Fréttatíminn - 08.07.2011, Page 6
H ámarks miskabætur sem ríkið tryggir þolendum afbrota hafa ekki hækkað
í sextán ár. Upphæðin er langtum
lægri en annars staðar á Norður-
löndunum. Hér er hún 600 þúsund
krónur að hámarki en í Noregi
50 milljónir, eða ríflega 83 sinn-
um hærri. Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra vill endurskoða
skaða- og miskabótalöggjöfina.
Árið 1995 voru sett lög um að
ríkissjóður greiði þolendum af-
brota bætur sem þeim hafa verið
dæmdar. Tilgangur laganna var
meðal annars að koma í veg fyrir
að þolendur ofbeldis- og kynferðis-
brota þyrftu að rukka brotamenn.
Bæturnar skiptast aðallega í tvo
flokka, miskabætur og skaðabætur.
Skaðabætur eru dæmdar vegna
líkamstjóns og eiga meðal annars
að ná yfir vinnutap og sjúkrakostn-
að. Hámark skaðabóta sem ríkið
ábyrgist þolendum eru tvær og
hálf milljón króna. Miskabætur eru
yfirleitt dæmdar í kynferðisbrotum
vegna tjóns sem ekki verður metið
til fjár og eru meira tilfinningalegs
eðlis. Hámark miskabóta sem ríkið
ábyrgist er 600 þúsund krónur en
að lágmarki 400 þúsund. Ríkið
rukkar afbrotamenn sem nemur
þessum upphæðum en séu brota-
þolum dæmdar hærri bætur þurfa
þeir sjálfir að rukka brotamenn
sína.
Sýslumannsembættið á Siglufirði
annast málefni skaða- og miska-
bóta. Halldór Þormar Halldórsson,
lögfræðingur embættisins, segir
augljósa galla á fyrirkomulaginu.
„Upphaflega voru lögin sett til að
hlífa þolendum í kynferðisbrota-
málum við að innheimta brotamenn
sína sjálfir en nú eru það fyrst og
fremst þolendur kynferðisbrota
sem lenda í því.“
Upphæðin sem ríkið tryggir hef-
ur ekkert hækkað síðan lögin voru
sett og Halldór segir það löngu
tímabært. „Við erum að dragast
verulega aftur úr nágrannaþjóðum
okkar í þessum málum. Í Noregi
tryggir ríkið að hámarki 50 millj-
ónir króna í miskabætur eða lág-
marks ársframfærslu sinnum 40 ár.
Í Svíþjóð tryggir ríkið að hámarki
26 milljónir eða lágmarks ársfram-
færslu sinnum 20 ár.“
Í alvarlegum kynferðisbrotum
er algengt að dæmdar miskabætur
séu um ein til tvær milljónir króna.
„Það er mjög vont að stór hluti þol-
enda gangi með óbætt tjón,“ segir
Halldór.
Að mati Ögmundar Jónassonar
innanríkisráðherra er ekki eðlilegt
að ríkið geri mun á þessum bóta-
flokkum. „Það er ástæða til að
enduskoða löggjöfina og samræma
upphæðina sem ríkið tryggir í
miska- og skaðabótamálum. Mér
finnst ekki gefið að það eigi að vera
ríkari ábyrgð gagnvart skaðabótum
en miskabótum, nema síður sé.“
Hann segir málið hafa verið til
umræðu hjá innanríkisráðuneytinu
en engin formleg vinna sé hafin við
endurskoðun á lögunum.
„Að hluta til er þetta kynbundið
mál. Karlar eru í meirihluta þeirra
sem hljóta líkamstjón og fá því
tryggðar skaðabætur. Konur eru
meirihluti þeirra sem dæmdar eru
miskabætur en fá ekki miskann
bættan nema að hluta.“
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Dómsmál misræmi í skaða- og miskabótum
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra Telur að endurskoða verði lög og
samræma þær upphæðir sem ríkið ábyrgist í öllum ofbeldismálum. Ljósmynd/Hari
Óeðlilegt að ríkið
tryggi líkamlegt en
ekki andlegt tjón
Innanríkisráðherra telur að samræma verði upphæð miskabóta
og skaðabóta sem ríkið tryggir þolendum í ofbeldismálum. Ekki
sé rétt að ríkið ábyrgist tvær og hálfa milljón króna fyrir líkams-
tjón en aðeins 600 þúsund vegna andlegs tjóns.
Landsdómur verði
felldur niður
Landsdómur verður felldur niður
gangi tillögur stjórnlagaráðs eftir. Í
tilkynningu ráðsins kemur fram að
það samþykkti breytingartillögu
C-nefndar um að landsdómur verði
lagður niður í núverandi mynd og
verkefni hans færð til almennra
dómstóla. Í ákvæðinu kemur
fram að þingnefnd, þriðjungur
þingmanna eða forseti Íslands
geti vísað til Hæstaréttar að dæma
hvort lög, stjórnarathafnir eða at-
hafnaleysi stjórnvalda samrýmist
stjórnarskrá. Fallið er frá sérstakri
skipan Hæstaréttar í þeim tilfellum
eins og var í fyrri tillögum. - jh
Fyrrum landsbanka-
stjórnendum stefnt
Lögfræðingi Sigurjóns Árnasonar, fyrrverandi banka-
stjóra Landsbankans, hefur verið birt stefna samkvæmt
upplýsingum frá slitastjórn bankans, að því er fram kom
í frétt Ríkisútvarpsins. Stefnan tengist tveimur atvikum
sem áttu sér stað í aðdraganda falls gamla Landsbank-
ans. Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans stefndu
í síðustu viku Halldóri J. Kristjánssyni, fyrrverandi
bankastjóra Landsbankans, og Elínu Sigfúsdóttur
sem var forstöðumaður fyrirtækjasviðs bankans. Elínu
var stefnt vegna ábyrgða sem Kaupþing veitti til að
tryggja lán úr Landsbankanum, en voru ekki innheimtar.
Halldóri var einnig stefnt vegna þess máls og vegna
millifærslna upp á átján milljarða til Straums Burðaráss,
nokkrum dögum áður en Landsbankinn varð gjaldþrota.
Í fréttinni kemur fram að lögfræðingi Sigurjóns var birt
stefnan vegna sömu mála og Halldóri var stefnt fyrir. -jh
Helgin 8.-10. júlí 2011