Fréttatíminn - 08.07.2011, Qupperneq 8
Örfáum mín-
útum síðar
kom vinur
minn að mér
liggjandi í
götunni og
ókunnuga
manninum
grátandi og
öskrandi við
hlið mér.“
Eftir útgáfu ríkissjóðs á
skuldabréfi í dollurum í síðasta
mánuði hafa líkur á neikvæðum
áhrifum á gjaldeyrisflæði, og
þar með gengi krónu vegna
gjalddaga á erlendum lánum
ríkissjóðs næstu árin, minnkað
mikið og að öðru óbreyttu
eru slík áhrif raunar ólíkleg að
mati Greiningar Íslandsbanka.
Með útgáfunni, sem nam
milljarði Bandaríkjadollara, var
tryggð endurfjármögnun þess
hluta gjaldeyrisforða Seðla-
bankans sem fenginn var að
láni með skuldabréfaútgáfum
fyrir hrun. Um er að ræða tvær
skuldabréfaútgáfur í evrum;
annars vegar bréf með gjald-
daga í desember á þessu ári þar
sem nú eru útistandandi 290
milljónir evra, og hins vegar
bréf með gjalddaga í apríl á
næsta ári þar sem rúmlega 164
milljónir evra eru útistandandi.
Miðað við stundargengi evru
gagnvart dollar samsvara
framangreindar upphæðir
u.þ.b. 658 milljónum dollara,
og framangreind dollaraútgáfa
gerir því gott betur en duga fyrir
gjalddögunum tveimur. - jh
Dollaraútgáfa ríkissjóðs
skapar aukið svigrúm
Raungengi krónunnar lækkar
Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,2% á
milli maí og júní á mælikvarða hlutfallslegs verðlags.
Þessi lækkun er tilkomin vegna lækkunar á nafn-
gengi krónunnar á tímabilinu sem lækkaði um 0,6%
í júní miðað við vísitölu meðalgengis. Verðlag hefur
vegið eitthvað upp á móti áhrifum nafngengis á
raungengi á þessu tímabili en það hækkaði um 0,5%
miðað við vísitölu neysluverðs á sama tíma, að því er
fram kemur í tölum Seðlabanka Íslands. Raungengi
krónunnar hefur lækkað stöðugt frá nóvember á
síðasta ári og nemur lækkunin á því tímabili 5,4%.
Þessa lækkun má rekja, segir Greining Íslandsbanka,
til lækkunar á nafngengi krónunnar á tímabilinu
en það hefur lækkað um 6,9% frá því í nóvember
miðað við vísitölu meðalgengis. Verðlag hér á landi
hefur því verið að hækka nokkuð umfram verðlag
erlendis á þessum tíma og þar með vegið upp á móti
áhrifum nafngengislækkunarinnar á raungengið. - jh
Í var var ásamt félaga sínum í fríi í Barce-lona á Spáni þegar ráðist var á hann. Þeir voru gangandi á leið heim af veit-
ingastað þegar atvikið átti sér stað. Félag-
arnir urðu viðskila við gatnamót í nokkrar
mínútur þegar Ívar hélt áfram göngu sinni
en félaginn fór að kaupa drykki.
„Þá kom hlaupandi að mér maður sem
virtist vera á grimmum eiturlyfjum. Hann
virtist vera algjörlega sturlaður og ég
reyndi að tala við hann og einhvern veginn
að losa mig við hann. Það næsta sem ég
man var að ég lá á jörðinni og maðurinn
ofan á mér að reyna að kyrkja mig. Hann
hélt höndunum á mér niðri með hnjánum
og ég hélt að ég væri við það að deyja. Ég
var samt sannfærður um að þetta væri ekki
rétti tíminn til þess og náði því einhvern
veginn að losa mig undan honum,“ segir
Ívar sem man ekki eftir því sem gerðist
næst.
„Örfáum mínútum síðar kom vinur minn
að mér liggjandi í götunni og ókunnuga
manninum grátandi og öskrandi við hlið
mér.“
Ívar segir árásarmanninn þá hafa hlaupið
í burtu. Vini hans hafi brugðið mjög yfir
sjóninni sem við honum blasti. „Þegar hann
leit á mig öskraði hann upp yfir sig og sagði
mér að það vantaði á mig vörina. Við það
rankaði ég við mér og fann að ég var allur
rennvotur af blóði, eins og ég hefði dottið
ofan í poll.“ Ívar segir árásarmanninn hafa
bitið af honum neðri vörina og hluta af hök-
unni. Í andlitinu á honum hafi verið skýr
tannaför.
Félagi Ívars hringdi á sjúkrabíl en óratími
leið þar til hann kom á staðinn. „Hann kom
ekki fyrr en eftir að búið var að hringja
fjórum sinnum.“
Fyrst var farið með Ívar á sjúkrahús þar
sem gert var lítillega að sárum hans. Síðar
var hann sendur á annað sjúkrahús þar
sem hann undirgekkst bráðabirgðaaðgerð
og sárunum var lokað. Þannig flaug hann
heim til Íslands og hér heima gekkst hann
undir viðamikla lýtaaðgerð. Tekin var húð
og vefur frá öðrum stöðum í munninum og
ný neðrivör mynduð á hann. Tvær vikur eru
liðnar síðan Ívar fór í aðgerðina og hún virð-
ist hafa tekist vel. „Neðri vörin var mjög lítil
eftir aðgerðina en það á enn eftir að teygjast
mikið á henni,“ segir Ívar sem ef til vill þarf
að gangast undir fleiri aðgerðir.
Að hans sögn var árásin honum mikið
áfall og andlit hans er verulega breytt eftir
hana. Samkvæmt læknum tekur þó rúm-
lega tvo mánuði að ná bata eftir aðgerðina.
Ívar verður frá vinnu að minnsta kosti
fram í ágúst og hefur atvikið haft talsverð
áhrif á líf hans og störf. Hann er rappari í
hljómsveitinni Original Melody, sem sent
hefur frá sér tvær breiðskífur. Í sumar
hugðist Ívar vinna að sinni fyrstu sólóplötu
en þær fyrirætlanir eru nú í uppnámi. Óvíst
er hvernig ferillinn þróast og hvenær Ívar
getur rappað á ný.
thora@frettatiminn.is
lÍKAMSÁRÁS MAðuR bitinn
Neðri vörin bitin af
Ívar Schram varð fyrir tilefnislausri árás ókunnugs manns á götu úti í Barcelona
á dögunum. Árásarmaðurinn beit af honum neðri vörina og hluta af hökunni.
Ívar hefur gengist undir tvær aðgerðir og þarf ef til vill að fara í fleiri.
Ívar gekkst
undir viðamikla
lýtaaðgerð þar sem
búin var til ný neðri
vör á hann.
iPad 2
Epli.is, Laugavegi 182, sími 512 1300 | Opið 10-18 mánudaga til föstudaga og 12-16 laugardaga | www.epli.is
Fullkominn ferðafélagi
RÝMINGARSALA
ALLAR VÖRUR Á 50 % AFSLÆTTI 7.-15. JÚLÍ
Basarinn í Austurveri
Nytjamarkaður Kristniboðssambandsins
Háaleitisbraut 68
Opið virka daga kl. 11-18
Gerið góð kaup á nýjum og notuðum
hlutum, s.s. fötum, bókum, skrautmunum,
hljómplötum
og mörgu fleiru.
Við tökum á móti notuðum frímerkjum,
helst á umslögunum og komum þeim í verð.
Allur ágóði rennur til starfsins í Eþíópíu, Keníu, Japan og víðar.
SUMAR
LEIKUR
ATLANTSOLÍU
Á HVERJUM DEGI TIL
1. ÁGÚST Í SUMAR FÆR
EINN DÆLULYKILSHAFI
ÁFYLLINGUNA
ENDURGREIDDA.
Meira í leiðinni WWW.N1.IS
8 fréttir Helgin 8.-10. júlí 2011