Fréttatíminn - 08.07.2011, Síða 50
Þetta er
náttúrlega
klassísk
saga. Eigin-
lega fyrsta
sjóræningja-
sagan.
46 dægurmál Helgin 8.-10. júlí 2011Fyrir byrjendur
og lengra komna!
Á nýjum stað í Skeifunni 11 • 108 Reykjavík • S. 533 1010
Opið til
22.00
Alla daga
3.399,- ALLTAF ÓDÝRARI
52 flottar
Prjónasokka
uppskriftir
á kríli, krakka,
konur og karla.
iPhone 4
Epli.is, Laugavegi 182, sími 512 1300 | Opið 10-18 mánudaga til föstudaga og 12-16 laugardaga | www.epli.is
Verð frá 119.990.- Þ etta hefur nú verið draumur Sigga Sigurjóns í fjöldamörg ár. Hann er búinn að ganga með þessa hugmynd í
maganum lengi. Hann kveikti síðan hjá mér
áhuga og við ákváðum að gera þetta saman,“
segir Karl Ágúst. Hann segir þá hafa lokið
handritsvinnunni þannig að þeir séu klárir
í slaginn og vilji óðir og uppvægir hefja æf-
ingar sem allra fyrst. „Þetta er búið að vera
í pípunum í svolítinn tíma og það er mikill
hugur í okkur.“
Tónlistin verður fyrirferðarmikil í sýning-
unni enda söngelskir sjóræningjar á ferðinni,
eins og Karl Ágúst orðar það. „Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson er tónskáldið og er
í óðaönn núna að semja hverja perluna af
annarri.“
Karl Ágúst segir glímuna við sögu Ste-
vensons hafa verið mjög spennandi. „Þetta
er náttúrlega klassísk saga. Eiginlega
fyrsta sjóræningjasagan og við réðumst á
hana. Hún er auðvitað, eins og margir vita,
gríðarlega skemmtileg og spennandi. Hún er
líka fyndin í aðra röndina og dramatísk. Hún
hefur þetta allt saman.“
Þeir félagar eiga báðir æskuminningar
tengdar Gulleyjunni enda sagan vinsælt
lestrarefni á árum áður og þeir eru ófáir
guttarnir sem hafa í gegnum tíðina heillast
af einfætta sjóræningjanum Langa Jóni Silfra
eins og Long John Silver var nefndur á ís-
lensku.
Sjóræningjar hafa sótt í sig veðrið á ný
undanfarin ár með feikilegum vinsældum
sjóræningjans Jacks Sparrow og bíómynd-
anna um ævintýri hans í Karabíska hafinu
þannig að tímasetningin hjá Karli og Sigurði
er heppileg. „Einmitt vegna þess að sjóræn-
ingjar hafa í seinni tíð aðeins fengið að láta
ljós sitt skína er gaman að rifja upp þessa
upprunalegu sögu. Það er í þessari sögu Ste-
vensons sem þetta byrjar allt. Í þessari einu
sögu kemur í fyrsta skipti fyrir fjársjóðskort
þar sem fjársjóðurinn er merktur
með x-i, einfættur sjóræningi
og meira að segja páfagaukur.
Allt er þetta uppfinning
þessa eina höfundar og
síðan hefur þetta endur-
tekið sig í næstum því öllum
sjóræningjasögum síðan
þá.“
Gulleyjan verður
samstarfsverkefni
Borgarleikhússins
og Leikfélags Akur-
eyrar og Karl Ágúst
segir að gangi allar
áætlanir upp verði
leikritið frumsýnt
fyrir norðan í janúar
og síðan í Reykjavík í
framhaldi af því.
toti@frettatiminn.is
karl Ágúst og siggi sigurjóns setja gulleyjuna Á svið
Söngelskir sjóræningjar
Leikararnir og Spaugstofufélagarnir Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson stefna að því að
setja á svið nýja leikgerð byggða á Gulleyjunni, hinni sígildu sjóræningjasögu eftir Robert Louis
Stevenson. Karl Ágúst er tilbúinn með handritið, Sigurður ætlar að leikstýra og Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson sér um tónlistina en sjóræningjarnir á Gulleyjunni eru nokkuð fyrir það að taka lagið.
Iðnaðarmenn
- arkitektar - húseigendur
Fræðslustofa um viðhald og viðgerðir eldri húsa
Endurgjaldslaus ráðgjöf í Árbæjarsafni miðvikudaga
kl. 16 – 18 og á sama tíma í síma 411 6333
Húsafriðunarnefnd – IÐAN fræðslusetur – Minjasafn Reykjavíkur
HÚSVERNDARSTOFA
www.madurlifandi.is
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
Hæðarsmára 6
201 Kópavogur
Sími: 585 8710
Hafnarborg
220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720
Leiðarvísir að lífsgleði - námskeið með Siggu kling!
ORÐ ERU ÁLÖG
„Orð eru álög“ er námskeið sem er byggt á samnefndri bók þar sem þátttakendur
læra að tengja sig sálinni, ná betri tökum á lífi sínu og finna hamingjuna. Einnig er
fjallað um drauma, að þeir séu skilaboð sálarinnar og kenndar aðferðir til að skilja
þá og túlka, kalla á þá og fá svör.
Hljóðdiskurinn „Þú ert frábær“ sem tengist efni námskeiðsins er innifalinn.
Eftir að þú hefur hlustað á diskinn í tíu daga getur þú haft samband við
Siggu á sérstökum símatíma til að ræða framfarir og næstu skref.
Námskeiðið verður haldið í Borgartúni 24,
þriðjudaginn 12. júlí, kl.18:00 og kostar 2.900 kr.
Skráning á madurlifandi@madurlifandi.is eða í síma 585 8701
Karl Ágúst hefur skemmt sér vel
við að skrifa leikgerð byggða á
hinni sígildu sögu um Gulleyjuna.
Lj
ós
m
yn
d
H
ar
i