Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.07.2011, Qupperneq 32

Fréttatíminn - 08.07.2011, Qupperneq 32
Rafmögnuð heimkoma D Deila má um það hvort hin nítján ára mexí- kóska stúlka, Maria del Mar Arnjona, hafi verið ráðagóð eða bara fífldjörf þegar hún brá á það ráð, að því er fram kom í fréttum vikunnar, að reyna að smygla kærasta sínum úr fangelsi í ferðatösku. Vera kann að pilturinn, Juan Ramirez Tijerina, sé smábeinóttur og fíngerður en þó ekki létt- byggðari en svo að ferðataskan var þung í drætti Maríu, auk þess sem fangavörðum þótti stúlkan nokkuð taugaveikluð á útleið- inni – kannski að vonum. María var því stöðvuð af fangavörðum og Júan fór beina leið í steininn á ný eftir skamma dvöl í ferðatöskunni. María litla á líka yfir höfði sér tukthúsvist fyrir til- tækið. Vonandi horfa mexíkósk yfirvöld til þess að allt er leyfilegt í ástum og stríði, eins og segir í íslensku máltæki. Þó skal ekkert fullyrt um það hversu vel þau yfir- völd eru að sér í íslenskum orðskviðum. Engar efasemdir hef ég um það að mín ágæta eiginkona gripi til sinna ráða, kæmi til þess að pistilskrifarinn færi upp á vatn og brauð, þó ekki væri nema á Kvía- bryggju, sem við bæði vonum að ekki komi til. Ég er grannur að eðlisfari þótt mittismálið hafi aukist aðeins með aldr- inum. Konan er hins vegar afar snjöll að pakka og kæmi karli sínum án efa fyrir í þokkalega rúmgóðri ferðatösku. Konan á ekki langt að sækja hugmynda- auðgi og pökkunarhæfileika. Faðir hennar, sem rekur stórbílaútgerð, brá t.d. á það ráð snemma á ferlinum, þegar allrar útsjónar- semi var þörf í rekstrinum, að grípa með sér í handtösku í flug fjaðrahengsli undir rútu. Menn þurfa að vera öflugir vel og taka á öllu sínu til að sýna ekki svipbrigði með slíka tösku í annarri hendi á leiðinni gegnum hliðið. Tengdaföður mínum þótti heldur ekkert sjálfsagðara en að biðja dóttur sína, eigin- konu mína, að kippa með sér smáræði heim frá Spáni. Af eðlislægri greiðasemi sinni tók hún við pakkanum en brá í brún þegar borðalagðir verðir á flugvellinum í Alicante mættu til hennar í fullum skrúða, gott ef ekki með alvæpni. Hún var vinsam- lega – eða kannski ekki – beðin að gera grein fyrir sprengju sem hún ætlaði með um borð í flugvélina. Konan kom af fjöllum enda ekki með illt í huga fyrir flugið. Hún var beðin að skýra út fyrir þeim borða- lögðu hvað hún væri með, en á gegnumlýs- ingarapparati blasti við tól þar sem vírar stóðu út úr öllum endum. Þótt mín ágæta kona sér ekki sérmenntuð í vélfræðum tókst henni að koma spænsku vörðunum í skilning um að tækið væri aðeins hleðslu- tæki fyrir rafgeyma, þarfaþing á hverju verkstæði, ef ekki heimili. Ekkert má nú, á þessum bévítans hryðjuverkatímum. Þá þótti mér frúin herðabreiðari en hún á vanda til þegar ég tók á móti henni úr flugi frá Lúxemborg eitt árið, í hópi kaup- glaðra vinkvenna. Í ljós kom að hún hafði verið að hugsa um sinn mann í borginni fögru og keypt á hann vetrarfrakka. Þar sem allar töskur voru pakkaðar voru góð ráð dýr. Vön kona klikkar hins vegar ekki á ögurstund. Hún brá sér einfaldlega í frakkann utan yfir kápu sína og mætti þannig á Miðnesheiðina eftir þægilegt flug. Sama kona bar hins vegar enga ábyrgð á síðasta atviki okkar hjóna í flugtolli. Við vorum í samfloti með kunningjakonu heim frá evrópskri borg. Sú hafði tekið að sér að flytja kassa heim með rafvörum ýmiss konar, fyrir vinafólk sitt. Þar sem við vor- um í samflotinu ruglaðist farangur okkar á fríhafnarkerrum á meðan rótað var í makkintossi og konjakkspelum. Það var ekki fyrr en kunningjakonan var farin út að við áttuðum okkur á því að rafvörurnar hennar höfðu gleymst á kerrunni okkar. Ég var að sjálfsögðu stoppaður af árvök- ulum tollverði. Mér vafðist tunga um tönn þegar hann spurði mig hvað væri í kassan- um. Í flýti reyndi ég, rafvirkjasonurinn, að rifja upp það sem ég hafði heyrt um inni- haldið og sagði embættismanninum frá því – sannleikann og ekkert nema sannleik- ann, jafnvel vörumerki búnaðarins. Tengla nefndi ég og innstungur, hulsur og barka. Eiginkonan stakk því að tollverðinum, ef það mætti verða bónda hennar til bjargar frá hugsanlegu varðhaldi, að mögulega væri dyrabjölluhnappur líka í kassanum, „svona til að dingla,“ sagði hún til frekari skýringar. Ég sá neðri kjálkann á embætt- ismanni ríkisins síga aðeins við þessar við- bótarupplýsingar og ímyndaði mér, frómt frá sagt, að fyrir mér færi eins og yndis- parinu Júan og Maríu. Þegar tollvörðurinn heyrði hins vegar hversu fávíslegar skýringar okkar voru og lítt undirbúnar – og svipur okkar hjóna undurhreinn og barnslega einlægur – færðist kjálkinn aftur á sinn stað. Hann gat ekki annað en trúað frásögninni. Rafmögnuð var hún að minnsta kosti. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Fært til bókar 33 evrur í rassvasann næst Pistilskrifari Fréttatímans greindi frá þröngri stöðu – eða setu öllu heldur – um borð í flugvél erlends lágfargjaldaflug- félags nýverið. Hann sat í öftustu röð og gat hvorki hreyft legg né lið en varð nauð- ugur viljugur að horfa ofan í hvirfil farþeg- ans í sætinu fyrir framan því sá gat hallað sæti sínu. Í flugi þessu hefði skrifarinn gefið talsvert fyrir bærilegri aðstöðu. Líklegt er að hann nái sér því í 33 evrur, á svörtum markaði ef ekki vill betur til nú á tímum gjaldeyrishafta, og hafi með sér í næsta flug. Það kom nefnilega fram í fréttum fyrr í vikunni að flugfreyjur um borð í flugvél Iceland Express buðu farþegum að færa sig í önnur sæti, með meira fótaplássi, gegn greiðslu upp á 33 evrur. Í frétt mbl.is af málinu sagði að ýmsum farþegum hefði þótt þetta nokkuð nýstárleg tilhögun en að sögn Matthíasar Imsland, framkvæmda- stjóra félagsins, eru þetta alþekkt vinnu- brögð og síður en svo einsdæmi. Víðir kemur sterkur inn Ný verðkönnun ASÍ á matvörum styrkir Víði í Skeifunni í harðri samkeppni á mat- vörumarkaði hér. Bónus hefur frá stofnun boðið lægsta verð þótt Krónan hafi veitt verðuga samkeppni. Bónus var, samkvæmt ASÍ-könnuninni, oftast með lægsta verðið á þeim 79 vörutegundum í verðlagseftirliti ASÍ í lágvöruverðsverslunum og þjónustu- verslunum í síðustu viku en Víðir fylgdi í kjölfarið. Verðið var oftast lægst í Bónus í 38 tilvikum en Víðir var með lægsta verðið í 15 tilvikum. Aðrar lágvöruverðsverslanir, Bónus, Krónan og Kostur, hljóta að skoða stöðu sína í framhaldi þessa. Kostur kaus að vísu að taka ekki þátt í ASÍ-könnuninni. Víðisnafnið er ekki nýtt á íslenskum mat- vörumarkaði. Fyrir Víði fer gamalreyndur kaupmaður, Eiríkur Sigurðsson. Hann og Matthías bróðir hans tóku við rekstri Víðis við fráfall föður þeirra. Rekstur Víðis gekk hins vegar ekki sem skyldi og fór í þrot. Þá stofnaði Eiríkur verslanakeðjuna 10-11 sem síðar komst í eigu Baugsveldisins. Matthías kom hins vegar að stofnun Europris. Versl- unargenin eru því öflug í þeim bræðrum. Haft var eftir Eiríki í fréttum í vor að hann byrjaði í Skeifunni og opnaði svo fleiri Víðisverslanir. Stakk hann þyrluna af? Margt er skrýtið í kýrhausnum. Í frétt Ríkisútvarpsins í vikunni kom fram að hraðamæling úr þyrlu Landhelgisgæsl- unnar hefði ekki nægt til að sakfella mótor- hjólamann sem var ákærður fyrir að hafa ekið á yfir tvö hundruð kílómetra hraða í Svínahrauni í fyrra. Dómari tók heldur ekki gilda mælingu lögreglumanns sem ók á eftir manninum. Í fréttinni kemur fram að lögreglumenn hafi verið við umferðar- eftirlit þegar þeir tóku eftir mótorhjóla- manni á leið yfir Hellisheiði til Reykjavíkur. Þyrla Landhelgisgæslunnar var við eftirlit og fylgdi mótorhjólinu eftir frá Kamba- brún. Í Svínahrauni var þyrlunni flogið við hlið bifhjólsins í fimm hundruð til þúsund feta hæð og á þremur GPS-staðsetningar- tækjum um borð í þyrlunni kom fram að hraðinn var 235 kílómetrar á klukkustund. Lögreglumaður á mótorhjóli náði að draga bifhjólið uppi á Sandskeiði og þá sýndi hraðamælir lögregluhjólsins 245 kílómetra hraða. Reynt var að stöðva manninn á nokkrum stöðum en hann sinnti því ekki og ökuferðin endaði síðan við Sævarhöfða í Reykjavík þar sem maðurinn var handtek- inn. Fyrir dómi gekkst maðurinn við marg- víslegum umferðarlagabrotum þennan dag en hafnaði því að hafa ekið svona hratt. Þeir sem ekki þekkja gjörla til hraða þyrlna velta því fyrir sér hvort ökuníðingurinn hafi sloppið með því hreinlega að stinga þyrluna af? Langt gengið í stærðfræðinni Stjórnlagaráð hefur í vor og sumar unnið í bærilegum friði að tillögum um nýja stjórn- arskrá. Óvíst er þó að einhugur verði um allt sem þaðan kemur. Fram hefur komið að samstaða virðist vera að takast um það í stjórnlagaráði að leggja fram hugmyndir að ákvæðum í stjórnarskrá um gjörbreytt kosningakerfi, svokallað kjördæmavarið kerfi. Samkvæmt því getur hver kjósandi kosið frambjóðendur úr hvaða kjördæmi sem hann vill. Kerfið er eins konar blanda af persónukjöri og kjördæmakjöri. Kjósandi getur, ef hann vill, kosið einn lista en hann getur líka kosið staka frambjóðendur. Í fljótu bragði virðist þetta heldur flóknara en það kerfi sem við búum við þótt það sé fráleitt gallalaust. Jónas Kristjánsson rit- stjóri varar við þessu og bendir sérstaklega á einn stjórnlagaráðsmanninn, stærð- fræðinginn Þorkel Helgason. Varið ykkur á stærðfræðingnum, segir Jónas í fyrirsögn á pistli sínum og heldur áfram: „Stjórnlaga- ráðsfólk, varið ykkur á stærðfræðingnum. Þorkell Helgason stýrði breytingum á reiknikerfi kosninga um áratugi. Ber ábyrgð á flakkaranum. Fylgikvilli breytinga hans er, að fólk hættir að skilja. Kjósendur missa áhugann. Munið eftir kosningunum til stjórnlagaþings. Reikniverkið þar var eftir Þorkel. Hann er hættulegur. Hafnið göldrum á borð við „kjördæmavarið lands- kjör“. Orðalagið segir mér, að Þorkell sé að baki. Með sjónhverfingum fram og aftur er reynt að telja ykkur trú um, að allir fái sitt bingó. Þjóðfundurinn bað hins vegar um einfalt kerfi: „Allt landið eitt kjördæmi“.“ Te ik ni ng /H ar i 28 viðhorf Helgin 8.-10. júlí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.