skýra
línu í þessu og sendum öll mál til
lögreglu þar sem grunur leikur á
slíku,“ segir Már.
Ekki náðist í framkvæmda-
stjóra Íbúðalánasjóðs en eftir því
sem næst verður komist hafa þó
nokkur mál tengd eignaspjöllum
komið inn á borð sjóðsins.
oskar@frettatiminn.is
Finnur Oddsson
framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs
Hús og Hönnun
Ítarlegur og litríkur
kafli helgaður heimilinu
Ómissandi bækur,
tíska, næturlíf ...
Edda Pétursdóttir
nefnir það sem hún getur
ekki verið án.
31í miðju blaðsins
Þörf er á forystu
á öllum sviðum
samfélagsins
Ég sé fyrir mér
glottið og full-
nægju þess
valdasjúka að ná
fram vilja sínum
með því að sví-
virða mig á eins
hrottafenginn
hátt og hægt er
að gera nokkurri
manneskju.
María Bergsdóttir er skugginn
af sjálfri sér eftir að Selfosslög-
reglan þvingaði þvaglegg upp í
líkama hennar
Reiðir íbúar hreinsa allar innréttingar, gólfefni og hurðir úr íbúðum áður en þær eru teknar yfir. Bankar hafa þurft að kæra
til lögreglu. Framkvæmdastjóri Félags fasteignasala segir fólk reitt í garð bankanna og grípi því til aðgerða.
kæra Þvaglegg ÞröNgvað upp gegN vilja koNu
„Bæturnar eru ásættanlegar,“ segir Jón Egils-
son, lögmaður Maríu Bergsdóttur sem krafðist
bóta frá ríkinu og hefur nú fengið þær vegna
meðferðar eftir handtöku fyrir utan Selfoss í
mars 2007. Hún var grunuð um ölvunarakstur.
Við töku þvagsýnis var þvaglegg þröngvað upp
í líkama konunnar gegn vilja hennar.
María lýsti upplifun sinni í Fréttatímanum
í fyrrahaust. Þar sagði m.a.: „Ég gat enga
björg mér veitt heldur lögðust á mig fimm
karlmenn og með aðstoð læknis og hjúkr-
unarfræðings var eins og mér væri nauðgað
á steinbekknum.“ Hún missti ökuréttindi í
eitt ár og var dæmd í þrjátíu daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa í frammi lífláts-
hótanir við lögreglu. María kærði meðferðina
til ríkissaksóknara en hann sá ekki ástæðu
til að fara lengra með málið. Umboðsmaður
Alþingis tók málið hins vegar upp sjálfstætt og
eftir bréfaskriftir á milli hans og ráðuneytis
komst þáverandi dóms- og mannréttindaráðu-
neyti að þeirri niðurstöðu að fallast mætti á
að í umræddu máli hefði ekki verið gætt að
grundvallarreglunni um meðalhóf, sem þýðir
að lögreglumennirnir hafi gengið of harkalega
fram. Jafnframt kom fram í svari ráðuneytisins
að forðast ætti að nota þvaglegg til að taka
þvagsýni í þágu rannsóknar.
María var ósátt við niðurstöðu dómstóla en
Jón segir hana mjög þakkláta umboðsmanni
Alþingis fyrir að taka „þvagleggsmálið“ upp að
eigin frumkvæði. Sama gildi um Ögmund Jón-
asson innanríkisráðherra sem hafi gefið sér
tíma til að skoða málið. Einar Karl Hallvarðs-
son, hæstaréttarlögmaður hjá ríkislögmanni,
hafi einnig lagt sig fram til að ná sáttum.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Fær bætur vegna „þvagleggsmálsins“
Umboðsmaður Alþingis tók málið upp sjálfstætt. Forðast á að nota þvaglegg til að taka þvagsýni til rannsóknar.
Eins og
mér væri
nauðgað
á stein-
bekknum.
Forsíða Fréttatímans þar
sem María Bergsdóttir lýsti
reynslu sinni sem hún líkti
við nauðgun. Hún hefur nú
fengið ásættanlegar bætur
vegna meðferðarinnar.
Skannaðu kóðann eða farðu á
gottimatinn.is til að fá alla uppskriftina.
gulrótasúpa
með vorlauk og sýrðum rjóma
Rjómi með tappa
endist lengur!
ATH!
2 fréttir Helgin 8.-10. júlí 2011